Stenst ekki lög að boða Báru í skýrslutöku sem vitni

Dómari boðar Báru Hall­dórs­dóttur til þing­halds vegna máls sem verður höfðað gegn henni. Víðir Smári Petersen lög­maður segir að beiðn­inni hljóti að verða mót­mælt, senni­legt sé að dóm­ari fall­ist á mót­mælin og skýrslutakan fari ekki fram.

Stenst ekki lög að boða Báru í skýrslutöku sem vitni
Stenst ekki lög Líklega stenst það ekki lög að kalla Báru Hall­dórs­dóttur til skýrslu­töku til und­ir­bún­ings máli sem höfðað yrði á hendur henni sjálfri.

Bára Hall­dórs­dóttir, 42 ára öryrki sem hljóð­rit­aði háværar sam­ræður þing­manna á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber, hefur verið boðuð í vitna­skýrslu fyrir hér­aðs­dómi vegna máls sem þing­menn hyggj­ast höfða gegn henni sjálfri. 

Víðir Smári Petersen, lög­maður hjá LEX og aðjúnkt við Háskóla Íslands, furðar sig á þessu í sam­tali við Stundina og bendir á að skýr dómafor­dæmi liggi fyrir um að ekki sé hægt að kalla mann­eskju til sem vitni ef fyr­ir­sjá­an­legt er að við­kom­andi verði varn­ar­að­ili í vænt­an­legu dóms­máli.

Í boð­un­ar­bréfi Lár­entsínusar Krist­jáns­sonar hér­aðs­dóm­ara til Báru Hall­dórs­dóttur er vísað til 2. mgr. 77. gr. laga um með­ferð einka­mála.

Ákvæðið felur í sér heim­ild til að leita sönn­unar um máls­at­vik fyrir dómi, án þess að mál hafi verið höfðað, með „vitna­leiðslu eða öflun skjals eða ann­ars sýni­legs sönn­un­ar­gagns“. 

Hæsti­réttur kvað upp dóm í fyrra þar sem kemur skýrt fram að ákvæðið heim­ilar ekki skýrslu­töku fyrir dómi „af þeim sem fyr­ir­sjá­an­lega yrði aðili að vænt­an­legu dóms­máli eða fyr­ir­svars­manni hans.“

Í eldri dómi Hæsta­réttar, máli 571/2002, var það að sama skapi talið leiða af lögum um með­ferð einka­mála, að skýrsla yrði ekki tekin sam­kvæmt umræddum kafla lag­anna af þeim sem fyr­ir­sjá­an­lega yrði aðili að vænt­an­legu dóms­máli.

Engu að síður hefur Hér­aðs­dómur Reykja­víkur nú boðað Báru Hall­dórs­dóttur til skýrslu­töku á grund­velli þessa sama ákvæðis og tjáð henni að „dóms­mál kunni að verða höfðað á hendur [henni] í kjöl­far umbeð­innar gagna­öfl­unar“.

Víðir Smári Petersenlög­maður

Víðir Smári segir að svo virð­ist sem til­gang­ur­inn með skýrslu­tök­unni sé að und­ir­búa mögu­legt miska­bóta­mál á hendur Báru. „Ég fæ því ekki betur séð en að hún gæti orðið aðili til varnar í því máli sem gæti verið höfðað í kjöl­farið,“ segir hann og bendir á að skýr dómafor­dæmi liggi fyrir um að sá sem er aðili í laga­legum skiln­ingi geti ekki verið vitni á sama tíma.  „Miðað við þetta kæmi mér ekki á óvart að þess­ari beiðni verði mót­mælt og finnst mér senni­legt að dóm­ari fall­ist á þau mót­mæli og skýrslutakan fari því ekki fram.“

Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst, lög­maður og fram­kvæmda­stjóri Laga­stofn­unar Háskóla Íslands, er sömu skoð­unar. „Þarna er um að ræða svo­kallað vitna­mál og það er mjög skýr grein­ar­munur gerður á aðila­skýrslum ann­ars vegar og vitna­skýrslum hins vegar. Eins og þetta mál blasir við virð­ist um það að ræða að verið sé að kveða hana fyrir dóm­inn sem vitni þó að hún sé raun­veru­lega aðili, sem í sjálfu sér stenst ekki,“ sagði hann í við­tali við RÚV í gær­kvöldi. 

Þing­menn­irnir fjórir, þau Gunnar Bragi Sveins­son, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, telja sig fórn­ar­lömb „njósn­a­að­gerðar“ og vilja að sá sem stóð fyrir henni, Bára Hall­dórs­dóttir, 42 ára öryrki, sæti refs­ingu og greiði þeim miska­bætur. Þetta er ljóst af beiðni sem lög­maður þing­mann­anna sendi Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þann 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn, dag­inn áður en Bára Hall­dórs­dóttir steig fram og afhjúpaði sig sem upp­ljóstr­ar­ann af Klaustri í við­tali við Stundina. 

Í bréfi Reimars Pét­urs­sonar, lög­manns þing­mann­anna, kemur fram að „til að máls­höfðun með refsi- og bóta­kröfum geti orðið raun­hæf“ sé óhjá­kvæmi­legt að leiða í ljós hvaða „óprút­tni aðili“ hafi fram­kvæmt njósn­a­að­gerð­ina og kalla fyr­ir­svars­menn og starfs­menn Klaust­urs fyrir dóm til vitnis um manna­ferðir og aðstæður á barnum þann 20. nóv­em­ber.

Daginn sem við­tal Stund­ar­innar við Báru birt­ist sendi Reimar hér­aðs­dóm­ar­anum bréf um að fjór­menn­ing­arnir héldu beiðni sinni til streitu. Nú í gær barst Báru svo bréf frá dóm­ar­anum þar sem hún er sjálf boðuð fyrir dóm sem vitni. Athygli vekur að í boð­un­ar­bréf­inu er Bára rang­nefnd sem Bára Guð­munds­dóttir.

Uppfært: 

Lár­entsínus Krist­jáns­son hefur áréttað í sam­tali við Vísi.is að ekki standi til að taka skýrslu af Báru sem vitni. Upp­haf­lega kom fram á RÚV.is og Vísi.is að Bára hefði verið boðuð í skýrslu­töku og hefur Stundin jafn­framt lagt þann skiln­ing til grund­vallar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár