Bankasýslan seldi verðbréfafyrirtækjum sjálfdæmi við sölu hlutabréfa í Íslandsbanka
ViðskiptiSalan á Íslandsbanka

Banka­sýslan seldi verð­bréfa­fyr­ir­tækjum sjálf­dæmi við sölu hluta­bréfa í Íslands­banka

For­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins, Jón Gunnar Jónsson, segir að treysta þurfi bönkum og verð­bréfa­bréfa­fyr­ir­tækjum sem sjá um útboð á hluta­bréfum fyrir íslenska ríkið. Fjár­mál­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands rann­sakar nú þá aðila sem sáu um útboð rík­is­ins. Út frá svörum banka­sýsl­unnar er ljóst að bank­arnir og verð­bréfa­fyr­ir­tækin stýrðu því hverjir fengu að kaupa hluta­bréf rík­is­ins í Íslands­banka.
Trúnaðarmenn Eflingar:  Sólveig Anna fer með fleipur um að samkomulag hafi náðst
FréttirBaráttan um Eflingu

Trún­að­ar­menn Eflingar: Sólveig Anna fer með fleipur um að sam­komu­lag hafi náðst

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fund­aði ekki sjálf með trún­að­ar­mönnum starfs­manna á skrif­stofu Eflingar heldur fól lög­manni stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins að gera það. Trún­að­ar­menn mót­mæla því að um sam­ráð við þá hafi verið að ræða við fram­kvæmd hóp­upp­sagnar starfs­manna Eflingar.
„Fagfjárfestar“ sem keyptu hlutabréf í Íslandsbanka líka skilgreindir sem „almennir fjárfestar“
FréttirSalan á Íslandsbanka

„Fag­fjár­festar“ sem keyptu hluta­bréf í Íslands­banka líka skil­greindir sem „almennir fjár­festar“

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar skil­greina önnur verð­bréfa­fyr­ir­tæki suma af þeim fjár­festum sem tóku þátt í útboði rík­is­ins í Íslands­banka sem almenna fjár­festa en ekki fag­fjár­festa. Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) getur kallað eftir listum frá verð­bréfa­fyr­ir­tækjum um hvernig við­skipta­vinir þeirra eru skil­greindir. Mögulegt er að skil­grein­ingum verð­bréfa­fyr­ir­tækj­anna á þessum við­skipta­vinum hafi verið breytt til þess að selja þeim hluta­bréfin í Íslands­banka með afslætti.
Fráfarandi forseti sveitarstjórnar Múlaþings gefur ekki upp hvort hann ætli að vinna fyrir laxeldisfyrirtæki
ViðskiptiLaxeldi

Frá­far­andi for­seti sveit­ar­stjórnar Múla­þings gefur ekki upp hvort hann ætli að vinna fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tæki

Gauti Jóhann­es­son, frá­far­andi for­seti sveit­ar­stjórnar Múla­þings á Aust­ur­landi, segir að hann telji að hann þurfi ekki að gefa það upp, þó hann sé kjör­inn full­trúi, hvort hann ætli sér að hefja störf fyrir lax­eld­is­fyr­ir­tæki á Aust­ur­landi. Gauti var meðal ann­ars í við­tali í Spegl­inum á RÚV á þriðju­dag­inn þar sem hann ræddi lax­eldi og skipu­lags­mál og þá kröfu Múla­þings að fá óskorað vald til að skipu­leggja sjó­kvía­eldi í fjörðum sveit­ar­fé­lags­ins.
Þetta eru útgerðarmennirnir sem keyptu í Íslandsbanka
FréttirSalan á Íslandsbanka

Þetta eru útgerð­ar­menn­irnir sem keyptu í Íslands­banka

All­nokkrir starf­andi útgerð­ar­menn og eig­endur útgerða eru beint eða óbeint á list­anum yfir þá fjár­festa sem keyptu hluta­bréf í Íslands­banka af íslenska rík­inu í lok mars. Þetta eru Björgólfur Jóhannssson, Guðrún Lár­us­dóttir, Jakob Valgeir Flosason, Þor­steinn Krist­jáns­son, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Gunnþór Ingvason meðal ann­arra.
Bjarni segist ekki „vera mikið inni í“ fjárfestingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun
FréttirSalan á Íslandsbanka

Bjarni seg­ist ekki „vera mikið inni í“ fjár­fest­ingum föður síns: Stýrði þeim fyrir hrun

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, stýrði fjár­fest­ingum föður síns Bene­dikts Sveins­sonar á árunum fyrir hrunið 2008. Þá var Benedikt umsvifa­mik­ill fjár­festir í olíu­fé­lag­inu Esso, síðar N1, Kynn­is­ferðum, Glitni, Icelandair og fleiri félögum. Glitn­is­skjölin árið 2017 sýndu hvernig það var Bjarni sem stýrði þessum fjár­fest­ingum sam­hliða þing­mennsku sinni. Nú hefur komið í ljós að fjár­fest­ing­ar­fé­lag föður Bjarna keypti hluta­bréf í lok­uðu útboði á vegum íslenska rík­is­ins og seg­ist ráð­herr­ann ekki hafa vitað af því.

Mest lesið undanfarið ár