Hirðfífl „Við erum í grunn­inn for­rétt­inda­strákar sem velja sér það hlut­skipti að stíga fram sem hirð­fífl í fárán­legri söngvakeppni,“ segja með­limir Hatara. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vilja nýta dagskrárvaldið í Eurovision til að gagnrýna stefnu Ísraelsríkis

Meðlimir Hatara segja frá­leitt að Ísland taki þátt í Eurovision þegar keppnin er haldin í ríki sem traðkar á mann­rétt­indum. Úr því sem komið er verði þó Íslend­ingar að nota dag­skrár­vald sitt til að vekja athygli á póli­tísku inn­taki keppn­innar og fram­göngu Ísra­els­ríkis. „Kannski verðum við reknir úr keppn­inni fyrir vikið en það væri í sjálfu sér alveg jafn afhjúp­andi og hver sá gjörn­ingur sem okkur dettur í hug að fram­kvæma á svið­inu.“

Það er frá­leitt að Ísland taki þátt í Söngvakeppni evr­ópskra sjón­varps­stöðva þegar keppnin er haldin í ríki sem traðkar á mann­rétt­indum fólks.

En fyrst Ísland tekur þátt, þá er mik­il­vægt að sá sem fer fram fyrir hönd þjóð­ar­innar nýti dag­skrár­vald sitt til hins ítrasta, gagn­rýni fram­göngu Ísra­els­ríkis og bendi á fárán­leik­ann sem felst í því að syngja, sprella og dansa á sama tíma og millj­ónir lifa innikró­aðir og kúg­aðir í næsta nágrenni. 

Þannig lýsa hljóm­sveit­ar­með­limir Hatara afstöðu sinni í sam­tali við Stundina, þeir Matthías Tryggvi Har­alds­son, Einar Stef­áns­son og Klemens Hannigan. 

Fjöldi tón­list­ar­manna ákvað að snið­ganga Eurovision í ár til að mót­mæla með­ferð ísra­el­skra stjórn­valda á Palest­ínu­mönnum. Í þessum hópi eru til dæmis Páll Óskar Hjálmtýs­son og Daði Freyr Pét­urs­son. 

Teknó- og gjörn­inga­sveitin Hatari ákvað hins vegar að taka þátt. Lag þeirra, Hatrið mun sigra, verður flutt í und­ankeppn­inni nú á laug­ar­dag­inn, 9. febr­úar. 

Hljóm­sveitin hefur sætt harð­ari gagn­rýni en aðrir kepp­endur í ljósi þess að Hatari er þekktur fyrir háðsá­deilu og þjóð­fé­lags­gagn­rýni af ýmsu tagi. Stundin spurði Matthías, Einar og Klemens nokk­urra spurn­inga um þátt­töku þeirra.

Telja eðlilegt að sniðganga keppnina

„Gagn­rýnin á okkur er skilj­an­leg og til marks um að fjöl­mörgum Íslend­ingum svíður með­ferðin á Palest­ínu­mönnum. Okkur finnst sjálf­sagt að svara henni af virð­ingu og án þess að snúa svar­inu upp í grín, sem við gerum vana­lega í fram­komu okkar við fjöl­miðla.

Það er ekk­ert öfga­kennt við að tala fyrir snið­göngu á keppn­inni. Við erum sam­mála þeim sjón­ar­miðum sem þar liggja að baki. Páll Óskar gerði til að mynda vel með því að snið­ganga keppn­ina opin­ber­lega. Þar með nýtti hann áhrif sín sem opin­ber per­sóna og nafn­tog­aður Eurovision-spek­úlant til að halda á lofti gagn­rýnu sam­tali um Ísrael og snið­göngu,“ segja með­limir Hatara. 

„Kannski verðum við reknir úr keppn­inni fyrir vikið en það væri í sjálfu sér alveg jafn afhjúp­andi og hver sá gjörn­ingur sem okkur dettur í hug að fram­kvæma á svið­inu“

„Við teljum okkur hafa ann­ars konar vald, vald hirð­fíflsins. Margt af því sem Hatari gerir er ýmist gjörn­ingur, lygi, mat­reiðsla á boð­skap eftir óhefð­bundnum boð­leiðum eða fag­ur­fræði sem dansar á mörkum hins hríf­andi og ann­ar­lega. Þá felst dag­skrár­valdið ekki síður í því að beina augum fjöl­miðla með gagn­rýnum hætti að keppn­inni og Ísrael. Kannski verðum við reknir úr keppn­inni fyrir vikið en það væri í sjálfu sér alveg jafn afhjúp­andi og hver sá gjörn­ingur sem okkur dettur í hug að fram­kvæma á svið­inu.“ 

FölsunAthygli vakti í fyrra þegar Hatari sendi út upp­logna frétta­til­kynn­ingu um að hljóm­sveitin hefði gert sam­starfs­samn­ing við Lands­bank­ann um tón­leika­hald í boði bank­ans þar sem send yrðu skýr skila­boð um að „gang­verk fjár­magns­ins“ væri ósigr­andi, sigur þess unn­inn og stríð­inu gegn kap­ít­al­isma tapað. Til­kynn­ing­unni fylgdi mynd af hljóm­sveit­ar­með­limi með gadda­grímu við hlið banka­stjóra Lands­bank­ans. „Þetta er bara upp­spuni,“ sagði upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans í við­tali við Mbl.is þar sem fram kom að myndin væri „fölsuð“.

Saga af Davíð og Golíat

Matthías, Klemens og Einar segj­ast hafa rætt við fólk úr ólíkum áttum til að kynna sér ástandið fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Þeim mis­bjóði fram­ganga Ísra­els­ríkis gegn Palest­ínu­mönnum. 

„Þar ber helst að nefna land­töku Ísra­els­manna á því sem á að heita palest­ínskt heima­stjórn­ar­svæði að mati Sam­ein­uðu þjóð­anna, land­töku sem virð­ist hljóta þög­ult sam­þykki ef ekki beinan stuðn­ing Ísra­els­ríkis, land­töku sem gerir vonir fólks um tveggja ríkja lausn æ erf­ið­ari í fram­kvæmd. Þá hafa margir bent á að Palest­ínu­menn innan Ísraels njóti ekki sömu rétt­inda og Ísra­els­menn jafn­vel þótt þeir eigi að heita borg­arar sama ríkis. Þá er margt óupp­talið. Þótt deilan sé vissu­lega flókin og öfgar séu til staðar beggja megin borðs­ins er eng­inn vafi á að því að saga Ísra­els­ríkis og Palest­ínu­manna er í seinni tíð saga af því hvernig hinn vold­ugi og sterki níð­ist á minni máttar, saga vald­beit­ingar gegn fólki sem hefur ekki burði til að tala sínu máli í krafti sama hern­að­ar­valds.“ 

Meðlimir Hatara segja að nauð­syn­legt sé að gera skýran grein­ar­mun á Ísra­els­ríki sem stofnun og ísra­elsku þjóð­inni. Hafa verði í huga að margir Ísra­els­menn og gyð­ingar tali fyrir rétt­indum Palest­ínu­manna. 

Hags­munir og ímyndMiklir hags­munir eru í húfi sem snerta ímynd Ísra­els­ríkis, segja með­limir Hatara.

Söngvakeppnin er pólitísk

En hvernig getur Hatari rétt­lætt þátt­töku sína í keppn­inni? Af hverju fylgja þeir ekki þeim flytj­endum sem ákváðu að snið­ganga keppn­ina og senda þannig skýr skila­boð? 

„Við lítum á Eurovision sem póli­tíska stofnun, ekki síst í ár þar sem keppnin er haldin í Ísrael. Palest­ínu­mönnum hefði verið sýndur stuðn­ingur í verki ef Ísland og aðrar þjóðir hefðu ein­fald­lega ákveðið að draga sig úr keppn­inni. Miklir hags­munir eru í húfi sem snerta ímynd Ísra­els­ríkis.

Hins vegar liggur fyrir að Ísland ætlar að taka þátt, ann­ars væri ekki þörf á þessu sam­tali. Það er í raun frá­leitt að leyfa ríki sem brýtur ítrekað á mann­rétt­indum fólks að taka þátt í svona keppni, hvort sem ríkið heitir Ísrael, Rússland, Katar eða eitt­hvað annað. Fyrst Íslend­ingar taka þátt eins og ekk­ert sé ámæl­is­vert við það er mik­il­vægt að hver sá sem keppir fyrir Íslands hönd sé með­vit­aður um póli­tískt eðli keppn­innar og um þá glans­mynd sem þarna verður dregin upp af Ísrael. 

Ef kepp­andi Íslands nýtir ekki áhrif sín til að benda á hið aug­ljósa, fárán­leik­ann sem felst í því að sprella og dansa á sama tíma og millj­ónir lifa við skert frelsi og stöðuga óvissu um eigin afkomu og öryggi stein­snar í burtu, þá er dag­skrár­valdið van­nýtt. Ef kepp­andi Íslands lítur fram hjá því að keppnin er í eðli sínu póli­tísk gerir hann lítið úr þörf­inni á gagn­rýnu sam­tali um Ísra­els­ríki. 

Við teljum okkur vera með­vit­aða um þörf­ina á slíku sam­tali og viljum nýta dag­skrár­vald keppn­innar af ábyrgð. Okkur er það ekk­ert sér­stakt kapps­mál að fram­leið­endur og fram­kvæmda­stjórn Eurovision leyfi okkur að taka þátt þegar á hólm­inn er komið. Þau hafa vald til að reka okkur úr keppn­inni en ekki til að rit­skoða okkur utan landamæra Ísraels.“

Glands­myndin er póli­tísk„Ef kepp­andi Íslands lítur fram hjá því að keppnin er í eðli sínu póli­tísk gerir hann lítið úr þörf­inni á gagn­rýnu sam­tali um Ísra­els­ríki.“

Þversögn að heiðra samninginn

Matthías, Einar og Klemens segj­ast ekki líta á sig sem sjálf­skip­aða tals­menn Palest­ínu. „Við erum í grunn­inn for­rétt­inda­strákar sem velja sér það hlut­skipti að stíga fram sem hirð­fífl í fárán­legri söngvakeppni. Um þetta viljum við einnig vera með­vit­aðir og fjalla þar með um fleti sem við höfum til­kall til sem lista­menn, svo sem fárán­leika keppn­innar, þátt­töku Ísraels, mörk listar og áróð­urs, glans­mynd­ina, rit­skoðun og tján­ing­ar­frelsi.“ 

En geta þeir gagn­rýnt stefnu Ísra­els­ríkis án þess að brjóta reglur keppn­innar og samn­ing­inn sem kepp­endur skrifa undir við Rík­is­út­varpið? 

„Því er póli­tískur ómögu­leiki
að heiðra slíkan samn­ing“ 

„Í samn­ingnum er kveðið á um að blóts­yrði, póli­tískur áróður eða annað sem gæti sært blygð­un­ar­kennd áhorf­and­ans sé bannað á svið­inu,“ segja þeir. „Þetta er í sjálfu sér þver­sögn enda væri rammpóli­tískt að flytja atriði sem ætl­aði sér að vera laust við alla póli­tík og ljóst að öll lög sem flutt verða á svið­inu í Tel Aviv koma til með að særa blygð­un­ar­kennd fjöl­margra. Glans­myndin sem dregin er upp í Eurovision er í sjálfu sér rammpóli­tísk í sam­hengi keppn­innar og þeirrar rétt­mætu gagn­rýni sem fram hefur komið á hana. Því er póli­tískur ómögu­leiki að heiðra slíkan samn­ing enda er ekk­ert kapps­at­riði að gera það af okkar hálfu.

Ef yfir­boð­arar keppn­innar á Íslandi ákveða að draga Ísland úr Eurovision er það hið besta mál. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi finnst okkur rétt­ast að svara með því að senda afdrátt­ar­laus skila­boð um for­sendur þátt­töku Íslands í Söngvakeppn­inni.“

Hatrið mun sigra„Gleðin tekur enda, enda er hún blekk­ing,“ syngur Hatari.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár