Eigandi Arnarlax vill tryggja „sjálfbæran vöxt“ laxeldis á hafi úti

Samstarf lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Salmar AS, eig­anda Arnarlax, og fyr­ir­tækis Kjell Inge Rökke, um að þróa aflandseldi á laxi er form­lega hafið. Á sama tíma reynir Salmar AS að stækka starf­semi Arnarlax á Íslandi þar sem lax­eldið fer fram í fjörðum lands­ins.

Eigandi Arnarlax vill tryggja „sjálfbæran vöxt“ laxeldis á hafi úti
Samstarf sem á að tryggja „sjálf­bæran vöxt“ Samstarf Salmar og Aker hefur nú verið klárað með form­legum hætti en fyrr­nefnda félagið er stærsti hlut­hafi Arnarlax á Bíldudal. For­stjórar og stærstu eig­endur Salmar og Aker, Gustav Witzoe og Kjell Inge Rökke, sjást hér saman þegar sam­starf fyr­ir­tækj­anna var kynnt í ágúst.

„Með því að klára þetta ferli með árang­urs­ríkum hætti er sú ákvörðun Salmar og Aker und­ir­strikuð að félögin ætli að vera leið­andi í því að tryggja sjálf­bæran vöxt í fisk­eld­is­iðn­að­inum,“ segir for­stjóri norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Salmar AS, Gustav  Witzoe, um sam­starf fyr­ir­tæk­is­ins við norska fyr­ir­tækið Aker um að þróa tækni­lausnir til að stunda aflandseldi á laxi. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Salmar AS til norsku kaup­hall­ar­innar í morgun. 

Salmar er stærsti hags­mun­að­il­inn í sjó­kvía­eldi á Íslandi í gegnum fyr­ir­tækið Arnarlax á Bíldudal. Sjó­kvía­eldi Arnarlax fer hins vegar fram í íslenskum fjörðum eins og Arn­ar­firði og Tálkna­firði en ekki úti á rúm­sjó og eiga þau jákvæðu, sjálf­bæru áhrif á lax­eld­is­iðn­að­inn sem félögin telja að aflandseldið feli í sér ekki við á Íslandi. Norska félagið á meiri­hluta í Arn­ar­laxi.

Vill 500 þús­und tonna lands­fram­leiðsluKjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, hefur mælt fyrir 500 þús­und tonna fram­leiðslu á eld­is­laxi á Íslandi.

Upphaf „nýrra tíma“

Samstarf félag­anna var kynnt í lok ágúst, líkt og Stundin greindi frá þá, en hefur nú verið komið á með form­legum hætti.  Í lok ágúst var haft eftir for­stjóra Salmar að sam­vinnan fæli í sér upp­hafið að nýjum tímum í lax­eldi í heim­inum.  Þá sagði hann:  ,,Fjár­fest­ing Salmar í aflandseldi mark­aði upp­hafið að nýjum tíma í fisk­eldi. Við erum mjög glaðir að hefja þetta sam­starf með sterku fyr­ir­tæki eins og Aker. Saman munum við leiða þessa þróun og tryggja sjálf­bæran vöxt út frá for­sendum laxs­ins. Við ætlum að nýta okkur mögu­leika sjáv­ar­ins til að fram­leiða hollan mat, nota staf­ræna og umhverf­is­væna tækni og tryggja, ásamt sam­starfs­að­ilum okkar sem koma fisknum á markað, mat­ar­fram­leiðslu sem er sjálf­bær til fram­tíðar. Saman getum við tekið næsta tækni­skrefið í fisk­eldi í sjó og metn­aður okkar er hnatt­rænn.“

„Við munum lík­lega ekki sjá hefð­bundnar, alveg opnar sjó­kvíar neins staðar árið 2030.“
Atle Eide

Vilja 500 þúsund tonna framleiðslu á Íslandi

Í frétta­til­kynn­ing­unni nú kemur enn fremur fram að nýr stjórn­ar­for­maður í félagi Salmar og Aker um að þróa aflandseldið verði Atle Eide. Hann hefur áður verið stjórn­ar­for­maður Salmar As.  Atle hefur boðað nýja tíma í lax­eldi í gegnum árin og vísað til þró­unar á aflandseldi á laxi. Í við­tali fyrr á árinu sagði Atle að árið 2030 yrðu senni­lega ekki neinar opnar sjó­kvíar í rekstri: „Við munum lík­lega ekki sjá hefð­bundnar, alveg opnar sjó­kvíar neins staðar árið 2030,“ sagði hann. 

Á sama tíma berst Arnarlax fyrir því að stór­auka fram­leiðslu sína í opnum sjó­kvíum á Íslandi. Stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, hefur sagt að félagið vilji „rækta bláu akrana sem finn­ast í efna­hags­lög­sögu lands­ins“, það er að segja firð­ina við Ísland.  „Með 500.000 tonna árs­fram­leiðslu á lax­fiski mætti marg­falda útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða og fylgja þar með far­sælli veg­ferð vina­þjóða okkar [Noregs og Færeyja].“ 

Í frétta­til­kynn­ing­unni í morgun segir Gustav Witzoe hins vegar að eig­endur Salmar Aker Ocean hlakki til að þróa lausnir í aflandseldi. „Salmar Aker Ocean, og eig­endur þess, hlakka til að sam­ein­ast um að þróa aflandseldi sem mik­il­vægan þátt­tak­anda í því til fram­tíðar að bjóða upp á heil­brigðar sjáv­ar­af­urðir um allan heim.“

Miðað við þetta er Salmar AS að segja að aflandseldið sé fram­tíðin í grein­inni og að sjó­kvía­eldið, sem meðal ann­ars Arnarlax stundar á Íslandi, sé það ekki þrátt fyrir að fyr­ir­tækið vilji að 500 þús­und tonn verði fram­leidd í fjörðum Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
6
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár