Mynd: Heiða Helgadóttir

Verið að ræna okkur framtíðinni

Óskar Jónasson leik­stjóri telur list­ina mik­il­vægt bar­áttu­tól við ham­fara­hlýnun. Óskar telur lista­menn geta leikið hlut­verk túlka og miðlað upp­lýs­ingum til almenn­ings á manna­máli.

Óskar Jónasson leik­stjóri telur list­ina mik­il­vægt tæki í bar­átt­unni við ham­fara­hlýnun. Hann telur hlut­verk lista­manna geti verið að túlka vís­inda­legar stað­reyndir og miðlað þeim til almenn­ings á manna­máli. Nýverið leik­stýrði hann þátta­röð­inni „Hvað höfum við gert?“ fyrir RÚV en þætt­irnir fjalla um lofts­lags­vána og hvað við sem mann­eskjur getum gert til að sporna við ham­fara­hlýnun.

Óskari var boðið starfið ekki síst vegna umhverf­is­væns lífs­stíl hans sjálfs. „Ég held að það hafi verið mik­il­vægt fyrir þætt­ina að fólkið sem starf­aði við  þá reyni að lifa eftir þeim. Það veitir öllum sem komu að þeim meiri inn­sýn í umfjöll­un­ar­efnið.“

„Það er verið að leika  á okkur. Ekki aðeins til að  hafa af okkur pen­inga heldur er, ótrú­legt en satt, verið að ræna af okkur  fram­tíð­inni í leið­inni.“

Með þátt­unum vildi Óskar að almenn­ingur sæi sjálfan sig og um leið  hið stóra sam­hengi hlut­anna. „Áhersl­urnar lágu í því að höfða til áhorf­and­ans þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár