Hryllingurinn í Bucha sem Rússar segja sviðsettan

Borg­ar­stjór­inn í Bucha segir að Rússum verði aldrei fyr­ir­gefið. Lík lágu á götum borg­ar­innar og í fjölda­gröf nærri kirkju bæj­ar­ins. Rússar hneyksl­ast og segja voða­verkin svið­sett. Myndir af aðstæðum í Bucha sem fylgja frétt­inni geta vakið óhug.

Hryllingurinn í Bucha sem Rússar segja sviðsettan
Á götum Bucha Starfs­menn borg­ar­innar í Bucha bera lík íbúa í lík­poka. Í for­grunni sést lát­inn maður í borg­ara­legum klæðum. Af aðstæðum að dæma hefur hann verið að sækja kart­öflur. Rússnesk stjórn­völd hafna alger­lega ábyrgð á fjöldamorð­unum í Bucha á her­setu­tíma þeirra. Mynd: Sergei SUPINSKY / AFP

„Við munum aldrei fyr­ir­gefa Rússum fyrir hryll­ing­inn sem átti sér stað hér,“ segir Anatoly Fedoruk, borg­ar­stjór­inn í Bucha, norð­vestur af úkra­ínsku höf­uð­borg­inni Kyiv. Lík almennra borg­ara lágu í tuga­tali á götum borg­ar­innar eftir að rúss­neskar her­sveitir hörf­uðu frá því sem Rúss­lands­for­seti hefur nefnt „sér­tækri hern­að­ar­að­gerð“ og fólst í alls­herj­ar­inn­rás í Úkraínu.

Rússnesk yfir­völd lýsa ásök­unum og lýs­ingum á því sem gerð­ist í Bucha sem „ögrun“ og „svið­setn­ingu“ af hálfu Úkra­ínu­manna. „Við höfnum skil­yrð­is­laust öllum ásök­unum,“ sagði Dmitry Peskov, tals­maður Kreml, á blaða­manna­fundi í dag. Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti hefur lýst inn­rásinni sem til­raun til að hreinsa Úkraínu af nas­istum.

Utan­rík­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, Josep Borrell, sagði í dag að fjöldamorðin í Bucha og nágrenni yrðu héðan í frá á lista yfir voða­verk sem unnin hafa verið í Evrópu.

Enn ræða vest­ræn yfir­völd að leggja nýjar refsi­að­gerðir á Rússa, en óljóst er hverju þær skila. Þannig hefur rúss­neska rúblan farið langt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Á. skrifaði
    Til er upptaka af bæjarstjóra Bucha sigri hrósandi, Þegar rússar fóru frá borginni og það var ekkert í ræðu hans sem gaf til kynna að rússar hefðu myrt hundruði manna með köldu blóði.
    Einn þeirra sem liggur látinn í götunni, er með hvítt band bundið um vinstri upphandlegg. Það merkir að viðkomandi studdi og fagnaði veru rússa í bænum. Önnur mynd sýnir látna manneskju bundna með hendur fyrir aftan bak með hvítum borða. Önnur manneskja liggur nálægt og þar sést rétt glitta í hvítt á hægri upphandlegg. Þessar þrjár manneskjur voru líklega allar stuðningsmenn rússa.
    Opnumyndin sýnir látna manneskju og það er plastpoki með kartöflum við fætur hennar.
    Aðrar myndir frá Bucha sýna fólk með matarbirgðir sem rússar voru nýbúnir að dreifa til íbúa.
    Úkraínumenn hafa dauðalista yfir fréttamenn sem vinna með rússum og aðra sem eru hliðhollir rússum. Á vef sínum lýsa þeir sérstaklega yfir að þeir muni taka af lífi alla svikara.
    Bucha passar algerlega við þá mynd.
    0
  • Þrymur Sveinsson skrifaði
    Það var rússneskur genráll í miklum metum hjá Alexander II sem hét Mikhail Skobelev. Þegar Rússar tóku að þenja sig út í Kákasushéruðunum og austar eftir Rússnesk - Tyrkenska stríðið 1878 hafði Skobolev yfir bardagavönum her að ráða. Þetta vandamál sem tekið er fram hér að ofan er ekki nýtt af nálinni að óbreyttir hermenn rússahers séu færir um jafn óhugnarlegt kaldrifjað ofbeldi og fjöldamorð eins og raun ber vitni: Það kann að vera að ástæðan fyrir þessu sé ekki jafn tilviljanakennd og hún virðist vera í augum okkar nútímafólks sem höfum almennt lítin áhuga á sagnfræði. Það er mögulegt að þetta athæfi rússahers sem aðilar á borð við Kenneth Øhlenschlæger Buhl tilgreinir séu vísvitandi gerð til að gera rússaher jafn ógnvekjandi og raunin er sé jafnvel hluti metorðastigans innan hersins. Þótt Kreml sverji ódæðin af sér sanna myndir úr gerfihöttum það sem gerðist nýverið í Bucha. Eins yfirþyrmandi þögn Þjóðverja á tímabilinu 1944 - 1960 sem hreinlega öskrar undan ofbeldi rússahers sem beitti nákvæmlega sama bragðinu. Ekkert nýtt undir sólini í strúktúr rússahers.
    "Memory Day marks a black moment in the history of the Turkmen; their disastrous defeat at the fortress of Geok-Tepe in 1881. The battle was the last major battle tsarist forces would fight against the Turkmen and the area that is now Turkmenistan would remain under Moscow's control from then until 1991.
    Skobelev came much better prepared for the assault than his predecessor had in 1879 but the deciding event was on January 12, 1881 when Russians tunneled under the fortress wall and planted explosives that blew out a huge section of the defensive structure. Russian troops rushed through the breach, killing some 6,500 people in the city and then chasing down and killing some 8,000 more who fled.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár