Neitar að segja hver veitti 475 milljóna huldulán til reksturs DV

Félag Sigurðar G. Guð­jóns­sonar fékk 475 millj­óna króna lán í fyrra frá óþekktum aðilum. Lánið var notað til að kaupa og fjár­magna rekstur DV og fleiri fjöl­miðla. Sigurður segir upp­lýs­inga­gjöf um hags­muna­tengsl ekki skipta máli.

Sigurður G. Guðjónsson
Sigurður G. Guð­jóns­son Lög­mað­ur­inn lán­aði rek­star­fé­lagi DV 425 millj­ónir króna, sem hann fékk frá þriðja aðila. Mynd: Pressphotos

Sigurður G. Guð­jóns­son lög­maður vill ekki upp­lýsa um hvaða aðilar veittu félagi hans 475 millj­óna króna lán til að fjár­magna rekstur DV og ann­arra fjöl­miðla. Tap Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf., sem gefur út DV og fjölda vef­miðla, var 54,5 millj­ónir króna­fyrir skatta á árinu 2017, þá fjóra mán­uði sem félagið hélt utan um rekst­ur­inn. Fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Karl Garð­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir tap­rekst­ur­inn hafa verið greiddan af Sigurði.

Frjáls fjöl­miðlun, félag skráð í eigu Sigurðar G., keypti DV síð­asta haust af fjöl­miðla­veldi Björns Inga Hrafns­sonar og með því vef­miðl­ana Pressuna, Eyjuna, 433.is, Bleikt auk fleiri miðla. Samkvæmt árs­reikn­ingum er Frjáls fjöl­miðlun alfarið í eigu félags­ins Dalsdals ehf. sem er í 100% eigu Sigurðar. Félagið lán­aði Frjálsri fjöl­miðlun 425 millj­ónir króna á árinu, sem greið­ist til baka með árlegum 85 millj­óna króna afborg­unum 2018 til 2022.

Þá kemur fram að Dals­dalur fékk 475 millj­ónir króna lán­aðar í fyrra frá óþekktum aðilum og hefur þegar greitt vexti af lán­inu upp á 13.533.333 kr. Félagið hyggst greiða upp­hæð­ina til baka í einni afborgun í ár, þrátt fyrir að lán­veit­ing þess til Frjálsrar fjöl­miðl­unar skili sér ekki til baka í heild fyrr en 2022.

Hagsmunatengsl skipti „akkúrat engu máli“

„Það er bara á milli þeirra sem taka lán og veita lán,“ segir Sigurður um lánið. „Hverju breytir það hvort það er fjöl­mið­ill eða ekki?“

Aðspurður hvort það skipti ekki máli að gera upp­lýs­ingar um end­an­lega eign á fjöl­miðlum og hags­muna­tengsl opin­berar segir Sigurður að hann telji svo ekki vera. „Akkúrat engu máli,“ segir hann við blaða­mann Stund­ar­innar. „Ég held ég hafi bara ekk­ert við þig að tala um árs­reikn­inga þeirra fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem ég stjórna.“

„Hverju breytir það hvort það er fjöl­mið­ill eða ekki?“

Sigurður segir enn á döf­inni að fá fleiri fjár­festa inn í rekst­ur­inn og að það muni allt koma í ljós. „Það liggur ekk­ert á og öll lán félags­ins eru í skilum,“ segir Sigurður.

Þegar Sigurður keypti fjöl­miðla Pressunnar síð­asta haust, DV, Eyjuna, Pressuna og fleiri miðla, var fyr­ir­tækið á leið í gjald­þrot og hefði skilið eftir sig hund­ruð millj­óna króna skuldir, meðal ann­ars við opin­bera aðila eins og Toll­stjóra vegna van­greiddra skatta. Gjald­þrota­beiðni gegn ein­staka dótt­ur­fé­lögum lá fyrir hjá sýslu­manni þegar hann keypti fjöl­miðl­ana af Press­unni.

Samkvæmt árs­reikn­ingi kost­aði útgáfu­rétt­ur­inn sem Frjáls fjöl­miðlun keypti af Press­unni 476 millj­ónir króna. Er hann bók­færður sem 470 millj­óna króna óefn­is­leg eign eftir þró­un­ar­kostnað og afskriftir. Frjáls fjöl­miðlun var með nei­kvætt eigið fé upp á 13,4 millj­ónir króna. Þá kost­uðu kaup Dalsdals á öllu hlutafé Frjálsrar fjöl­miðl­unar félagið 30 millj­ónir króna, sam­kvæmt árs­reikn­ingi. Dals­dalur tap­aði 1,8 millj­ónum króna árið 2017 og var eigið fé félags­ins nei­kvætt um 1,4 millj­ónir króna.

Fullyrða að Björgólfur Thor standi að baki DV

 

Halldór Krist­manns­son, sem sér um sam­skipti við fjöl­miðla fyrir hönd Alvogen og athafna­manns­ins Róberts Wessmann, sagði í sam­tali við Stundina í júní að Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir, eða félög á hans vegum, standi á bak við fjár­mögnun DV eftir hat­urs­full átök milli hlut­hafa um fjöl­miðla­fyr­ir­tækið á síð­asta ári og þessu. Björgólfur Thor hafi jafn­vel bein afskipti af rit­stjórn DV. Sigurður hefur neitað því að svara hvort Björgólfur sé með í rekstri miðl­anna.

 

Eins og komið hefur fram í fjöl­miðlum hafa Róbert og Björgólfur Thor  átt í ára­löngum deilum sem hófust þegar þeir unnu saman að Actavis á síð­asta ára­tug. Björgólfur rak þá Róbert úr stóli for­stjóra Actavis eftir að hann hafði eign­ast sam­heita­lyfja­fyr­ir­tækið. Síðan þá hefur andað köldu á milli þeirra með til­heyr­andi mál­sóknum, skeyta­send­ingum í fjöl­miðlum og ann­ars konar deilum.

Félag tengt Róberti, Dalurinn ehf., setti tug­millj­óna króna hlutafé inn í Pressuna ehf. fyrr á árinu 2017 en stjórn Pressunnar seldi allar helstu eignir félags­ins út úr því í kjöl­farið til Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Þetta var gert án vit­neskju Dalsins og þýddi í reynd að Pressan var búin að selja þær eignir sem Dalurinn var nýbú­inn að kaupa í.

Segir viðsnúning á taprekstrinum í ár

Aðspurður hver fjár­magnar rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar, segir Karl Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri félags­ins, það vera Sigurð. „Við fáum fjár­magn frá eig­anda félags­ins.“

Karl Garð­ars­sonFram­kvæmda­stjóri Frjálsrar fjöl­miðl­unar von­ast eftir við­snún­ingi í rekstri miðl­anna.

Karl seg­ist von­ast til þess að rekstur félags­ins nái jafn­vægi á þessu ári. „Tekjur hafa auk­ist dálítið mikið hjá okkur, auk þess sem við höfum verið í fasa sem varðar aðhald í rekstri,“ segir Karl. „Það helst í hendur hvort tveggja, að taka til í rekstr­inum allt árið og að auka tekj­urnar.“

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, kynnti á dög­unum frum­varp um end­ur­greiðslur til einka­rek­inna fjöl­miðla. Stuðn­ing­ur­inn mun nema um 350 millj­ónum króna frá og með árinu 2019 og nema 20–25% af rit­stjórn­ar­kostn­aði fjöl­miðla, verði frum­varpið að lögum.

Karl hefur gagn­rýnt að það halli á einka­rekna fjöl­miðla í sam­keppni við RÚV og segir mik­il­vægt að útfærsla frum­varps­ins styðji við smærri fjöl­miðla. „Auðvitað skiptir það máli fyrir einka­rekna fjöl­miðla, en það á alveg eftir að koma í ljós hverju þetta skilar í raun fyrir minni fjöl­miðla,“ segir hann. „Það er svo­lítið erfitt að átta sig á þessu á meðan einni tölu er hent fram, því það liggur ekki fyrir hvernig þess­ari end­ur­greiðslu til fjöl­miðla verður í raun háttað. Það er talað um að end­ur­greiða kostnað við rit­stjórnir en það er ekki skil­greint hvað það þýðir í raun.“



Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eignarhald DV

FréttirEignarhald DV

Skuld­irnar út af fjöl­miðla­æv­in­týri Björg­ólfs Thors komnar yfir millj­arð

Sigurður G. Guð­jóns­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og eig­andi Dalsdals ehf., segir að unnið sé að upp­gjöri félags­ins sem var milli­liður í við­skiptum með hluta­bréf í DV. Engar nýjar fjár­fest­ingar hafa verið gerðar í félag­inu og eini lán­veit­andi þess er fjár­fest­ing­ar­fé­lags Björg­ólfs Thors. Enn á huldu af hverju Björgólfur fjár­magn­aði rekstur DV.
FréttirEignarhald DV

Novator sagði ósatt um lán til Frjálsrar fjöl­miðl­unar í rúm tvö og hálft ár

Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Novator, sem er í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, veitti fjöl­miðlum ítrekað rangar upp­lýs­ingar um 745 lán fyr­ir­tæk­is­ins til fjöl­miðla­fyr­ir­tækis. Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­trúi Novator, hætti þar í jan­úar. Andrés Jónsson segir að eitt það versta sem komið getur fyrir almanna­tengil sé að segja fjöl­miðlum ósatt.
FréttirEignarhald DV

Neituðu því að Björgólfur væri bak­hjarl DV: „Lítið um skjal­festar heim­ildir fyrir því sem ekki er“

Eigandi DV vildi ekki greina frá því hver lán­aði félagi sínu tæpan hálfan millj­arð til að fjár­magna tap­rekstur. Talskona Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar neit­aði því að hann væri lán­veit­and­inn. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur birt upp­lýs­ing­arnar vegna sam­runa eig­enda DV og Frétta­blaðs­ins. Þar kemur í ljós að Björgólfur Thor stóð að baki útgáf­unni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár