Útgefandi Fréttablaðsins gagnrýnir meðferð saksóknara og fjölmiðla á Jóni Ásgeiri

Kristín Þor­steins­dóttir kvartar yfir kostn­að­inum af rann­sóknum sér­staks sak­sókn­ara og telur ákæru­valdið og fjöl­miðla hafa farið of geyst.

Útgefandi Fréttablaðsins gagnrýnir meðferð saksóknara og fjölmiðla á Jóni Ásgeiri
Eigandi Frétta­blaðs­ins og eig­in­maður hennar Ingi­björg Pálma­dóttir er aðal­eig­andi Frétta­blaðs­ins, en Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður hennar, er fyrr­ver­andi eig­andi. Mynd: Pressphotos

Kristín Þor­steins­dóttir, útgef­andi og leið­ara­höf­undur Frétta­blaðs­ins, gagn­rýnir Morg­un­blaðið og RÚV fyrir að fjalla of mikið um Aurum-málið og veltir því upp hvort kappið hafi borið skyn­sem­ina ofur­liði í rann­sóknum og ákærum gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og fleirum. Þá finnur hún að því hve miklum fjár­munum hefur verið varið til sér­staks sak­sókn­ara og rekst­urs dóms­mála sem tengj­ast hrun­inu og veltir því fyrir sér hvort dóm­arar á Íslandi hafi „fallið í þá gryfju að dæma eftir almenn­ings­á­lit­inu“. 

Þetta kemur fram í leið­ara Krist­ínar í helg­ar­blaði Frétta­blaðs­ins, blaðs sem er nær alfarið í eigu félaga Ingi­bjargar S. Pálma­dóttur, eig­in­konu Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar. Jón Ásgeir og fleiri sak­born­ingar í Aurum-mál­inu voru sýkn­aðir í Lands­rétti í síð­ustu viku, en fyrst var ákært í mál­inu árið 2012. 

„Fjöl­miðlar hafa eytt ófáum dálksenti­metrum í málið. Vefsíða Morg­un­blaðs­ins til­einkar því sér­staka síðu. Þar eru 185 fréttir,“ skrifar Kristín. „Morg­un­blaðið taldi líka til­efni til þegar fjallað var um málið í síð­asta sinn fyrir dóm­stólum að birta umfangs­mikla umfjöllun um málið á heilli opnu í blað­inu. Forsíða blaðs­ins þann dag var til­vísun í yfir­heyrslur sem áttu sér stað árið 2011. RÚV hefur heldur ekki látið sitt eftir liggja.“

„Sætt rannsóknum sleitulaust“

Þá víkur Kristín sér­stak­lega að þeirri með­ferð sem Jón Ásgeir hefur sætt. „Jón Ásgeir Jóhann­es­son, hefur sætt rann­sóknum sleitu­laust frá 2002. Eft­ir­tekja ákæru­valds­ins úr þeirri veg­ferð er rýr. Því hlýtur að mega velta því upp hvort nið­ur­staðan sé ekki sú að farið hafi verið af stað af meira kappi en for­sjá? Nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins í máli Jóns Ásgeirs virð­ist renna stoðum undir slíkar grun­semdir.“

Hún bendir á að starf­semi sér­staks sak­sókn­ara „kost­aði skatt­borg­ara tæpa 7 millj­arða króna á árunum 2009 til 2015“ en segir þá ótal­inn þann kostnað sem felist í því að „ungt, hæfi­leik­a­ríkt fólk hafi í mörgum til­vikum þurft að gera hlé á störfum sínum í ára­tug meðan það beið úrlausnar sinna mála“.

Dómstólar gagnrýndir og lögreglumenn nafngreindir

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kristín viðrar sjón­ar­mið í þessum anda. Áður en Kristín tók við starfi útgef­anda og aðal­rit­stjóra 365 og síðar Frétta­blaðs­ins höfðu harð­orð pistla­skrif hennar til varnar svoköll­uðum útrás­ar­vík­ingum og sak­born­ingum í hrun­málum vakið athygli. Þá hafði hún gagn­rýnt Evu Joly harð­lega og varað við „fúski“ sak­sókn­ara og yfir­vof­andi rétt­ar­morðum dóm­stóla.

„Drögum úr lög­reglu­rann­sóknar- og dóm­stóla­þrasi, sem er allt að drepa úr heift og leið­indum. Verjum kröft­unum þess í stað í að átta okkur á hvað fór úrskeiðis í raun og veru,“ skrif­aði Kristín í febr­úar 2012. Þann 4. apríl 2016 birt­ist svo leið­ari eftir Kristínu í Frétta­blað­inu þar sem hún gagn­rýndi Hæsta­rétt harð­lega vegna nið­ur­stöðu í máli er varð­aði Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Niðurlag leið­ar­ans var svohljóð­andi: „Nið­ur­staða Hæsta­réttar er óboð­leg, og má ekki verða enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við.“ Í sama mán­uð­inum var föstum viku­legum dálki Guð­mundar Andra Thors­sonar rit­höf­undar kippt út úr Frétta­blað­inu svo koma mætti fyrir pistli eftir Jón Ásgeir. Í pistl­inum sak­aði Jón Ásgeir sér­stakan sak­sókn­ara um ósann­indi og Hæsta­rétt um að spila með. Ári áður hafði Jón Ásgeir fengið birta grein í blað­inu þar sem hann bar þungar sakir á lög­reglu­menn og nafn­greindi þá sér­stak­lega. 

Leið­ar­anum sem Kristín Þor­steins­dóttir birtir í dag lýkur með þessum orðum: „Þegar dómur lá fyrir í Aurum-mál­inu sagði Morg­un­blaðið, sem skrifað hafði 185 fréttir um málið, frá því í lít­illi frétt á blað­síðu sex. Kannski pass­aði sýknu­dóm­ur­inn ekki inn í þá mynd sem blaðið hafði dregið upp? Hver nennir að lesa um sak­lausa banka­menn?“

Sagði forstjóra Glitnis fyrir verkum

Jón Ásgeir Jóhann­es­son hefur verið ákærður í tengslum við efna­hags­brota­mál á þeim for­sendum að hann hafi verið „skugga­stjórn­andi“ Glitnis, þar sem marg­vís­leg brot hafi verið framin. Þannig kvart­aði Lárus Welding, for­stjóri Glitnis, undan því að Jón Ásgeir kæmi fram við hann fremur eins og „úti­bús­stjóra“ en for­stjóra. „Þetta eru málin nenni ekki að bögga ykkur á hverjum degi með þessu enda ætl­ast ég til að CEO þess­ara félaga vinni sín mál ef við komum þessum málum frá er borðið mitt hreint. Annars er kannski best að ég verði starf­andi stjórn­ar­for­maður GLB (Glitnis),“ sagði Jón Ásgeir í einum tölvu­póst­anna til Lárusar.

„Annars er kannski best að ég verði starf­andi stjórn­ar­for­maður GLB“

Í einum tölvu­póst­inum segir Einar Örn Ólafsson, þá yfir­maður fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Glitnis, við Lárus Welding að Jón Ásgeir setji hann í slæma stöðu. „Mér finnst hinn góði eig­andi okkar aðeins setja þig í erf­iða stöðu með þessum mail. Goldsmith er t.d. virði 1,5 en ekki 4,0 o.s.frv. En ég geri allt sem þú segir mér að gera. kv. Einar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjölmiðlamál

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár