Vilja aðgerðir Mæðgurnar Guðrún Hauks­dóttir og Lilja Guðrún Lilj­ars­dóttir misstu son sinn og bróður í klær fíkn­ar­innar, sem að lokum dró hann til dauða. Í minn­ingu hans krefj­ast þær þess að gerð verði alvöru gang­skör að því að tryggja heim­il­is­lausum og fíklum alvöru aðstoð, nú þegar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Berjast fyrir heimilislausa í minningu sonar síns og bróður

Móðir og systir Þor­bjarnar Hauks Lilj­ars­sonar segja að nú verði eitt­hvað að ger­ast í mál­efnum heim­il­is­lausra. Allir eigi rétt á þaki yfir höf­uðið, per­sónu­bundnum stuðn­ingi og aðstoð við að koma lífi sínu á rétt ról.

Þorbjörn Haukur Lilj­ars­son glímdi við fíkni­efna­vanda nán­ast alla sína full­orð­ins­ævi, vanda sem átti rót sína að rekja til mjög alvar­legs slyss sem hann varð fyrir þegar hann var tví­tugur. Þorbjörn lenti þá í svo alvar­legu bif­hjólaslysi að honum var vart hugað líf og þrátt fyrir að hann næði sér að tals­verðu leyti lík­am­lega varð hann fyrir alvar­legum fram­heilaskaða. Sá skaði, þær skap­gerð­ar­breyt­ingar sem hann olli, og gíf­ur­legt magn sterkra verkja­lyfja sem hann neydd­ist til að taka um margra mán­aða skeið urðu rótin að hans fíkni­vanda. Neysla Þor­bjarnar hafði í för með sér að fjöl­skylda hans neydd­ist til að loka á sam­skipti við hann um tíma, hann var inn og út úr með­ferðum og fang­elsum og undir hið síð­asta var hann heim­il­is­laus, á göt­unni. Og nú er Þorbjörn lát­inn, hann lést í svefni í Gisti­skýl­inu 15. októ­ber síð­ast­lið­inn, harmdauði fjöl­skyldu sinni, aðstand­endum og vinum sínum á göt­unni.

Guðrún Hauks­dóttir, móðir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár