Leyfi fyrir hvalveiðibyssum Hvals hf. finnst ekki

Ekkert eftirlit virðist vera með skot­vopnum sem fyrir­tækið Hvalur notar til veiða á lang­reyðum.

Hvalveiðar
Hval­veiðar Fyr­ir­tækið Hvalur hefur sætt gagn­rýni fyrir veiðar á blend­ings­hval í sumar. Mynd: Grapevine

Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu finnur ekki leyfi Hvals hf. fyrir fjórum skutul­byssum sem hafa verið notaðar við langreyðar­veiðar við Íslands­strendur. Ekkert eftirlit virðist vera með vopnunum. Þetta kemur fram í Frétta­blaðinu í dag.

Hval­veiðar Hvals hf. eru nú til rann­sóknar hjá lögreglunni á Vestur­landi. Kærði félagið Jarðvinir vegna veiða Hvals á blendings­hval í sumar. Var óskað eftir gögnum um eftirlit og leyfi fyrir­tækisins fyrir skutul­byssum Hvals, 90mm Kongsbert-skutul­byssum sem sérhannaðar eru til hvalveiða.

Svo virðist sem ekkert eftirlit sé með vopnunum. Leyfi fyrir þeim finnst ekki á pappírs­formi hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu, en skip fyrir­tækisins komu til landsins á árunum 1964 og 1965. Vopnin hafi því nú verið skráð í rafræna skotvopna­skrá Ríkis­lögreglu­stjóra.

Þá segja hvorki Vinnu­eftirlitið né Samgöngu­stofa að eftirlit með vopnunum sé á þeirra könnu. Vinnu­eftirlitið hefur þó eftirlit með sprengi­hleðslunum sem í byssurnar fara, þar sem þær falla undir reglu­gerðir um meðhöndlun sprengi­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár