Bjarni segist ekki „vera mikið inni í“ fjárfestingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist ekki „vera mikið inni í“ fjár­fest­ingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stýrði fjár­fest­ingum föður síns Bene­dikts Sveins­sonar á árunum fyrir hrunið 2008. Þá var Benedikt umsvifa­mik­ill fjár­festir í olíu­fé­lag­inu Esso, síðar N1, Kynn­is­ferðum, Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Glitn­is­skjölin árið 2017 sýndu hvernig það var Bjarni sem stýrði þessum fjár­fest­ingum sam­hliða þing­mennsku sinni. Nú hefur komið í ljós að fjár­fest­ing­ar­fé­lag föður Bjarna keypti hluta­bréf í lok­uðu útboði á vegum íslenska rík­is­ins og seg­ist ráð­herr­ann ekki hafa vitað af því.
Faðir fjármálaráðherra á meðal þeirra sem fengu að kaupa í Íslandsbanka
FréttirSalan á Íslandsbanka

Faðir fjár­mála­ráð­herra á meðal þeirra sem fengu að kaupa í Íslands­banka

Listinn yfir kaup­endur í Íslands­banka var birtur rétt í þessu þrátt fyrir and­stöðu Banka­sýslu rík­is­ins. Þekkt nöfn eru tengd félögum á list­anum, sem komu að bank­anum fyrir hrun. Meðal ann­ars Þor­steinn Már Bald­vins­son, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir og Benedikt Sveins­son, faðir fjár­mála­ráð­herra. Listinn er birtur hér í heild.
Íslandsbanki: Setja þarf lög til að eigendur megi afrita hlutalistann
FréttirSalan á Íslandsbanka

Íslands­banki: Setja þarf lög til að eig­endur megi afrita hluta­list­ann

Íslands­banki segir að setja þurfi lög til að bank­inn geti heim­ilað hlut­höfum að afrita hlut­hafa­skrá félags­ins. Í svari bank­ans segir að jafn­vel þó lögum verði breytt í þessa veru þá komi per­sónu­vernd­ar­lög mögu­lega í veg fyrir slíka afritun. Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son hafa kallað eftir því að hlut­haf­alist­inn verði birtur og er nú beðið eftir svari frá Banka­sýslu rík­is­ins um það.
Maðurinn sem vildi fá að vita hverjir keyptu í Íslandsbanka
FréttirSalan á Íslandsbanka

Maðurinn sem vildi fá að vita hverjir keyptu í Íslands­banka

Lítill hlut­hafi í Íslands­banka heim­sótti bank­ann af því hann vildi kom­ast að því hverjir keyptu hluta­bréf af íslenska rík­inu í nýliðnu útboði. Maðurinn fékk ekki að skoða hlut­haf­alist­ann sjálfur heldur var starfs­maður bank­ans með honum allan tím­ann. Hann fékk heldur ekki að afrita list­ann eða taka af honum myndir. For­sæt­is­ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir, hefur kallað eftir laga­breyt­ingum til að hægt verði að greina frá því hverjir keyptu í útboð­inu.
Katrín segir afsökunarbeiðni Sigurðar Inga nægja
Fréttir

Katrín segir afsök­un­ar­beiðni Sigurðar Inga nægja

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra segir rasísk ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar um Vigdísi Häsler óásætt­an­leg en að hann hafi beðist afsök­unar með mjög skýrum hætti. Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata segir ummælin telj­ast áreitni í skiln­ingi laga. Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar segir ljóst að for­dómar grass­eri á öllum stigum sam­fé­lags­ins líka við rík­is­stjórn­ar­borðið.

Mest lesið undanfarið ár