Þetta þurfa hluthafar að gera til að fá upplýsingar um leynda eigendur Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Þetta þurfa hlut­hafar að gera til að fá upp­lýs­ingar um leynda eig­endur Íslands­banka

Flest bendir til að hlut­haf­alisti Íslands­banka verði ekki birtur eftir opin­berum leiðum. Íslands­banki segir að birt­ing list­ans brjóti gegn lögum. Þar af leið­andi mun hið opin­bera ekki vera milli­liður í því að greint verði frá því hvaða aðilar keyptu hluta­bréf í Íslands­banka í síð­ustu viku. Útboðið hefur verið harð­lega gagn­rýnt, meðal ann­ars af Kristrúnu Frosta­dóttur, þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar. Banka­sýsla Íslands birti skýrslu um útboðið í morgun þar sem fram kemur að 140 óþekktir einka­fjár­festar hafi keypt 30 pró­sent bréf­anna í útboð­inu.
Bjarni segist vilja birta allan hluthafalista Íslandsbanka ef lög leyfa
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist vilja birta allan hlut­haf­alista Íslands­banka ef lög leyfa

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra vill að Íslands­banki birti allan hlut­haf­alista bank­ans ef lög heim­ila það. Þetta sagði Bjarni í þing­ræðu um útboð rík­is­ins á hluta­bréfum í Íslands­banka í gær. Útboð rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í bank­anum á afslátt­ar­verði hefur verið gagn­rýnt úr ýmsum áttum, meðal ann­ars af með­limum úr stjórn­ar­and­stöð­unni. Íslands­banki seg­ist ekki mega afhenda hlut­haf­alist­ann til opin­berrar birt­ingar.
Kristrún segir brýnt að upplýsa hverjir fengu að kaupa í Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Kristrún segir brýnt að upp­lýsa hverjir fengu að kaupa í Íslands­banka

Kristrún Frosta­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, spyr að því hvaða litlu aðilar það voru sem fengu að kaupa hluta­bréf í Íslands­banka í nýaf­stöðnu hluta­fjár­út­boði bank­ans. Öfugt við útboðið sem fór fram á bréfum Íslands­banka síð­ast­liðið sumar, þar sem allir gátu keypt fyrir ákveðna upp­hæð, voru 430 fjár­festar valdir til að taka þátt í þessu útboði.
Ríkistjórnin segir afstöðuna til Norðurskautaráðs vera skýra vegna Úkraínustríðsins
FréttirÚkraínustríðið

Rík­i­s­tjórnin segir afstöð­una til Norð­ur­skauta­ráðs vera skýra vegna Úkra­ínu­stríðs­ins

Forsætis- og utan­rík­is­ráðu­neytið segir að afstaða rík­is­stjórnar Íslands til þátt­töku Íslands í starfi Norð­ur­skauta­ráðs liggja fyrir. Ráðu­neytin segja að rök­semdir gegn því að sex af sjö þjóðum í ráð­inu leggi niður vinnu í því vegna stríðs­ins í Úkraínu breyti engu þar um. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, lýsti slíkum sjón­ar­miðum nýlega í við­tali þó hann segi að ekki sé um að ræða sínar per­sónu­legu skoð­anir.
Lamaðist af ótta þegar mætt var heim til hennar eftir hótanir: „Ég hefði ekki getað bjargað lífi mínu“
Fréttir

Lamaðist af ótta þegar mætt var heim til hennar eftir hót­anir: „Ég hefði ekki getað bjargað lífi mínu“

Edda Falak, stjórn­andi hlað­varps­þátt­anna Eigin Konur seg­ist hafa orðið magn­þrota af hræðslu þegar barið var ítrekað á úti­hurð­ina heima hjá henni og dyra­bjöll­unni hringt margoft að kvöldi til. Sama dag hafi hún greint opin­ber­lega frá líf­láts­hót­unum. Nú taki hún slíkum hót­unum alvar­lega. Edda segir frá þessu í hlað­varps­þætti sínum og spilar upp­töku af sam­skiptum sínum við lög­regl­una.
Blaðamenn tilnefndir fyrir umfjöllun sem gerði þá að sakborningum
Fréttir

Blaða­menn til­nefndir fyrir umfjöllun sem gerði þá að sak­born­ingum

Stundin hlýtur þrjár af tólf til­nefn­ingum til blaða­manna­verð­launa í ár. Freyr Rögn­valds­son og Margrét Mart­eins­dóttir eru til­nefnd fyrir umfjöllun árs­ins og Ingi Freyr Vil­hjálms­son fyrir við­tal árs­ins, en Aðal­steinn Kjart­ans­son er til­nefndur sem blaða­maður árs­ins, meðal ann­ars fyrir umfjöllun sem lög­reglan á Norð­ur­landi eystra gerði að til­efni til að veita honum og fleiri blaða­mönnum stöðu sak­born­ings.

Mest lesið undanfarið ár