Hátíð í bæ
Mynd dagsins

Hátíð í bæ

Það eru skynjarar sem nema hreyf­ingar frá áhorf­endum og umhverf­inu í víd­eó­verk­inu Truflun / Interference eftir lista­menn­ina Harald Karlsson og Litten Nystrøm sem varpað er á Hall­gríms­kirkju. Verkið er eitt 23 lista­verka á Ljósa­slóð í miðbæ Reykja­víkur, sem er hluti Vetr­ar­há­tíðar sem hófst í gær og stendur fram á sunnu­dags­kvöld á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Kveikt er á verk­unum frá klukkan 18 til 21 alla daga hátíð­ar­innar.
Bjarni Benediktsson: Þjóðareign auðlinda „sósíalísk hugmyndafræði“
Fréttir

Bjarni Bene­dikts­son: Þjóð­ar­eign auð­linda „sós­íal­ísk hug­mynda­fræði“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra seg­ist gera „risa­stóra mála­miðlun“ í stuðn­ingi sínum við hug­takið þjóð­ar­eign auð­linda í stjórn­ar­skrár­frum­varpi Katrínar Jak­obs­dóttur. Slíkt hafi helst þekkst í Sov­ét­ríkj­unum og hafi „nákvæm­lega enga þýð­ingu haft“. Hann segir þingið ekki bundið af þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um stjórn­ar­skrána.
Kraftur í Krafti
Mynd dagsins

Kraftur í Krafti

Í kvöld klukkan átta, á alþjóða­degi gegn krabba­meinum, er Kraftur með söfn­unar- og skemmti­þátt­inn „Lífið er núna“ í beinni útsend­ingu á Sjón­varpi Símans og í net­streymi á mbl.is. Meðal þeirra lista­manna sem koma fram eru GDRN, Valdimar, Ari Eldjárn, Sigríður Thorlacius og Páll Óskar (mynd). Kraftur er stuðn­ings­fé­lag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabba­mein og aðstand­endur þeirra. Um sjö­tíu ungir ein­stak­lingar grein­ast hér með krabba­mein árlega.
Ákvörðun um rannsókn á Laugalandi ræðst af mati Ásmundar Einars
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Ákvörðun um rann­sókn á Lauga­landi ræðst af mati Ásmundar Einars

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, hefur greint rík­is­stjórn­inni frá því að hann sé með mál­efni Lauga­lands til skoð­unar. Hann hyggst funda með hópi kvenna sem þar dvöldu 12. febr­úar næst­kom­andi. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að það muni ráð­ast af mati Ásmundar hvort sér­stök rann­sókn fari fram.
Hvað fær maður fyrir 169 þúsund krónur?
Mynd dagsins

Hvað fær maður fyrir 169 þús­und krónur?

Í nær sex ára­tugi var Hvít­ár­brúin hjá Ferju­bakka í Borg­ar­firði aðal þjóð­leiðin milli lands­hluta. Þessi ein­breiða 106 metra langa brú, hönnuð af Árna Pálssyni verk­fræð­ingi hjá Vega­gerð­inni, var valin af Verk­fræði­fé­lagi Íslands sem eitt af verk­fræði­afrekum síð­ustu aldar á Íslandi. Hvít­ár­brúin sem stendur nú á vegi 510 var byggð af Vega­gerð­inni á sex mán­uðum árið 1928 og kost­aði verkið hvorki meira né minna en 169 þús­und krónur.
Þriðja hvert barn á meðferðaheimilum sagði starfsmann hafa beitt sig ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Þriðja hvert barn á með­ferða­heim­ilum sagði starfs­mann hafa beitt sig ofbeldi

Í skýrslu fyrir Barna­vernd­ar­stofu kemur fram að tæp­lega þriðj­ungur barna sagð­ist hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu starfs­manna á með­ferð­ar­heim­ilum á vegum barna­verndar árin 2000 til 2007. Samt segir að lítið ofbeldi hafi verið á með­ferð­ar­heim­il­unum og að sum til­felli til­kynnts ofbeldis hafi verið „hluti af því að stoppa óæski­lega hegðun barns“.
Núll komma núll núll fimm %
Mynd dagsins

Núll komma núll núll fimm %

Við Íslend­ingar erum 368.590 tals­ins, eða 0,005% jarð­ar­búa, sem voru nú um ára­mótin 7.874.965.825 tals­ins. Af þessum tæp­lega 370 þús­und lands­mönnum búa hér 51.180 erlendir rík­is­borg­arar, eða 13,9% af heild­ar­fjöld­anum – og hafa aldrei verið fleiri. Algeng­ustu eig­innöfn karla eru Jón, Sigurður og Guð­mundur en algeng­ustu kven­mannsnöfnin eru Guðrún, Anna og Kristín. Ísafold (mynd) er ein 32 kvenna sem bara það eig­in­nafn, meðan Guð­rún­arnar eru 4.656.

Mest lesið undanfarið ár