Ljóð Þórdísar Elvu veitir konum kraft til að greina frá ofbeldi

Birtir enska þýð­ingu ljóðs­ins Fjall­kon­unnar eftir fjöl­margar áskor­anir. Innihald ljóðs­ins vald­efl­andi fyrir konur sem hafa nýtt sér það til að rjúfa þögn­ina.

Fjallkonan á ensku Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur birt enska útgáfu af ljóði sínu Fjallkonan og hafa viðbrögðin þegar verið veruleg.

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, rit­höf­undur og bar­áttu­kona, hefur birt enska þýð­ingu á ljóði sínu Fjall­kon­unni á net­inu. Þegar Stundin birti mynd­bands­upp­töku þar sem Þórdís flutti ljóðið á Kvenna­frídeg­inum, 24. októ­ber, á síð­asta ári vakti það gríð­ar­lega athygli og mikla dreif­ingu. Þúsundir manns sáu Þórdísi flytja ljóðið og sóttu kraft og inn­blástur í það.

„Ég gerði ljóðið á sínum tíma fyrir Stundina,“ segir Þórdís Elva. „Ég hafði lofað að skila af mér pistli en var orðin allt of sein með hann og fékk frest til hádegis. Svo var klukkan orðin hálf eitt og ég var ekki byrjuð og alveg að panika. Þetta var skömmu fyrir Kvenna­frí­dag­inn 24. októ­ber sem mér þykir mjög vænt um. Mér fannst svona mynd­band­spistlar vera eitt­hvað svo spenn­andi form þannig að ég ákvað að setja saman þetta ljóð og taka það upp. Það var reyndar meira en að segja það, ég átti engan þrí­fót svo ég var að reyna að raða upp bókum til að styðja við við sím­ann á skrif­borð­inu en það gekk nú ekki vel. Ég þurfti á end­anum að ýta skrif­borð­inu frá veggnum, skríða undir það og húka á bak­við það öll í keng til að upp­takan virk­aði.“

Þórdís segir að þegar hún hafa loks fundið takt­inn hafi ljóðið komið frekar hratt til hennar. Hún vill meina að kraft­ur­inn sem hafi verið í loft­inu í aðdrag­anda kvenna­frí­dags­ins hafi þar haft mikið að segja. „Ég reyna að missa aldrei af þessum degi en þarna var ég föst hér úti í Svíþjóð. Sökn­uð­ur­inn eftir systra­lag­inu og að líta yfir far­inn veg, að sjá hvað við eigum margar magn­aðar kven­hetjur í íslenskri sögu en að sama skapi hvað það er margt óunnið, allt þetta held ég að hafi valdið því að Fjall­konan kom mjög hratt til mín.“

#égergosið

Sem fyrr segir vakti ljóðið og kröft­ugur flutn­ingur Þórdísar Elvu mikla athygli og hóf í raun sjálf­stætt líf, ef svo má segja. „Þetta hefði aldrei vaxið svona í mínum með­förum einum. Því var tekið ótrú­lega vel af ótrú­lega mörgum konum, og karl­mönnum svo sem líka. Það snart mig líka að mis­mun­andi konur tóku mis­mun­andi hluti út úr ljóð­inu til að styrkja sig og vald­efla. Síðasta setn­ingin, Ég er gosið, hún öðl­að­ist svo alveg sitt eigið líf og áður en ég vissi af var hún orðin af myllu­merki. Svo varð ég var við að konur voru að nota þetta myllu­merki til að rjúfa þögn­ina og segja frá ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir, jafn­vel í fyrsta sinn.“

Þórdís segir að alls­konar afleiður hafi orðið til af ljóð­inu, sem hafi glatt hana veru­lega. Þannig hafi kvenna­kór búið til kór­verk úr því, það hafi verið flutt sem rokk­gjörn­ingur og sem mynd­list­ar­verk og hún viti að unnið hafi verið með það í íslensku­kennslu í fram­halds­skóla. Hún sé afskap­lega stolt af því. Hún hafi þá látið gera háls­men með til­vitnun í ljóðið, í loka línu þess: Ég er gosið. Vin­sældir háls­mens­ins eru slíkar að þriðja upp­lag þess sé að klár­ast. Allur hagn­aður af sölu þeirra fer í að styrkja aktí­vista sem séu að gera magn­aða hluti.

Hallgerður Langbrók varð að Jóhönnu af Örk

Þórdís Elva þýddi Fjall­kon­una sjálf á ensku, eftir að hafa fengið fjöl­margar áskor­anir þar um. „Það sem var kannski mesta áskor­un­ina, en líka skemmti­leg­ast, við þýð­ing­una var að finna alþjóð­legar hlið­stæður við íslensku kven­hetj­urnar. Í stað­inn fyrir að vitna í Hall­gerði Langbrók þá vitna í Jóhönnu af Örk og svo fram­vegis.“

„Ég verð eig­in­lega bara orð­laus og hrærð yfir þessu“

Þórdís Elva birti ljóðið fyrst á Instagram reikn­ingi sínum og síðan einnig á Facebook 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn, á alþjóð­legum degi mann­rétt­inda. Við­brögðin hafa ekki látið á sér standa en mörg hund­ruð manns hafa deilt ljóð­inu og enn fleiri líkað við það. Þá steig í það minnsta ein kona fram í athuga­semda­kerfi og lýsti því hún hefði verið í ofbeld­is­sam­bandi.

„Það var strax byrjað að nota myllu­merkið #iamtheeruption. Þetta er í annað skipti sem ég verð vitni að því að konur fái þannig styrk, þær vald­eflist þannig, við lestur á ljóð­inu að þær fái kraft til að greina frá því að þær hafi verið beittar ofbeldi. Ég varð líka vitni að því eftir að ljóðið birt­ist fyrst á íslensku. Ég verð eig­in­lega bara orð­laus og hrærð yfir þessu.“

Hér fyrir neðan má sjá flutn­ing Þórdísar Elvu á Fjall­kon­unni í íslenskri útgáfu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár