Kerfið gerir ekki ráð fyrir fötluðum foreldrum

Víða er van­þekk­ing á stöðu fatl­aðra for­eldra, segir pró­fessor í fötl­un­ar­fræði. Fatlaðir for­eldrar í sam­búð segja kerfið gera ráð fyrir að makar þeirra sinni for­eldra­hlut­verk­inu. Alþjóð­legar rann­sóknir benda til þess að fatl­aðir for­eldrar séu hlut­falls­lega lík­legri til þess að vera sviptir for­sjá barna sinna en aðrir for­eldrar.

Kerfið gerir ekki ráð fyrir fötluðum foreldrum
Breytt við­mót Margrét Ýr Ein­ars­dóttir upp­lifði breytt við­mót gagn­vart sér sem móður eftir að fötlun hennar varð var­an­leg. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég skil ekki hvers vegna ég var ekki bara geldur eftir slysið, því ekki er manni gert kleift að sinna börn­unum sjálfur,“ segir Arnar Helgi Lárusson, for­maður Samtaka end­ur­hæfðra mænu­skadd­aðra (SEM), í sam­tali við Stundina. 

Hann segir ekki gert ráð fyrir fötl­uðum for­eldrum, heldur sé gert ráð fyrir að ófötluð eig­in­kona hans sinni þessu hlut­verki. „Ég hef reynt að standa mig sem for­eldri og ég tel mig vera full­kom­lega í stakk búinn til þess að ala upp börnin mín og hugsa vel um þau. En það er umhverfið sem gerir það stundum að verkum að ég get ekki fylgt þeim eftir,“ segir Arnar Helgi.

Stundin ræddi við fatl­aða for­eldra sem segja frá reynslu sinni af for­eldra­hlut­verk­inu og hvernig kerfið hindri þá í því að sinna börnum sínum. Einnig er rætt við pró­fessor í fötl­un­ar­fræði við Háskóla Íslands, sem hefur sér­hæft sig í stöðu fatl­aðra for­eldra. Öll eru sam­mála …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár