Gunnar Bragi og Bergþór brutu siðareglur með þessum ummælum

Ummælin sem siðanefnd Alþingis taldi vera brot á siða­reglum og skýringar þeirra Gunnars Braga Sveins­sonar og Bergþórs Ólasonar, sem segjast vera þolendur kynferðis­legs áreitis og ofbeldis. Gunnar Bragi sakar menntamála­ráðherra um að misnota orðið ofbeldis­maður. Siðanefnd telur ummæli þeirra öll af sömu rótinni sprottin og vanvirðandi í garð kvenna.

Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson brutu siða­reglur Alþingis með orðfæri sínu á Klaustri. Í áliti siða­nefndar Alþingis, sem birt var á mbl.is í morgun, segir að það hafi ekki verið talin þörf á að meta hvert og eitt atriði í ummælum Bergþórs og Gunnars Braga, þar sem þau væru öll af sömu rótinni sprottin. „Þau eru ósæmileg og í þeim felst vanvirðing er lýtur að kynferði þeirra kvenna sem um er rætt. Siðanefnd telur þau einnig til þess fallin að kasta rýrð á Alþingi og skaða ímynd þess, auk þess sem þau sýna Alþingi, stöðu þess og störfum ekki virðingu.“ 

Samstaða gegn kynbundnu ofbeldi

Er vísað til þess að umræða um jafnrétti, kynbundið og kynferðislegt áreiti, einelti, ofbeldi og aðra vanvirðandi háttsemi af hálfu karla hafi verið í hámæli undan­farin misseri. Konur í mismun­andi starfs­stéttum hafi greint frá slíkri reynslu hér á landi og fjöldi frásagna borist í tengslum við #MeToo.

 „Þau eru ósæmileg og í þeim felst vanvirðing er lýtur að kynferði þeirra kvenna sem um er rætt“

Alþingis­menn hafi sýnt viðleitni til þess að styðja þá umræðu, meðal annars með áskorun til forsætis­nefndar Alþingis að halda ráðstefnu í formi rakara­stofu þar sem karlar voru hvattir til þátttöku í barátt­unni gegn ofbeldi og eins með sérstakri umræðu á Alþingi um #MeToo. „Ræðumenn fordæmdu einróma ríkjandi ástand og áréttuðu mikilvægi þess að karlmenn hefðu frumkvæði að bættu hugarfari meðal karla og stuðluðu þannig að betra samfélagi. Var rík samstaða meðal ræðumanna um að hafna hvers konar ofríki og ofbeldi í garð kvenna.“

Í kjölfarið hafi verið gerðar breytingar á siða­reglum Alþingis, með það að marki að stuðla að öruggu og heil­brigðu starfs­umhverfi innan þingsins, þar sem áreitni og vanvirðandi framkomu væri hafnað.  

Ummæli Bergþórs og skýringar eru eftirfarandi: 

Húrrandi klikkuð kunta 

Um Ingu Sæland, alþingis­mann og formann Flokksins: „[…] þið eruð með þessa húrrandi klikkuðu kuntu sem formann Flokks fólksins, sem þið ráðið ekkert við. Þið ráðið ekkert við hana. Segið mér ef ég hef rangt fyrir mér. Ég mundi ekki ráða við hana, Sigmundur mundi ekki. Hún er fokking tryllt. […]“ 

„Eins og fram hefur komið opinber­lega, þá hef ég beðið Ingu Sæland fyrirgefningar vegna ummæla minna um hana og Inga af stór­mennsku veitt mér hana. Svona á maður ekki að tala um fólk. Ekki einu sinni pólitíska andstæðinga,“ segir í bréfi Bergþórs til forsætis­nefndar þar sem hann gefur skýringar á þeim ummælum sem siðanefnd Alþingis taldi brot á siða­reglum. 

Segir nefndina refsa þolendum

Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur alþingis­mann vændi Bergþór Ólason um kynferðis­lega áreitni og tilraun til nauðgunar, og sagði meðal annars.: „Hún var að tosa buxurnar af hælunum á mér […] Ég vakna úr nærbuxunum.“ 

„Þetta er sú þingkona sem hélt lengstu MeToo ræðuna. Og við sátum bara „what the fuck is going on.““

 „Ég mun segja, ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér í alvöru?“ 

Bergþór sagði í bréfi til forsætis­nefndar, að hann hefði hvorki dregið orð sín um Albertínu til baka, né beðist afsökunar á þeim sérstak­lega. Hér sé hann útmálaður sem gerandi, þegar raunin sé önnur. „En að svo skuli nefnd Alþingis ætla sér að nýta þann glæp til að refsa þolendum brotsins og um leið þolendum kynferðis­brots hryggir mig óseigjanlega.“

Segist hafa átt við árangur en ekki útlit 

Um Írisi Róberts­dóttur, bæjar­stjóra Vestmanna­eyja­bæjar, sagði Bergþór: „Nú ætla ég að segja eitt sem er náttúru­lega mjög dónalegt, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var bara fyrir tveimur árum síðan. Það er ótrúlegur munur.“ 

„Það þarf sérstakan vilja til að heyra aðeins kynferðis­legan undirtón í þessum ummælum“

Hér sagði Bergþór að hlutir hefðu verið slitnir úr samhengi. Bæði á undan og eftir tilvitnuðum ummælum hafi fallið hrósyrði um Írisi, þar sem hún  hafi meðal annars verið sögð eldklár. Með því að tala um að hún sé hot, sé ekki átt við útlit hennar eða kynþokka heldur árangur Sjálfstæðis­flokksins í Vestmanna­eyjum, þar sem hún var bæjar­fulltrúi. „Þetta blasir auðvitað við,“ segir í bréfi Bergþórs til forsætis­nefndar. „Það er augljóst í þessu samhengi að það hefur fallið á fram­bjóðandann, hann er ekki „eins hot“ og hann var áður, hann er ekki eins sterkur osfrv. Það þarf sérstakan vilja til að heyra aðeins kynferðis­legan undirtón í þessum ummælum.“

Þá segir hann ummælin „EKKERT“ hafa að gera með viðhorf sín til ungra kvenna í stjórn­málum að gera. „Heldur er ég þarna að lýsa þeim áhrifum sem sérframboð sem hún leiddi, gegn Sjálfstæðis­flokknum í Vestmanna­eyjum, hafði á pólitíska stöðu hennar innan Sjálfstæðis­flokksins. Siðanefndar­fólk þarf að vera með sérstak­lega vanstilltan kompás ef þessi augljósi hlutur nær ekki í gegn hjá þeim, enda er hér um augljósa rökvillu að ræða. Ummæli um eina persónu geta ekki lýst almennu viðhorfi til hóps af fólki. Mætti þá ekki eins segja að ummæli mín lýstu „tilteknu viðhorfi“ til Vestmannaeyinga?“

Grín að góðum vinum 

Um Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menningar­mála­ráðherra sagði Bergþór Ólason: „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asna­eyrunum en hún, sem ég hef ekki fengið að ríða.“ 

„Þarna loksins kom skrokkur sem typpið á mér dugði í.“

„Fyrri ummælin eru augljós­lega sögð í stríðnis­tóni, þar sem gert er grín að góðum vinum sem hafa látið stjórn­málamann teyma sig á asna­eyrunum að mati undir­ritaðs,“ segir Bergþór í bréfi sínu þegar hann útskýrir ummælin um Lilju. Lilja hefur hins vegar sagt að hún líti svo á að þeir séu ofbeldis­menn, sem eigi ekki að fara með dagskrár­vald í íslensku samfélagi. „Í þessu samhengi var notast við tungutak þekktrar sjónvarps­fígúru, sem á flesta mæli­kvarða er talinn full­kominn auli og það gert til að undir­strika stríðnis­tóninn í ummælunum. Í Bretlandi væri þetta kallað „to have a banter“, sem netorðabók skilgreinir sem „playful and friendly exchange of teasing remarks,“ segir Bergþór.  

Hann segist ekki kannast við síðari ummælin. „Ummælin eru í meira lagi undarleg og algerlega úr takti (og raunar alveg úr sambandi) við það samtal sem á sér stað á þessum tíma.“

Ummæli Gunnars Braga og skýringar eru eftirfarandi: 

Stendur við orð sín

Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur alþingis­mann vændi Gunnar Bragi Sveinsson um kynferðis­lega áreitni og tilraun til nauðgunar, og sagði meðal annars: „Ég sagði bara nei […] en það var bara suðað. Þá var bara eins og einhver hefði verið líflátinn. Hún var brjáluð, hún trylltist, hún grenjaði og öskraði. Ég bara hugsaði, hvað, á ég að ríða henni? Það var algjör­lega kreisí.“ 

„Það getur vel verið að við ákveðnar aðstæður, ég ætla ekki að segja hvaða aðstæður, að ég þurfi að labba að henni og segja: Ertu búin að gleyma því þegar þú reyndir að nauðga mér?“

Gunnar Bragi sendi forsætis­nefnd einnig skýringar á orðum sínum. Þar segir hann að um hafi verið að ræða einka­spjall um „hræsni þingkonu“ vegna #MeToo-umræðunnar. Þarna séu „tveir einstaklingar að segja frá misgóðum kynnum sínum af þingkonuninni og hvernig hún áretti þá. Allt það sem þar er sagt stend ég við en vil þó taka fram, líkt og ég gerði við viðkomandi, að notkun á orðinu „nauðgun” var of gróft og var hún beðin afsökunar á þeirri orða notkun.“

Þá sagði hann þetta ekki eina skiptið sem hann „hafði lent í slíku áreiti af hálfu þing­konunnar“ og spyr: „Er nefndin að hvetja til þess að slík mál séu ekki rædd af þing­mönnum við vini eða kunningja ef tilefni er til?“

Sakar Lilju um að misnota orðið ofbeldis­maður

Um Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menningar­mála­ráðherra sagði Gunnar Bragi Sveinsson: „Henni er bara fokking sama um hvað við erum að gera. Hjólum í helvítis tíkina. Það er bara málið. Af hverju erum við að hlífa henni? Ég er að verða brjálaður! Af hverju erum við að hlífa henni?“ 

„Þrátt fyrir að menntamála­ráðherra hafi misnotað orðið ofbeldi í pólitískum tilgangi þá er menntamála­ráðherra fyrst og fremst stjórn­málamaður sem nýtir sín tækifæri“

Í bréfi sínu segist Gunnar Bragi hafa beðist menntamála­ráðherra afsökunar á þessum orðum, sem eigi sér rætur í vonbrigðum og reiði vegna persónu­legs máls. „Það er hins vegar al íslenskt að nota þau orð sem þarna voru höfð uppi og hafa ekki til þessa talist ósiðleg en klárlega skammarorð.

Spyrja má hvort minni­hluti siða­nefndar hefði komist að sömu niður­stöðu ef karlmaður hefði átt í hlut? Ef orðin hundur, asni, drullu­sokkur, gunga og drusla, skítlegt eðli eða eitthvað þaðan af verra hefði verið notað í staðin fyrir orðið „tík”. Á enskri tungu er orðið m.a. notað yfir ófor­skammaða manneskju. Hvort sem okkur líkar betur eða verr þá eru þessi orð og mörg önnur notuð til lýsingar á skoðunum þegar þau eru sögð.

Þá má velta því fyrir sér hvort siða­nefndin eða forsetarnir hafi kynnt sér orðfæri þingmanna í þingsal? Er það mat nefndarinnar og hinna ólöglega kjörnu forseta að það að kalla ráðherra „gungu og druslu” sé í lagi nema það teljist til hefðar að nota slík orð? Mega þingmenn nota slíkt orðfæri?

En þrátt fyrir að menntamála­ráðherra hafi misnotað orðið ofbeldi í pólitískum tilgangi þá er menntamála­ráðherra fyrst og fremst stjórn­málamaður sem nýtir sín tækifæri en er ágætis manneskja,“ segir Gunnar Bragi. 

Segir „galið“ að þeir hafi gert grín að ofbeldi

Um Ragnheiði Runólfs­dóttur, afreks­konu í sundi, sagði Gunnar Bragi Sveinsson: „Já sundkellingin þarna, voruði að lemja hana? [hlátur].“ 

Gunnar Bragi segir „galið“ að nefndin teljið að hér hafi verið gert grín að heimilis­ofbeldi. „Verið var að ræða fyrr­verandi eiginmann þessarar fyrir­myndar konu, en sá starfar nú innan veggja Alþingis. Hún hafði sagt frá ömurlegri reynslu sinni í viðtalið við Akureyri vikublað árið 2017. Af handriti Alþingis er ljóst að tilefni umræðunnar var ekki konan sjálf heldur fyrrum eigin­maður hennar.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár