Vinir Hauks Hilmarssonar hyggjast fara til Sýrlands og leita hans

Fjöl­menntu á þing­palla og æsktu aðstoðar þing­heims. Vilja að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir því að Tyrkir heim­ili för um svæðið. Fara hvort sem heim­ild fæst eður ei.

Vinir Hauks Hilmarssonar hyggjast fara til Sýrlands og leita hans
Vilja aðstoð stjórn­valda Vinir Hauks Hilm­ars­sonar vilja aðstoð íslenskra stjórn­valda í sam­skiptum við tyrk­nesk stjórn­völd. Þeir vilja fá heim­ild til að fara um svæðið í Sýrlandi þar sem síð­ast er vitað af Hauki. Þeir fjöl­menntu á þing­palla í dag og ósk­uðu eftir hjálp þing­heims til þess. Mynd: Andrés Ingi Jónsson

Vinir Hauks Hilm­ars­sonar ætla sér að fara til Sýrlands til að leita upp­lýs­inga um afdrif hans. Þeir fjöl­menntu á þing­palla í dag og ósk­uðu lið­sinnis íslenskra stjórn­valda í þeim efnum. „Við viljum bara fá bréf upp á það að við getum leitað að Hauki í friði,“ segir vinur Hauks.

Lárus Páll Birg­is­son, sjúkra­liði og vinur Hauks, kall­aði eftir aðstoð þing­heims af þing­pöllum í dag. Lárus Páll bað þar þing­menn um að hjálpa sér að kom­ast að því hvað hefði komið fyrir vin hans. „Hjálpið okkur í þessu. Það eina sem við þurfum er bréf sem segir að við megum fara á svæðið og leita að honum. Það er það eina sem við erum að biðja ykkur um núna. Það er fólk við landa­mærin og bíður að kom­ast inn. Það er verið að bíða eftir svörum frá ykkur.“

„Við fáum engin svör“

Í sam­tali við Stundina segir Lárus Páll að það sem vinir Hauks séu að óska eftir sé að íslensk stjórn­völd beiti sér gagn­vart tyrk­neskum stjórn­völdum í því skyni að fá heim­ild fyrir vini og aðstand­endur Hauks til að fara um það svæði Sýrlands þar sem Haukur er tal­inn hafa horfið. „Við höfum nefnt þetta á fundum með full­trúum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins en þá vorum við vöruð við því að fara þangað út, íslenska ríkið gæti ekki tryggt öryggi okkar þar úti og við vorum beðin um að fara ekki. Við erum hins vegar til­búin að taka þá áhættu, þegar öll sund lok­ast verður maður að grípa til örþrifa­ráða. Þetta er að verða núna eini mögu­leik­inn sem við höfum, allt annað er að verða þraut­reynt. Við fáum engin svör, það er eng­inn að leita að Hauki. Svæðið er undir stjórn Tyrkja, banda­manna íslenskra stjórn­valda, og það ætti því að vera hægð­ar­leikur að fara þangað og um svæðið.“

Lárus segir að fólk sé til­búið til að fara til Sýrlands að leita að Hauki, bæði vinir hans hér heima og erlendis. „Það er fólk í bið­stöðu sem bíður bara eftir að geta kom­ist til Sýrlands. Við viljum að íslensk stjórn­völd fái Tyrki til að veita okkur heim­ild til að fara um svæðið án trufl­ana svo við getum farið um svæðið. Við viljum bara fá bréf upp á það að við getum leitað að Hauki í friði.“

Óvissan erfiðust

Ef slík heim­ild fáist þá muni hópur fólks fara til Tyrk­lands og hefja leit að Hauki á þeim slóðum sem síð­ast er vitað til að hann hafi verið staddur á. Til þess verði beitt öllum þeim með­ölum sem til­tæk séu. „Hann gufaði ekki upp, lík­ami hans er ekki horf­inn. Hann steig ekki upp til himmna, hann Haukur. Hann er ein­hvers staðar. Erf­ið­asta hugs­unin er hins vegar þessi: Hvað ef hann er á lífi? Hvað ef hann er í haldi Tyrkja sem hryðju­verka­maður? Þangað til að við vitum hvað gerð­ist er og hvernig þetta bar að, þá er alltaf þessi óvissa. Hún er eig­in­lega erf­ið­ust, það er svo erfitt að ná ein­hverri sátt þegar svona margir endar eru lausir.“

„Þegar öll sund lok­ast verður maður að grípa til örþrifa­ráða“

Lárus segir jafn framt að hvort heldur sem leyfi fáist til að fara til Sýrlands frá Tyrkjum eða ekki þá verði farið. „Það væri auð­vitað best ef við gætum flogið til Tyrk­lands og keyrt síðan yfir landa­mærin í friði. Það er það sem við viljum að íslensk stjórn­völd beiti sér fyrir. En ef það ger­ist ekki þá finnum við aðrar leiðir.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár