Mynd: Reynir Traustason

Undurfagri Nuukfjörður

Reynir Trausta­son fór í ævin­týra­ferð inn Nuuk­fjörð. Græn­lenskur bóndi tal­aði íslensku, ljós­mynd­ar­inn féll í hafið og ægi­feg­urð var við hvert fót­mál.

Báturinn skar haf­flöt­inn á Nuuk-firði á 30 sjó­mílna hraða. Sjórinn var speg­il­sléttur og þokan lá yfir eins og teppi. Útsýni til fjalla var ekk­ert. 

Leið­sögu­mað­ur­innMiiti Geisler gjör­þekkir Nuuk­fjörð og lýsti fyrir gest­unum því sem fyrir augu bar.

„Það birtir þegar við komum innar í fjörð­inn,“ full­yrti Miiti Geisler, versl­ana­eig­andi og mara­þon­hlaup­ari í Nuuk, og upp­lýsti að innst í firð­inum væri gjarnan blíðu­veður, bæði bjart og hlýtt. Hún átti sum­ar­hús í þorp­inu Kapisillit og dvaldi þar þegar hún vildi kom­ast í ró og næði frá hrað­anum og nútím­anum í Nuuk.

Við vorum átta saman á ferð á vegum Ferða­fé­lags Íslands að aðstoða Græn­lend­inga við að stofna Ferða­fé­lag Græn­lands. Hug­myndin hafði orðið til þegar Inga Dóra Guð­munds­dóttir bjó á Íslandi og tók þátt í fjalla­verk­efn­inu Fyrsta skref­inu með mér. Inga Dóra er Íslend­ingur í aðra ætt­ina en Græn­lend­ingur í hina. Móðir hennar er Bene­dikte Thor­steins­son, fyrr­ver­andi félags­mála­ráð­herra á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár