Yfir Fjár­mála­eft­ir­lit­inu Bjarni Bene­dikts­son gegndi emb­ætti fjár­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins frá 2013 til 2016 og svo aftur með myndun rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Pressphotos

Kærur vegna meiri háttar efnahagsbrota háðar samþykki stjórnar sem Bjarni skipar

Stjórn FME tekur ákvarðanir um eftirlit og aðgerðir gagnvart fjármála­fyrirtækjum. Bjarni Benediktsson skipar í stjórnina, en stjórnar­formaðurinn sem hann skipaði árið 2013 er nú með stöðu sakbornings vegna meintra efnahags­brota.

Allar meiri háttar ákvarðanir Fjármála­eftirlitsins eru háðar samþykki stjórnar sem er skipuð af Bjarna Benedikts­syni fjármála­ráðherra, meðal annars kærur til lögreglu er varða alvarleg efnahags­brot.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn hefur gagnrýnt að sjálf­stæði FME gagnvart öðrum stjórn­völdum sé ekki nægilegt og að starf eftirlits­stofnunarinnar sé að vissu leyti undir viðhorfi stjórn­málamanna á hverjum tíma komið. Þá kallaði starfs­hópur, sem skipaður var af Benedikt Jóhannessyni, fyrr­verandi fjármála­ráðherra, nýlega eftir því að tekin yrðu af tvímæli um „sjálf­stæði stofnunarinnar og takmarkaða aðkomu ráðherra að starfsemi hennar“ og lagði til laga­breytingar í þá átt.

Áform þess efnis er ekki að finna á þing­málaskrá núverandi ríkis­stjórnar, enda eru róttækari breytingar á laga­umhverfi fjármála­eftirlits í farvatninu þar sem unnið verður að sameiningu Seðla­bankans og Fjármála­eftirlitsins.

Glitnisgögnin varpa nýju ljósi á Vafningsaðkomu Bjarna

Samkvæmt gildandi lögum er stjórn FME ætlað að taka virkan þátt í mikil­vægum ákvörðunum sem varða eftirlit og aðgerðir gagnvart fjármála­stofnunum og öðrum eftirlits­skyldum aðilum. Þannig kveður 4. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármála­starfsemi á um að yfir­stjórn FME sé á hendi þriggja manna og allar meiri háttar ákvarðanir skuli bornar undir stjórnina til samþykktar eða synjunar. Þessi stjórn – sem gegnir lykil­hlutverki við ákvarðana­töku um rannsókn efnahags­brota á Íslandi – er alfarið skipuð af fjármála­ráðherra, Bjarna Benedikts­syni, sem var sjálfur umsvifa­mikill í viðskipta­lífinu fyrir hrun og hefur ítrekað þurft að svara fyrir viðskipta­gjörninga sem orka tvímælis. Þess ber að geta að einn fulltrúi af þremur í stjórn er þó tilnefndur af Seðla­banka Íslands, en meirihlutinn er bæði tilnefndur og skipaður af fjármála­ráðherra.

Einna erfiðast hefur reynst Bjarna að útskýra aðkomu sína að svokallaðri Vafnings­fléttu sem fól í sér að áhættan á bak við stóran hluthafa Glitnis, Þátt International, var færð yfir á bankann sjálfan. Að nafninu til fólst aðkoma Bjarna einvörðungu í því að undirrita veðskjöl fyrir hönd eignarhalds­félaganna BNT, Hafsilfurs og Hrómundar fyrir hönd föður síns og föður­bróður, en veðsetningin var forsenda þess að Glitnir gæti veitt 100 milljóna evra peningamarkaðslán til Milestone.

Málsvörn Bjarna í Vafnings­málinu hefur alltaf verið sú að hann hafi nær ekkert vitað um málavexti. „Mér var ekki einu sinni kunnugt um að Milestone hefði verið veitt lánið,“ sagði Bjarni í Kastljóssviðtali þann 14. febrúar 2012. Glitnis­gögnin sýna hins vegar að Bjarni átti í samskiptum við Guðmund Ólason, forstjóra Milestone, vegna málsins þann 8. febrúar, sama dag og lánið var greitt út til fyrir­tækisins. Þá sýna þau að Bjarni tók sjálfur ákvarðanir um málefni Hafsilfurs á árunum fyrir hrun og átti t.d. í samskiptum við starfs­mann hjá einka­banka­þjónustu Glitnis vegna málefna Hafsilfurs, Hrómundar, Máttar og Milestone, lykil­félaga í Vafnings­fléttunni í júlí 2008. 

Seldu í Sjóði 9 á sama tíma og innherjar

Vafnings­málið var rannsakað, fyrst af Fjármála­eftirlitinu og svo sem sakamál hjá sérstökum saksóknara sem ákærði Glitnis­stjórnendurna Lárus Welding og Guðmund Hjaltason og taldi lánveitinguna hafa átt þátt í falli bankans. Þótt Lárus og Guðmundur væru að lokum sýknaðir taldi Hæstiréttur engan vafa leika á því að ásetningurinn á bak við lánveitinguna hefði „staðið til misnotkunar“; hinir ákærðu hefðu misnotað aðstöðu sína í bankanum og tekið hagsmuni lántaka fram yfir hagsmuni Glitnis. Þótt Bjarni hafi aðeins verið vitni í Vafnings­málinu og ekkert liggi fyrir um að hann hafi brotið lög er ljóst að með aðkomu sinni, undir­ritun veðskjala, gerði hann þessa misnotkun mögulega. Vikurnar á eftir, í kjölfar þess að hann fundaði sem þingmaður um „lausn“ á „vanda bankanna“ með Lárusi Welding, forstjóra Glitnis, seldi svo Bjarni hlutabréf sín í Glitni fyrir 119 milljónir.

Á meðal annarra mála er varða Glitni sem Fjármála­eftirlitið rann­sakaði sérstak­lega eftir hrun voru úttektir innherja og tengdra aðila úr Sjóði 9, annars vegar dagana áður en tilkynnt var um yfirtöku ríkisins á Glitni 29. september 2008 og hins vegar rétt áður en neyðar­lögin voru sett þann 6. október. Fyrir liggur að Bjarni Benediktsson, bróðir hans og föður­bróðir,  innleystu samtals um 2,2 milljarða úr Sjóði 9 þessa daga auk þess sem Glitnis­gögnin sýna að Bjarni átti í miklum og nánum samskiptum við stjórn­endur Glitnis í aðdrag­anda hruns og virðist hafa miðlað upplýsingum um vinnu Fjármála­eftirlitsins til milli­stjórnanda hjá bankanum. 

Ekki hefur komið fram opinber­lega hvort Engeyingarnir voru á meðal þeirra fjölmörgu sem Fjármála­eftirlitið kærði til sérstaks saksóknara vegna innlausna úr Sjóði 9 í mars 2009, sama mánuði og FME vísaði Vafnings­málinu til sérstaks saksóknara. Hins vegar er ljóst að fjármuna­tilfærslur Benedikts Sveins­sonar og Einars Sveins­sonar vöktu sérstaka athygli endur­skoðenda á vegum slita­stjórnar Glitnis eftir hrun. Kom til álita að höfða riftunarmál – í tilviki Benedikts vegna þess að talið var hugsanlegt að hann hefði búið yfir innherja­upplýsingum – en á endanum þótti ekki ástæða til að láta reyna á slíkt.

Stjórnarformaður FME hætti og er nú til rannsóknar

Hætti í kjöl­far frétta­flutn­ingsHalla Sigrún Hjart­ar­dóttir lét af stjórn­ar­for­mennsku hjá FME eftir að greint var frá við­skiptum með hluta­bréf Skelj­ungs árið 2014.

Þegar Bjarni Benediktsson tók við embætti fjármála­ráðherra árið 2013 skipaði hann Höllu Sigrúnu Hjartar­dóttur sem stjórnar­formann FME. Halla er náinn viðskipta­félagi Einars Arnar Ólafs­sonar, sem var milli­stjórnandi í Glitni og er fyrirferðar­mikill í Glitnis­gögnunum. Einar átti í stöðugum samskiptum við Bjarna í aðdrag­anda hruns og virðist hafa tekið við upplýsingum frá honum um aðgerðir FME rétt áður en neyðar­lögin voru sett 6. október 2008. 

Halla Sigrún hætti sem stjórnar­formaður FME síðla árs 2014 eftir að greint hafði verið frá 830 milljóna króna hagnaði hennar af viðskiptum með hlutabréf Skeljungs. Halla Sigrún og Einar Örn eru nú sakborningar í Skeljungs­málinu svokallaða þar sem grunur leikur á um að eignir Glitnis hafi verið seldar út úr bankanum á undir­verði og aðilar hagnast með óeðli­legum hætti á viðskiptunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Glitnisgögnin

Mest lesið undanfarið ár