Siðanefnd segir að skilja megi ummæli Sigmundar Davíðs sem hæðni gagnvart þolendum kynferðisofbeldis

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er ekki tal­inn hafa brotið gegn siða­reglum alþing­is­manna með ummælum sínum á Klaustri bar. Siða­nefnd telur hann þó taka undir orð­færi Bergþórs Ólasonar og Gunnars Braga Sveins­sonar um konur.

Siðanefnd segir að skilja megi ummæli Sigmundar Davíðs sem hæðni gagnvart þolendum kynferðisofbeldis
Gunnar Bragi, Sig­mundur Davíð og Bergþór Siða­nefnd telur Sigmund Davíð hafa tekið undir með sam­flokks­mönnum sínum.

Siða­nefnd Alþingis telur Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Mið­flokks­ins, hafa tekið undir van­virð­andi orð­færi sam­flokks­manna sinna um konur. Í áliti sínu segir nefndin að skilja megi orð hans sem hæðni gagn­vart þolendum kyn­ferð­is­of­beldis.

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er sú að Sig­mundur Davíð hafi ekki gerst brot­legur við siða­reglur alþing­is­manna vegna þeirra orða sem hann lét falla á Klaust­urs­upp­tök­unum. Í áliti nefnd­ar­innar, sem birt var á mbl.is í morgun, segir að það hafi ekki verið talin þörf á að meta hvert og eitt atriði í ummælum Bergþórs Ólasonar og Gunnars Braga Sveins­sonar, þar sem þau væru öll af sömu rót­inni sprottin. „Þau eru ósæmi­leg og í þeim felst van­virð­ing er lýtur að kyn­ferði þeirra kvenna sem um er rætt. Siða­nefnd telur þau einnig til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess, auk þess sem þau sýna Alþingi, stöðu þess og störfum ekki virð­ingu.“

Á Klaust­urs­upp­tök­unum mátti heyra þing­menn­ina gant­ast með að Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefði reynt að „nauðga“ þeim, ann­ars vegar á herra­kvöldi íþrótta­fé­lags­ins Vestra og hins vegar í sam­komu­hús­inu í Hnífsdal. Segjast þeir hafa orðið fyrir áreitni og kyn­ferð­is­broti í and­mæla­bréfum sínum til siða­nefndar.

Sig­mundur Davíð tók þátt í þessum umræðum og sagði meðal ann­ars:

„Það voru ýmsir sem sögðu „take one for the team“ en Beggi var ekki til.“

„Þessir menn munu aldrei ná bata nema þeir opni sig, og það í opnu­við­tali.“

„Þið sjáið að þessir menn þurfa stuðn­ing, skiln­ing og stuðn­ing.“

„Já, ég meina það [áfengi] er oft besta leiðin til að takast á við svona.“

„Ef menn vilja vera með í nútím­anum þá fara þeir í við­tal á DV.“

Siða­nefndin telur að ummæli Bergþórs og Gunnars Braga hafi verið alvar­leg. „Fram­an­greind ummæli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar verður að meta með hlið­sjón af því að þau eru sögð í beinum tengslum við yfir­lýs­ingar þeirra um kyn­ferð­is­lega áreitni og til­raun til nauðg­unar,“ segir í álit­inu. „Með þeim tekur hann þátt í umræð­unum og virð­ist taka undir orð­færið í garð Albertínu Frið­bjargar Elí­as­dóttur.“

Telur siða­nefnd að Sig­mundur Davíð skuli njóta vafans varð­andi þau ummæli sem féllu fyrst í umræð­unum áður en ljóst varð um hvern var rætt. „Í öðrum ummælum virð­ist vera ákveð­inn und­ir­tónn sem skilja má sem hæðni gagn­vart þolendum kyn­ferð­is­of­beldis. Siða­nefnd telur þau þó of almenn til þess að meta þau and­stæð siða­reglum.“

Loks eru nefndar athuga­semdir Sig­mundar Davíðs í umræðum um útlit Írisar Róberts­dóttur, bæj­ar­stjóra Vest­manna­eyja­bæjar. Hafði þá Bergþór Ólason sagt: „Nú ætla ég að segja eitt sem er nátt­úru­lega mjög dóna­legt, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan. Það er ótrú­legur munur.“

Lét Sig­mundur Davíð eft­ir­far­andi ummæli falla í þessu sam­bandi: „Og á þeim for­sendum segi ég að hún hrynji niður list­ann.“

Telur siða­nefndin að ummæli Bergþórs um Írisi lýsa til­teknum við­horfum til ungra kvenna í stjórn­málum. „Fram­an­greind ummæli Sig­mundar Davíðs verður að meta með hlið­sjón af því að þau eru sögð í beinum tengslum við þau ummæli. Hann tekur þátt í umræð­unum og tekur þannig undir orð­færi Bergþórs Ólasonar í garð Írisar Róberts­dóttur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár