Komið að tómum kvíum Saga lax­eld­is­ins í Síle segir sög­una af því hvernig þessi iðn­aður marg­fald­að­ist á stuttum tíma og hrundi svo með hraði þegar 60 pró­sent fyr­ir­tækj­anna fóru á hlið­ina vegna þess að vöxt­ur­inn var of mik­ill. Afleið­ing­arnar í nátt­úru Síle voru bæði sýni­legar og aug­ljósa. Hér sést tóm lax­eld­is­kví í Quinced í Síle en myndin var tekin árið 2008, eftir hrun síleska lax­eld­isæv­in­týrs­ins árið 2007.

Laxeldisútrás Norðmanna í Síle sem fór fram úr sjálfri sér

Norsk lax­eld­is­fyr­ir­tæki hófu sams konar útrás til Síle á níunda ára­tugnum og þeir hafa hafið til Íslands. Lax­eld­is­fyr­ir­tækin í Síle lentu í hörm­ungum árið 2007 þegar ISA-veikin rústaði 60 pró­sent af iðn­að­inum. Íslend­ingar geta lært ýmis­legt um upp­bygg­ingu lax­eldis af óför­unum í Síle.

Á milli áranna 1985 og 2007 tvö­hund­ruð­fald­að­ist fram­leiðsla á eld­is­laxi í Síle í Suður-Ameríku. Um miðjan níunda ára­tug­inn voru fram­leidd 3.000 tonn af eld­is­laxi í Síle, sem er um 1/3 af því magni af eld­is­laxi sem fram­leitt er á Íslandi í dag, en árið 2007 var fram­leiðslan komin upp í um 700 þús­und tonn.

Þetta er marg­falt meiri fram­leiðsla en for­svars­menn lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna sem starfa á Íslandi í dag miða að en þeir hafa talað um að raun­hæft sé að tífalda fram­leiðsl­una á eld­is­laxi á Íslandi og fara upp í um 100 þús­und tonna fram­leiðslu á ári, eða jafn­vel 167 þús­und tonn eins og fjár­fest­inga­bank­inn Beringer Finance benti á í skýrslu í fyrra. 

Umbreytingafjárfestar á nýjum mörkuðum

Ísland á það hins vegar sam­eig­in­legt með Síle á níunda ára­tugnum að vera að stíga sín fyrstu skref í til­raunum til stór­fellds lax­eldis í sjó­kvíum við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár