Á endanum erum við öll eins

Candice Aþena Jóns­dóttir er trans­kona. Hún var ætt­leidd frá Rúmeníu og var lögð í ein­elti nær alla sína skóla­göngu sem braut hana niður. Hún hefur nokkrum sinnum reynt að svipta sig lífi. Candice leggur áherslu á að á end­anum séum við öll eins og vill að fólk kynni sér hvað það þýðir að vera trans. „Mig langar til að hjálpa öðru fólki sem er að ganga í gegnum þetta með því að segja sögu mína.“

Á endanum erum við öll eins
Finnur fyrir for­dómum Candice Aþena Jóns­dóttir er trans og seg­ist vera litin horn­auga, þó hún taki ekki alltaf eftir því. Stundum fái hún stundum óþægi­leg „skíta­komment“, bæði dags­dag­lega og á djamm­inu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Árið er 1998. Íslensk hjón ætt­leiða tveggja ára gamlan rúm­enskan dreng og gefa honum nafnið Eyjólfur. Eyjólfur Jónsson. Fjöl­skyldan bjó í úthverfi í Reykja­vík.

„Strax í 1. bekk var byrjað að leggja mig í ein­elti af því að ég var öðru­vísi. Ég er dökk,“ segir Candice Aþena Jóns­dóttir. Hún situr með svart, sítt hárið í glamp­andi sól á bekk í úti­garði veit­inga­húss í miðbæ Reykja­víkur. Sígar­ettu­pakki og kveikj­ari á borð­inu fyrir framan hana. Hún vill að tvær vin­konur sínar séu við­staddar við­talið. 

„Mig lang­aði alltaf til að vera stelpa og ein­eltið hófst fyrir alvöru eftir að ég tók þátt í sýn­ingu í 4. bekk og kom fram í dragi, eða stelpu­fötum. Þá vissi ég ekk­ert um kyn­hneigð eða kyn­vit­und. Það var farið að kalla mig ógeðs­legum upp­nefnum og sagt að ég væri „gay“. Ég barð­ist gegn þessu og sagði að ég væri ekki „gay“ af því að ég …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár