Sak­felldur fyrir brot af gáleysi Nið­ur­staða Lands­dóms er einn alls­herjar áfell­is­dómur yfir störfum Geirs H. Haarde frá febr­úar fram í októ­ber­byrjun 2008. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri Pix

Gáleysi Geirs og lygin um Landsdómsmálið

Sögu­skýr­ing Geirs H. Haarde og sam­herja hans um Lands­dóms­málið stenst ekki skoðun. Í dómnum birt­ist mynd af for­sæt­is­ráð­herra á örlaga­tímum sem treysti sér ekki til að grípa til aðgerða gagn­vart seðla­banka Davíðs Odds­sonar þegar þess þurfti, leyndi sam­ráð­herra mik­il­vægum upp­lýs­ingum um yfir­vof­andi hættu og gekkst undir skuld­bind­ingar gagn­vart erlendum ríkjum í nafni rík­is­stjórn­ar­innar án þess að láta hana vita.

Geir H. Haarde var dreg­inn fyrir Landsdóm á grund­velli úrelts laga­bók­stafs, hreins­aður af öllum helstu ávirð­ing­unum og ein­ungis sak­felldur fyrir smá­at­riði, brot á form­reglu um fundi og fund­ar­gerðir sem engu hefði breytt þótt hann hefði fylgt þeim. 

Einhvern veg­inn svona er sagan sem Geir og póli­tískir sam­herjar hans hafa haldið á lofti síðan dómur Lands­dóms féll þann 23. apríl 2012. 

Sagan hefur verið sögð svo oft að hún er gott sem orðin við­tekin sögu­skýr­ing um rétt­ar­höldin. Ágætis vitn­is­burður um það er við­tal Kast­ljóss við Geir þann 3. októ­ber síð­ast­lið­inn. „Nú varst þú dreg­inn fyrir Landsdóm og sýkn­aður í öllum aðal­á­kæru­lið­unum en þú varst sak­felldur fyrir að halda ekki nógu góðar fund­ar­gerðir,“ sagði spyrill­inn og Geir svar­aði á þá leið að Lands­dómur hefði ekki aðeins sýknað hann „efn­is­lega“ heldur bein­línis „hreinsað“ hann af ávirð­ingum sem fram hefðu komið í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis.

Þessi saga er ósönn. Hún gengur í ber­högg við rök­stuðn­ing og dóms­nið­ur­stöðu Lands­dóms, en þar er Geir ekki aðeins gagn­rýndur fyrir að hafa ekki haldið ráð­herra­fundi um mik­il­væg mál­efni heldur einnig fyrir slæ­leg vinnu­brögð að því er varðar ýmis atriði sem fjallað var um í hinum ákæru­lið­unum og höfðu ekki með rík­is­stjórn­ar­fundi að gera.

Allsherjar áfellisdómur

Nið­ur­staða Lands­dóms er einn alls­herjar áfell­is­dómur yfir störfum Geirs frá febr­úar fram í októ­ber­byrjun 2008.

Í dómnum birt­ist mynd af for­sæt­is­ráð­herra á örlaga­tímum sem veigraði sér við að grípa til aðgerða gagn­vart Seðla­bank­anum undir stjórn Davíðs Odds­sonar þegar þess þurfti, treysti banka­mönnum í blindni til að taka almanna­hags­muni fram yfir eig­in­hags­muni, leyndi sam­ráð­herra mik­il­vægum upp­lýs­ingum um yfir­vof­andi hættu og gekkst undir skuld­bind­ingar gagn­vart erlendum ríkjum í nafni rík­is­stjórn­ar­innar án þess að láta hana vita. Þótt Geir hafi aðeins verið sak­felldur fyrir brot sem honum var gefið að sök í einum ákæru­lið, ákæru­lið 2, komst Lands­dómur að þeirri nið­ur­stöðu að hann hefði van­rækt skyldur sem á honum hvíldu og sýnt athafna­leysi að því er varðar atriði sem fjallað var um í ákæru­lið 1.4. Hlut­lægum sak­fell­ing­ar­skil­yrðum væri hins vegar ekki full­nægt og þannig ekki hægt að dæma hann fyrir að hafa ekki rækt skyldur sínar.  

Sagan öll af mis­tökum, laumu­spili og athafna­leysi Geirs, sem rakin er ítar­lega í umfjöllun Lands­dóms um alla fjóra ákæru­lið­ina, hefur í raun farið hljótt í fjöl­miðlum og á vett­vangi stjórn­mál­anna og fallið í skugg­ann af upp­hróp­unum um að grimmi­legt hafi verið að draga Geir einan fyrir Landsdóm. Hvorki Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn né flokk­arnir hverra þing­menn greiddu atkvæði með máls­höfðun gegn Geir Haarde hafa sýnt við­leitni til að draga lær­dóma af nið­ur­stöðu Lands­dóms og þeirri ítar­legu umfjöllun um ráð­herra­á­byrgð sem þar birt­ist. 

Und­an­farin ár hefur Geir Haarde gegnt emb­ætti sendi­herra Íslands í Washington og nýlega til­nefndi utan­rík­is­ráð­herra hann sem aðal­full­trúa í stjórn Alþjóða­bank­ans. Þingmenn þriggja stjórn­mála­flokka hafa kallað eftir því að Alþingi biðji Geir H. Haarde afsök­unar á Lands­dóms­mál­inu og álykti um að þar hafi dóms­valdi verið mis­beitt. Nýlega kall­aði Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, eftir því að reist yrði stytta eða mynd af Geir Haarde á Aust­ur­velli fyrir þann mynd­ug­leik sem hann hefði sýnt haustið 2008.

Á 10 ára afmæli hruns­ins er ekki úr vegi að líta yfir helstu nið­ur­stöður Lands­dóms, bera þær saman við þá sögu­skýr­ingu sem Geir og sam­herjar hans halda óspart á lofti og leið­rétta nokkrar algengar mýtur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár