Ákvað að mæta nauðgara sínum

Bryn­hildur Yrsa Valkyrja Guð­munds­dóttir á að baki langa sögu af ofbeldi, en hún var fyrst beitt kyn­ferð­is­of­beldi í æsku og hefur síðan lent í ýmsu sem hún hefur þurft að vinna úr. Samhliða þeirri vinnu hefur hún hlotið við­ur­kenn­ingar Stíga­móta fyrir bar­áttu sína gegn ofbeldi. Sem kona komin á fimm­tugs­aldur taldi hún að nú væri þessi tími að baki, að ofbeldið til­heyrði for­tíð­inni. Þar til henni var nauðgað á ný, inni á heim­ili sínu nú í vor. Í þetta sinn brást hún öðru­vísi við en áður og ákvað að mæta nauð­gara sínum.

Ákvað að mæta nauðgara sínum

„Sárs­auk­inn er minn og verður minn. Ég má gera allt við hann, hvað sem ég vil,“ segir Bryn­hildur Yrsa Valkyrja, ein­stæð móðir sem kynnt­ist mann­inum sem nauðg­aði henni í gegnum stefnu­móta­appið Tinder. Hún seg­ist nota appið mikið, ekki endi­lega til að verða sér úti um stefnu­mót heldur til að kynn­ast fólki og spjalla við það. „Ég nota þetta líka fyrir femínískan aktí­visma og finnst áhuga­vert að sjá hvaða pæl­ingar eru í höfð­inu á fólki. Mér finnst áber­andi að ungir íslenskir strákar virð­ast vera að upp­lifa miklar breyt­ingar og fá betri fræðslu þannig að þeir vita betur hvað má og hvað má ekki. Á meðan skilja þessir eldri ekk­ert hvað er í gangi, sem er síðan hægt að yfir­færa yfir á útlend­inga, sem skilja ekki hvar mörkin liggja.“ 

Eins og var raunin í hennar til­felli. Bryn­hildur kynnt­ist manni af erlendum upp­runa á Tinder og átti við hann spjall um fót­bolta. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár