Næturklúbbar, sundlaugar og rokk og ról

Valur Gunn­ars­son lýsir bar­áttu sinni við að kom­ast á milli staða í Breta­veldi, leit sinni að sund­laugum og gölnu verð­lagi á öld­ur­húsum.

Ég ákveð að fá mér eitt rauð­víns­glas á lókalnum fyrir lokun og svo í hátt­inn. Þetta hljómar eins og ein­falt plan, en það er sjaldn­ast að hlut­irnir fara sam­kvæmt áætlun. Glasið kostar átta pund, næstum íslenskir prísar, en þetta er í mið­borg Lundúna og maður lætur sig hafa það að borga jafn mikið og á Ölstof­unni.

Ljósin blikka um mið­nætti og ég fer út að reykja. Ljóshærð kona að nálg­ast miðjan aldur gengur upp að mér og spyr mig hvaða lag hafi verið í fyrsta sæti þegar ég fædd­ist. Ég rifja það upp að Sex Pistols hafi verið að byrja um svipað leyti. Hún er fljót að leið­rétta þetta. „Don‘t Go Breaking My Heart“ með Elton John og Kiki Dee, segir hún og starir á sím­ann. Þar höfum við það.

Svöru leigu­bíl­arnirÞrátt fyrir að vin­sældir Uber hafi auk­ist jafnt og þétt í London eru svörtu leigu­bíl­arnir ennþá eitt af …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár