Vilja utanaðkomandi ráðgjöf vegna „grafalvarlegrar“ fjárhagsstöðu Seltjarnarness

Bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans á Sel­tjarn­ar­nesi vilja þverpóli­tískan starfs­hóp til að rýna 264 milljón króna halla­rekstur meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Vilja utanaðkomandi ráðgjöf vegna „grafalvarlegrar“ fjárhagsstöðu Seltjarnarness
Ásgerður Hall­dórs­dóttir Bæj­ar­stjóri Sel­tjarn­ar­ness.

Minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­nes segir fjár­hags­stöðu bæj­ar­ins grafal­var­lega og vinnu­brögð stjórn­enda bæj­ar­ins óboð­leg. Vilja bæj­ar­full­trúar minni­hlut­ans að þverpóli­tískur starfs­hópur með utan­að­kom­andi ráð­gjöf rýni fjár­mál bæj­ar­ins.

Halli var á rekstri bæj­ar­ins upp á 264 millj­ónir króna í fyrra, eða um 324 millj­ónum frá áætlun. „Enn­fremur er ljóst að þegar tvö þriggja ára tíma­bil eru skoðuð - það er 2016-2018 og 2017-2019 - er rekstr­ar­jöfn­uður nei­kvæður,“ segir í bókun minni­hluta Sam­fylk­ingar og Neslista/Við­reisnar á fundi bæj­ar­stjórnar á mið­viku­dag. „Það er þvert á við­mið sveit­ar­stjórn­ar­laga sem kveða á um að bæj­ar­stjórn eigi að sjá til þess að rekstr­ar­jöfn­uður A og B hluta séu á hverju þriggja ára tíma­bili jákvæður.
Þessi staða er grafal­var­leg og mun ef ekk­ert verður að gert hafa alvar­leg áhrif á getu sveit­ar­fé­lags­ins til að veita íbúum sínum góða þjón­ustu.“

Sel­tjarn­ar­nesSveit­ar­fé­lagið hefur verið rekið með halla á þriggja ára tíma­bili.

Minni­hlut­inn segir stjórn­endur bæj­ar­ins hafa tekið lán upp á 1,1 millj­arð króna án þess að sækja heim­ild til bæj­ar­stjórnar. Meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks hafi farið veru­lega fram úr áætl­unum á ýmsum sviðum og halla­rekst­ur­inn sé ólíð­andi þegar búist sé við nið­ur­sveiflu í efna­hags­líf­inu.

„Bæj­ar­full­trúar Sam­fylk­ingar og Við­reisnar/Neslista leggja til að stofn­aður verði þverpóli­tískur starfs­hópur til að rýna fjár­mál bæj­ar­ins á kom­andi miss­erum, utan­að­kom­andi ráð­gjöf verði fengin til þess að koma fjár­hag bæj­ar­ins aftur á lygnan sjó,“ segir loks í bók­un­inni.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár