Hermenn í Jemen Her­sýn­ing upp­reisn­s­ar­sveita sem hlið­hollar eru Sádí-Arabíu í Jemen.

Stríðsástand við Persaflóa

Ný stríðs­á­tök við Persaflóa virð­ast nán­ast óhjá­kvæmi­leg eftir skæðar árásir á olíu­vinnslu­stöðvar í Sádi-Arabíu. Árás­irnar drógu veru­lega úr fram­leiðslu­getu og hækk­uðu strax heims­mark­aðs­verð olíu. Írönum er kennt um og Trump Banda­ríkja­for­seti seg­ist aðeins bíða eftir grænu ljósi frá Sádum til að blanda sér í átökin.

Ára­tuga­langt valda­tafl Sádi-Araba og Írana hefur náð suðu­punkti en deilur þjóð­anna eru flókin blanda af trú­ar­brögðum, ólíkum efna­hags­legum hags­munum og valdapóli­tík. 

Hvað trú­ar­brögð varðar er skemmst frá því að segja að í Sádi-Arabíu styðj­ast yfir­völd og allur almenn­ingur við afar stranga og forn­eskju­lega túlkun á þeirri hefð sem kennd er við Súnní-Íslam. Þessi túlkun kall­ast Sala­fismi og er sama hug­mynda­fræði og hryðju­verka­sam­tök á borð við al Kaída og ISIS taka sér til fyr­ir­myndar, enda koma margir helstu bak­hjarlar þeirra frá Sádi-Arabíu. 

Hatur á villu­trú­ar­mönnum er fyr­ir­ferð­ar­mikið í boð­skap Sala­fista og eru þeir sér­stak­lega upp­teknir af andúð sinni á þeim skóla íslam sem kall­ast Sjía-Íslam. Mikilli meiri­hluti íbúa Írans fylgja Sjía-Íslam og þar­lend stjórn­völd eru undir þumli klerka frá þeim skóla. Fyrir vikið má segja að átök kon­ung­anna í Sádí og klerk­anna í Íran séu óhjá­kvæmi­leg, auk þess sem þjóð­irnar hata hvor aðra á mjög djúp­stæðan hátt. 

Það …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár