Óli Björn segir þá sem gagnrýna sóttvarnaraðgerðir fá yfir sig svívirðingar
Fréttir

Óli Björn segir þá sem gagn­rýna sótt­varn­ar­að­gerðir fá yfir sig sví­virð­ingar

Svigrúm sem skapað var til að styrkja inn­viði heil­brigð­is­kerf­is­ins var ekki nýtt, segir Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þeim sem spyrji gagn­rýnna spurn­inga um sótt­varn­ar­að­gerðir sé mætt af mik­illi hörku, meðal ann­ars af læknum sem fái með því „útrás fyrir hégóma í sviðs­ljósi fjöl­miðla“.
Annað mál tengt Helga var til umfjöllunar innan Ferðafélags Íslands
Fréttir

Annað mál tengt Helga var til umfjöll­unar innan Ferða­fé­lags Íslands

For­svars­menn Ferða­fé­lags Íslands fengu upp­lýs­ingar um mál tengt Helga Jóhann­essyni og konu sem í dag er þrí­tug. Fundað var með kon­unni. Málið snýst meðal ann­ars um meinta kyn­ferð­is­lega áreitni og fór það í ferli innan Ferða­fé­lags Íslands. Þetta gerð­ist áður en Helgi hætti hjá Lands­virkjun. Forseti Ferða­fé­lags Íslands, Anna Dóra Sæþórs­dóttir, segir að hún geti ekki tjáð sig um ein­staka mál en að slík mál fari í ferli innan félags­ins.
Kona sem upplifði harðræði á Laugalandi lýsir símtali frá Braga
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Kona sem upp­lifði harð­ræði á Lauga­landi lýsir sím­tali frá Braga

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, hringdi í konu sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi fyrir tveimur vikum síðan. Konan segir Braga hafa full­yrt að engin gögn styddu það að konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hefðu verið beittar ofbeldi þar. Ellefu konur hafa lýst harð­ræði og ofbeldi af hálfu Ingjalds Arn­órs­sonar for­stöðu­manns. Bragi segir tíma­bært að „maður sé ekki hund­eltur“ vegna slíkra mála.
Sólveig Anna segir lögfræðing ASÍ lýsa stuðningi við mann sem hafi hótað henni
FréttirAfsögn Sólveigar Önnu

Sólveig Anna segir lög­fræð­ing ASÍ lýsa stuðn­ingi við mann sem hafi hótað henni

Sólveig Anna Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi for­maður Eflingar, gagn­rýnir Magnús M. Norðdahl lög­ræð­ing ASÍ harð­lega fyrir athuga­semd sem hann skrif­aði við færslu hjá Tryggva Mart­eins­syni, sem vikið var úr starfi kjara­full­trúa Eflingar í gær. Umræddur Tryggvi er að sögn Sól­veigar Önnu mað­ur­inn sem hót­aði að beita hana ofbeldi.
ÖSE ítrekað gert athugasemdir við misræmi í störfum kjörstjórna
Fréttir

ÖSE ítrekað gert athuga­semdir við mis­ræmi í störfum kjör­stjórna

Öryggis- og sam­vinnu­stofnun Evrópu hefur ítrekað gert athuga­semdir við að mis­ræmi sé í störfum kjör­stjórna við kosn­ingar hér á landi. Kristín Edwald, for­maður Lands­kjör­stjórnar, segir að auð­vitað ætti að sam­ræma fram­kvæmd kosn­inga yfir allt landið og koma boð­valdi á einn stað. Það hefði að lík­indum komið í veg fyrir þau vand­ræði sem sköp­uð­ust við kosn­ing­arnar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.
Yfirlögfræðingur Landsvirkjunar hætti í kjölfar áminningar vegna ótilhlýðilegrar háttsemi
Fréttir

Yfir­lög­fræð­ingur Lands­virkj­unar hætti í kjöl­far áminn­ingar vegna ótil­hlýði­legrar hátt­semi

Helgi Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi yfir­lög­fræð­ingur Lands­virkj­unar, lét af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu eftir að kona hafði kvartað undan hegðun hans. Hegðun Helga sner­ist um óvið­eig­andi orð auk þess sem hann strauk henni í framan gegn vilja hennar. Lands­virkjun seg­ist ekki geta tjáð sig um mál­efni ein­stakra starfs­manna.
„Óeðlilegt“ að maður á fertugsaldri hafi kynferðislegan áhuga á 16 ára unglingi
Fréttir

„Óeðli­legt“ að maður á fer­tugs­aldri hafi kyn­ferð­is­legan áhuga á 16 ára ung­lingi

Það er tals­vert algengt að konur sem á ung­lings­árum áttu í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við miklu eldri menn leiti til Stíga­móta því upp­lifun þeirra er að þær hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi, segir tals­kona sam­tak­anna. Umboðs­maður barna segir að það auki hætt­una á ójafn­ræði í sam­böndum ef annar aðil­inn hefur yfir­burði vegna ald­urs, þroska og lífs­reynslu.

Mest lesið undanfarið ár