Berjast fyrir mann­úð­legra kerfi Kolbrún og Gunnar segja að for­dómar gagn­vart fólki með fíkni­sjúk­dóma hafi í raun dregið Loft bróður hennar til bana. Það hafi ekki verið hlustað á hann þegar hann leit­aði sér aðstoðar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sjúklingar smánaðir og niðurlægðir

Eftir frá­fall frænku sinnar fór Margrét Mart­eins­dóttir að spyrj­ast fyrir hvort aðrir hefðu upp­lifað það sama og hún, for­dóma gagn­vart fólki með fíkni­sjúk­dóma. Og jú, fólk sem hefur glímt við fíkni­sjúk­dóma, aðstand­endur þess og fag­fólk sam­mæl­ast öll um að for­dóm­arnir séu ekki aðeins til staðar heldur koma þeir í veg fyrir að fólk sæki sér aðstoð, fái hjálp­ina sem það þarfn­ast og geti stigið aftur inn í sam­fé­lagið. Umræðan um flottu krakk­ana og svona fólk sé meið­andi, því allir ein­stak­lingar séu jafn dýr­mætir, hvaðan sem þeir koma og hversu langt leiddir sem þeir eru.

Í byrjun ágúst árið 2015 fékk ég sím­tal frá félags­ráð­gjafa sem sagð­ist vera fyrir utan bráða­mót­tök­una í Fossvogi og með henni væri kona sem væri nú skjól­stæð­ingur hennar. Hún hafði orðið fyrir ofbeldi og læknir sem skoð­aði hana segði að það þyrfti að mynda áverk­ana, „en hún fór út og fæst ekki til að koma með mér aftur inn á spít­al­ann,“ sagði ráð­gjaf­inn. „Hún vill tala við þig.“ Ástvina mín kær, sem var þá mjög veik af fíkni­sjúk­dómi, sagði þegar hún kom í sím­ann að hún ætl­aði ekki aftur inn á deild­ina, þar hefði verið talað við sig af lít­ils­virð­ingu. Hún var svo róleg og ég átt­aði mig á að hún var að gef­ast upp. Ég reyndi samt að sann­færa hana um að fara aftur inn, hún yrði að láta líta betur á sig, hvort hún vildi gera það barn­anna sinna vegna, mín vegna? Þá beygði hún af og bað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár