Leitaði hamingjunnar á Íslandi í ástarsorg

Anne Marie de Puits, frá New York, hafði skipu­lagt Íslands­ferð með ást­inni sinni. Ástin brást en Anne ákvað að rjúfa ást­ar­sorg­ina og leita ham­ingj­unnar ein í norðri.

Leitaði hamingjunnar á Íslandi í ástarsorg
Anne Marie Skipu­lagði ferð með mann­inum sem hún var ást­fangin af. Hann hætti við og gift­ist annarri konu, en hún fór samt. Mynd: Úr einkasafni

„Hug­myndin um að fara til Íslands fædd­ist eftir að ég úskrif­að­ist árið 2013 frá háskóla. Þetta er dálítið róm­an­tísk saga. Ég var leyni­lega ást­fangin af vini mínum heima í Banda­ríkj­unum. Áður en ég hélt til tveggja ára náms í Portúgal hitt­umst við. Hann sagði mér hve mikið hann lang­aði til að fara til Íslands og nefndi þann mögu­leika að við gætum farið saman eftir að ég útskrif­að­ist,“ segir Anne Marie de Puits, frá Denver í Banda­ríkj­unum, sem ferð­að­ist um allt Ísland þvers og kruss sum­arið 2016 í leit að ham­ingj­unni. Ferðalag hennar var merki­legt fyrir þær sakir að hún hafði aðeins með sér svefn­poka og dúk til að sofa undir og lét það ráð­ast af sam­tölum við Íslend­inga á förnum vegi til hvaða áfanga­staða hún færi hverju sinni. 

En eftir tveggja ára nám í Portúgal var komin upp breytt staða. Ástvinur hennar var ekki lengur til­bú­inn að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár