Svívirðilega heppin

Inga Dóra Pét­urs­dóttir mann­fræð­ingur bjó í Mósambík í tæp tvö ár þar sem hún starf­aði sem jafn­rétt­is­full­trúi hjá Mat­væla­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, en hún sá meðal ann­ars um inn­leið­ingu á jafn­rétt­is­stefnu í verk­efnum þeirra þar í landi. Þar er sums staðar hungur, barna­hjóna­bönd eru algeng, það er illa séð að konur noti getn­að­ar­varnir og er bæði mæðra- og ung­barna­dauði mik­ill.

Svívirðilega heppin
Vinnu­fé­lag­arnir Inga Dóra með sam­starfs­fólki sínu í Mapútó, en Mósambík var fyrsta landið til að inn­leiða jafn­rétt­is­stefnu við Mat­væla­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mynd: Úr einkasafni

Inga Dóra Pét­urs­dóttir fór 18 ára gömul sem skiptinemi til Gvatemala. Þar fékk hún starfs­nema­stöðu í átta mán­uði á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna í verk­efni sem kall­ast Sann­leiks­verk­efni. „Þetta var um það leyti sem skrifað var undir frið­ar­samn­inga í land­inu og voru Sam­ein­uðu þjóð­irnar að gera upp hvað hafði átt sér stað í 30 ára borg­ara­stríði í land­inu. Áður en ég fór að vinna hjá SÞ hafði ég gert mér grein fyrir hvað það var sem ég vildi gera í líf­inu, sem var að vinna að þró­un­ar­sam­vinnu og ferð­ast sem mest.“

Inga Dóra kom svo heim til Íslands, kláraði mennta­skól­ann og bjó svo í Gana í eitt ár þar sem hún vann sem sjálf­boða­liði í skóla á vegum AUS. Hún hóf síðan BA- og MA-nám í mann­fræði við Háskóla Íslands en tók hluta af nám­inu í Banda­ríkj­unum og á Spáni.

Inga Dóra hélt til Malaví þar sem hún bjó …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár