Héraðssaksóknari: Samherjamálið í Namibíu opnaði augu Íslendinga
FréttirSamherjaskjölin

Hér­aðs­sak­sókn­ari: Sam­herj­a­málið í Namibíu opn­aði augu Íslend­inga

Ísland er gagn­rýnt harð­lega fyrir lin­kind í eft­ir­liti með mútu­málum Íslend­inga erlendis í skýrslu OECD. OECD segir að Sam­herj­a­málið hai breytt við­horfi Íslend­inga til efn­is­ins og í reynd svipt þá sak­leys­inu að þessu leyti. Ólafur Hauksson segir mik­il­vægt að Ísland gyrði sig í brók þegar kemur að eft­ir­liti með mögu­legum mútu­brotum.
Í níutíu ár
Mynd dagsins

Í níu­tíu ár

Í ár eru 90 ár liðin síðan fyrsti þjóð­garð­ur­inn, Þjóð­garð­ur­inn á Þing­völlum, var stofn­aður. Þá, eins og nú með verð­andi Hálend­is­þjóð­garð, voru hávær mót­mæli gegn því að friða landið á Þing­völlum. And­stæð­ingar frið­unar hálend­is­ins nota í dag mörg þau sömu rök og voru notuð gegn frið­lýs­ingu Þing­valla fyrir tæp­lega hund­rað árum. Í fyrra sóttu vel á aðra milljón ferða­manna Þing­velli heim.
Fimm spurningar til Festival
Mynd dagsins

Fimm spurn­ingar til Festival

1) Verða hvít eða rauð jól á Rauf­ar­höfn? F: Rauð. 2) Hvað borðar þú í morg­un­mat á jóla­dags­morgun? F: Eft­ir­rétti sem skildir hafa verið eftir á jóla­borð­inu. 3) Hvaða spil spilar þú þessi jól? F: Spila bara hand­spil með stokk. 4) Hvaða jóla­gjöf gefur þú þér í ár? F: Þær eru allt of margar og DÝRAR. 5) Hvernig fer Liverpool-Totten­ham leik­ur­inn í kvöld? F: 1-1 fyrir Liverpool.
Marfló og mý
Mynd dagsins

Marfló og mý

Í skýrslu sem fugla­fræð­ing­arnir Jóhann Óli Hilm­ars­son og Ólafur K. Nielsen birtu nú í vor, kom fram að ástandi Tjarn­ar­innar hefði hnignað síð­ast­liðin 15 ár. Helstu ástæð­urnar er fæðu­skortur, afrán, léleg afkoma and­ar­unga og hnignun búsvæða í og við Reykja­vík­ur­tjörn. Á síð­ustu árum hafa orðið miklar breyt­ingar á líf­rík­inu, mar­flóin er horfin og mýið að mestu leyti. Síðan herja hrafnar, mávar og kettir á fugl­ana. Þeir leggja til í skýrslu sinni að ráð­inn verði sér­stakur fugla­eft­ir­lits­maður, sem sinnir dag­legum þörfum fið­ur­klæddu íbúa Tjarn­ar­innar.
Kristján Þór sjávarútvegsráðherra „lækaði“  gagnrýni á umfjöllun RÚV um Samherja
FréttirSamherjaskjölin

Kristján Þór sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra „lækaði“ gagn­rýni á umfjöllun RÚV um Samherja

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra „lækaði“ Facebook-færsl­una „Fokkings bjálk­inn“ þar sem gagn­rýnendum Samherja var bent á að líta í eigin barm. Rík­is­út­varpið er gagn­rýnt harð­lega í færsl­unni fyrir frétta­flutn­ing um Seðla­banka - og Namib­íu­málið. Kristján Þór er alda­vinur Þor­steins Más Bald­vins­sonar og hefur lýst mögu­legu van­hæfi sínu vegna mála sem tengj­ast Samherja „sér­stak­lega“.
Hælspyrna og hundrað og eitthvað önnur listaverk
Mynd dagsins

Hælspyrna og hund­rað og eitt­hvað önnur lista­verk

Gleðileg jól, heitir sýn­ing tæp­lega 110 lista­manna sem er nú Ásmund­ar­sal, sem Prent & vinir hafa veg og vanda af. Fremst á mynd­inni er verkið Hælspyrna eftir þær stöllur í Gjörn­inga­klúbbnum, Eirúnu Sig­urð­ar­dóttur og Jóní Jóns­dóttur. Sýningin stendur fram á Þor­láks­messu en vegna sam­komu­tak­markanna þarf að panta tíma til að sjá og upp­lifa þessa skemmti­legu árlegu sölu­sýn­ingu.

Mest lesið undanfarið ár