Þorsteinn Már hefur safnað 24 milljarða króna eignum í félagi sínu

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur safnað miklum auð­æfum í eign­ar­halds­fé­lagi sínu. Áætlað hefur hann hagn­ast per­sónu­lega um tæp­lega 1,8 millj­arða króna á veiðum sem byggja á mútu­greiðslum.

Þorsteinn Már hefur safnað 24 milljarða króna eignum í félagi sínu
Þor­steinn Már Bald­vins­son For­stjóri Samherja situr á 24 millj­örðum króna í gegnum eign­ar­hald sitt í Samherja. Mynd: Haraldur Guðjónsson

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og stærsti eig­andi Samherja, hefur á und­an­förnum árum safnað gríð­ar­legum auði. Þor­steinn Már á um 24 millj­arða króna eignir í gegnum félag sitt, og má áætla að hann hafi per­sónu­lega hagn­ast um tæp­lega 1,8 millj­arða króna af veiðum Samherja við Namibíu, sem byggðu á stór­felldum mútu­greiðslum til þeirra sem hafa vald til að úthluta kvóta í land­inu.

Þorsteinn á 24 milljarða króna

Opin­berar tekjur Þor­steins segja lítið um raun­veru­lega eigna­söfnun hans. Þannig gáfu tekju­skrár Rík­is­skatt­stjóra til kynna að í fyrra hafi Þor­steinn fengið 3,9 millj­ónir króna í launa­tekjur á mán­uði og rúmar fjórar millj­ónir króna á mán­uði í fjár­magnstekjur. Þessar tekjur segja aðeins litla sögu, þar sem raun­veru­leg eigna­söfnun á sér stað inni í eign­ar­halds­fé­lagi hans.

Einungis á síð­asta ári juk­ust eignir Eign­ar­halds­fé­lags­ins Steins ehf. um níu millj­arða króna. Þor­steinn Már á 51 pró­sent í eign­ar­halds­fé­lag­inu og fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, Helga S. Guð­munds­dóttir, á 49 pró­sent. Af 48 millj­arða króna eignum félags­ins á Þor­steinn því per­sónu­lega til­kall til ríf­lega 24 millj­arða króna.

Áætlað er að hagn­aður Samherja af Namib­íu­veið­unum hafi verið um 10 millj­arðar króna á tíma­bil­inu 2012 til 2018. Að gefnum end­an­legum eign­ar­hlut Þor­steins hefur hann hagn­ast per­sónu­lega um 1,77 millj­arða króna vegna Namib­íu­veið­anna, sem urðu fyrir til­stuðlan mútu­greiðslna.

Skella skuldinni á uppljóstrara

Tveir namibískir ráð­herrar hafa sagt af sér eftir að fjallað var um mútu­greiðslur til þeirra frá Samherja í sam­starfi Wikileaks, Stund­ar­innar, Kveiks og Al Jazeera. Auk þess hefur verið fjallað um málið í namibíska dag­blað­inu The Namibian. Ráð­herr­arnir og aðilar tengdir þeim höfðu fengið mútu­greiðslur frá Samherja upp á meira en millj­arð króna, að hluta til í gegnum aflands­fé­lög. Annar ráð­herr­anna sem sögðu af sér, dóms­mála­ráð­herr­ann Sacky Shangala, hefur oftar en einu sinni komið til Íslands á vegum Samherja. Samherji bauð auk þess hingað til lands tengda­syni sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans og náfrænda tengda­son­ar­ins, sem stýrði rík­is­fyr­ir­tæk­inu Fishcor, sem aftur lét Samherja fá kvóta. 

Samherji hefur skellt skuld­inni á upp­ljóstr­ar­ann í mál­inu, Jóhannes Stef­áns­son, sem stýrði starf­sem­inni í Namibíu. 

„Okkur er illa brugðið,“ sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son í yfir­lýs­ingu í gær­kvöld. „Ekki ein­ungis við það að Jóhannes stað­hæfi að hann hafi tekið þátt í starf­semi af því tagi sem hann lýsir en ekki síður að hann skuli einnig beina ásök­unum sínum að fyrrum sam­starfs­fólki sínu hjá Samherja. Þetta eru ekki vinnu­brögð sem við könn­umst við.“

Gögn sýna hins vegar að Samherji greiddi mörg hund­ruð millj­ónir króna í mútur, meðal ann­ars 280 millj­ónir króna frá Kýp­ur­fé­lögum Samherja, eftir að Jóhannes hætti störfum, auk þess sem greiðsl­urnar voru mest­megnis fram­kvæmdar í gegnum félög sem Jóhannes hafði ekki pró­kúru fyrir. 

Jóhannes segir í sam­tali við Stundina að Þor­steinn Már hafi að stórum hluta skipu­lagt mútu­greiðsl­urnar. „Hann veit allt og ekk­ert ger­ist án hans sam­þykkis.“ Í skýrslu sem KPMG gerði um starf­semi Samherja kom fram að Þor­steinn væri „mið­punktur fyr­ir­tæk­is­ins“. Þá eru mörg dæmi um að Þor­steinn hafi fundað með mútu­þeg­unum, á Íslandi sem og í Namibíu.

Sjá umfjöllun Stund­ar­innar um mútu­greiðsl­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár