Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ef þú ert ekki skíthæll ertu velkominn um borð“

Bragi Páll Sig­urð­ar­son sá við­skipta­tæki­færi í að kaupa skútu fyrir ferða­menn, sem gæti einnig komið að góðum notum þegar lofts­lags­breyt­ingar skella á. Nú er hann því búinn að smala saman hópi manna úr ólíkum áttum til að sigla skút­unni frá Sikiley til Reykja­víkur. Tveir úr áhöfn­inni hafa aldrei komið nálægt sjó eða sigl­ingum, en með í för eru þeir Almar Atlason í kass­anum, Frank Arthur Blöndahl Cassata og Sigurður Páll Jónsson alþing­is­maður.

Bragi Páll Sig­urð­ar­son rit­höf­undur festi nýverið kaup á skútu og leggur nú í lang­ferð frá Sikiley á Ítalíu og heim á Íslands­strendur. Lengi hefur það verið draumur Braga að eign­ast skútu, en nú tókst honum loks að selja kærust­unni þá hug­mynd að það væri góður bis­ness, að koma skút­unni til lands­ins og leigja út til ferða­manna. Við­skipta­hug­myndin er yfir­varp, segir hann, draum­ur­inn er að sigla skút­unni um heim­inn með fjöl­skyld­unni. „Loka­tak­markið er að ná einni góðri hring­sigl­ingu áður en ég fer á eft­ir­laun.“ Það eru þó ekki aðeins við­skipta­tæki­færi og draumar sem draga Braga að skút­unni, því hann telur hana geta komið að góðum notum þegar við stöndum frammi fyrir „kjarn­orkuvá okkar tíma; hnatt­rænni hlýnun, lofts­lags­breyt­ingum, eða hvað sem þú vilt kalla það,“ segir hann.

Um þessar mundir siglir seglskútan Valkyrja nú úr höfn frá Sikiley á Ítalíu og stefnan er sett heim á Íslands­strendur. Áætlað er að ferðin …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Mest lesið undanfarið ár