Félag Róberts tapar 16 milljörðum en hann er eignamikill í skattaskjólum

Alvotech, lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tæki Róberts Wessman, er með nærri 30 millj­arða nei­kvætt eigið fé en er ennþá í upp­bygg­ing­arfasa. Róbert á hluti í félag­inu og millj­arða króna eignir, meðal ann­ars á Íslandi, í gegnum flókið net eign­ar­halds­fé­laga sem endar í skatta­skjól­inu Jersey.

Félag Róberts tapar 16 milljörðum  en hann er eignamikill í skattaskjólum
Á lyfja­verk­smiðj­una ennþá Róbert Wessmann á ennþá lyfja­verk­smiðj­una í Vatns­mýr­inni fimm árum eftir að til stóð að selja hana. Sölu­hagn­aður eign­ar­innar myndi renna inn í félaga­net hans erlendis sem endar í skatta­skjól­inu Jersey.

Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið Alvotech, sem Róbert Wessman fjár­festir er stór hlut­hafi í gegnum flókið net erlendra fyr­ir­tækja sem mörg hver eru í skatta­skjólum, tap­aði rúm­lega 16 millj­örðum króna í fyrra eins og greint hefur verið frá í íslenskum fjöl­miðlum nú í maí. Róbert Wessman er hins vegar sjálfur eigna­mik­ill í skatta­skjólum í gegnum sama net erlendra fyr­ir­tækja og hann notar til að halda utan um hluta­bréfa­eign sína í Alvotech sem og í móð­ur­fé­lagi þess, sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen. Tekið skal fram að Alvotech er ennþá í upp­bygg­ing­arfasa og hefur ekki enn hafið fram­leiðslu og sölu lyfja en upp­bygg­ing slíkra fyr­ir­tækja er mjög dýr. Þetta skýrir tap­rekstur félags­ins sem og þá stað­reynd að eigið fé Alvotech er nei­kvætt um nærri 3 millj­arða króna. 

Árs­reikn­ingar sumra þeirra erlendu fyr­ir­tækja sem Róbert notar til að halda utan um eign­ar­hald sitt á Alvogen á Íslandi, og á lyfja­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins á háskóla­svæð­inu í Vatns­mýr­inni, eru aðgengi­legir opin­ber­lega. Þessir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskiptafléttur

Eignarhaldi fjölskyldu Hreiðars Más í sjóði Stefnis leynt í gegnum skattaskjól
FréttirViðskiptafléttur

Eign­ar­haldi fjöl­skyldu Hreiðars Más í sjóði Stefnis leynt í gegnum skatta­skjól

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki Hreiðars Más Sig­urðs­sonar og tengdra aðila hefur síð­ast­liðin ár verið í eigu Tortóla­fé­lags sem eig­in­kona hans á. Sjóður í stýr­ingu Stefnis, dótt­ur­fé­lags Arion banka, var form­legur hlut­hafi en á bak við hann er Tortólu­fé­lag. Fram­kvæmda­stjóri Stefnis segir að fyr­ir­tækið hafi ekki vitað hver hlut­hafi sjóðs­ins var.
Skeljungsmálið: Besta leiðin til að eignast fyrirtæki er að vinna við að selja það
GreiningViðskiptafléttur

Skelj­ungs­málið: Besta leiðin til að eign­ast fyr­ir­tæki er að vinna við að selja það

Þrír af sak­born­ing­unum í Skelj­ungs­mál­inu eign­uð­ust lax­eld­is­fyr­ir­tækið Fjarða­lax árið 2013 eftir að tveir þeirra höfðu komið að sölu þess í gegnum Straum. Líkt og í Skelj­ungs­mál­inu högn­uð­ust þre­menn­ing­arnir vel á við­skipt­unum með lax­eld­is­fyr­ir­tækið. Í báðum til­fellum unnu þre­menn­ing­arnir eða hluti þeirra að sölu Skelj­ungs og Fjarða­lax.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár