Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, sem að minnsta kosti 23 konur hafa sakað um kynferðislega áreitni, hefur gripið til varna undanfarna viku með viðtölum í Silfrinu á RÚV, í fréttum Stöðvar 2 og með greinaskrifum í Fréttablaðið og Morgunblaðið. Þá hefur Bryndís Schram, eiginkona hans, einnig skrifað málsvörn í Fréttablaðið. Nokkuð hefur verið um rangfærslur í máli Jóns Baldvins, auk þess sem fjölda spurninga er enn ósvarað af hans hálfu. Segist hann vera með bók í vinnslu sem ber titilinn „Vörn fyrir æru – hvernig fámennur hópur öfgafemínista hefur sagt réttarríkinu stríð á hendur“.
Jón Baldvin segir að markmið fréttaflutningsins, sem Stundin hóf með birtingu frásagna fjögurra kvenna 11. janúar og tveggja annarra kvenna 13. og 14. janúar, hafi „að þessu sinni …





























Athugasemdir