Það var fallegt í Bláfjöllum í morgun (himininn er ekki photosjoppaður - var svona). Ekki er vitað hvenær skíðasvæðið getur opnað, ekki vegna snjóleysis heldur vegna veirunnar sem herjar á heimsbyggðina. Í fyrra var opið í Bláfjöllum í 57 daga og mættu samtals rúmlega 80.000 á svæðið. Þegar mest gekk á mættu 6.000 manns á einum degi, þá auðvitað bæði í lyfturnar og á gönguskíðasvæðið sem hefur aldrei verið vinsælla en síðastliðinn vetur. Enda til fyrirmyndar á allan hátt.
Athugasemdir