Samherji stundar stórfelldar mútugreiðslur - Stundin og Kveikur fjalla um málið

Samherji hefur greitt yfir milljarð króna í mútur til embættis- og stjórn­málamanna í Namibíu til þess að komast yfir fisk­veiðikvóta.

Þorsteinn Már Baldvinsson
Þor­steinn Már Bald­vins­son For­stjóri Samherja Mynd: Morgunblaðið/Kristinn

Útgerðar­félagið Samherji stundar stór­felldar mútu­greiðslur til stjórn­mála- og embættis­manna í Afríku­ríkinu Namibíu til þess að ná undir sig fisk­veiðikvóta. Samherji, sem er umsvifa­mesta útgerðar­félag Íslands með um 111 milljarða króna eigið fé, hefur greitt á annan milljarð króna í mútur á síðustu árum.

Stundin birtir í kvöld víðtæka umfjöllun um mútu­greiðslur og skatta­skjóla­viðskipti Samherja í sérútgáfu. Umfjöllunin er unnin í samstarfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera. Birtingin er samhliða umfjöllun Kveiks á Rúv um málið. 

Í umfjöllun Stundarinnar er lýst flóknu neti skatta­skjóla­viðskipta Samherja. Félagið hefur meðal annars greitt háar fjárhæðir í mútur í gegnum aflandsfélög. 

Fyrsti hluti umfjöllunar Stundarinnar birtist klukkan 20.05 í kvöld, um leið og þáttur Kveiks um málið hefst á Rúv. Klukkan 21.10 verður síðan rafræn útgáfa Stundarinnar aðgengileg. Í fyrra­málið berst prent­útgáfa Stundarinnar til áskrifenda og í verslanir.

Umfjöllun Stundarinnar má nálgast hér.

Fyrsta grein Stundarinnar um málið birtist hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verjanna tuttugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólöglegrar uppsagnar Samherja­félags í Namibíu, kallar eftir því að Íslendingar axli ábyrgð á framkomu sinni í Namibíu. Það standist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af málinu. Forstjóri Samherja lofaði því að fyrir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bindingar og sérstak­lega hugað að sjómönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár