Norðurlöndin á milli Hitlers og Stalín: Hvað hefði getað farið öðruvísi?

Heims­myndin hefði orðið önnur ef ekki var fyrir ákvarð­anir á Norð­ur­löndum sem hefðu auð­veld­lega getað fallið öðru­vísi.

Norðurlöndin á milli Hitlers og Stalín: Hvað hefði getað farið öðruvísi?
Nasistar í Bergen Mynd:

Í seinni heims­styrj­öld lentu Norð­ur­löndin hvort sínum megin við víg­lín­urnar og reyndar allan hring­inn, allt frá því að vera í liði með Þjóð­verjum og yfir í að vera her­mundir af þeim yfir í að vera í liði með banda­mönnum eða hernumdir af þeim, eða þá að reyna að feta sig ein­hvern veg­inn þarna á milli. 

En hvert var stefna Norð­ur­landa þegar ófriður braust út í álf­unni árið 1939? Hún var sú sama og í fyrra stríði, að halda sig utan við átökin. Þetta hafði þeim tek­ist árin 1914–18, að frá­töldu Finn­landi sem þá var hluti af rúss­neska keis­ara­dæm­inu. En hver var besta leiðin til að við­halda hlut­leys­inu? 

Upplausn Þjóðabandalagsins

Á milli­stríðs­ár­unum settu Norð­ur­löndin traust sitt á Þjóða­banda­lagið, sem var nokkur konar blanda af Sam­ein­uðu þjóð­unum og NATO. Árás á eitt ríki átti að kalla á við­brögð allra hinna. Á fjórða ára­tugnum fór þetta kerfi að gliðna í sundur. Þýska­land sagði sig úr banda­lag­inu árið 1933, Sov­ét­ríkin voru tekin inn í stað­inn, en Banda­ríkin höfðu haldið sig utan við frá upp­hafi. Ekkert var aðhafst þegar Japanir lögðu undir sig Man­sjúríu árið 1931 og þegar Ítalir réð­ust á Eþíópíu 1935 og enn var ekk­ert gert virt­ist mörgum sem banda­lagið þjón­aði litlum til­gangi. Árið 1936 sögðu Norð­ur­löndin sig úr varn­ar­sam­starf­inu, og ætl­uðu þar eftir að taka afstöðu til hvers máls fyrir sig. Og það kom brátt að því að röðin kæmi að þeim. 

Ástæða þess að sótt var að Norð­ur­lönd­unum úr ýmsum áttum árin 1939–40 var ekki síst sú að ekk­ert stór­veld­anna treysti þeim til að geta varið sig gagn­vart hinum. Stalín hafði áhyggjur af því að Þjóð­verjar myndu sækja að sér í gegnum Finnland, á meðan Þjóð­verjar treystu ekki Norð­mönnum til að vernda hlut­leysi sitt gagn­vart Bretum sem lögðu tund­ur­dufl í norska land­helgi. En hvers vegna mynd­uðu Norð­ur­löndin þá ekki sam­eig­in­legt varn­ar­banda­lag, sem hefði kannski ekki getað sigrað í stríði við stór­veldin, en þó haft nægan fæl­ing­ar­mátt til að halda þeim frá? 

Norð­ur­löndin voru reyndar ekki alltaf sam­stiga og áttu í ýmsum inn­byrð­is­deilum á fyrri hluta 20. aldar. Svíar og Norðmenn höfðu næstum lent í stríði þegar Norðmenn lýstu yfir sjálf­stæði árið 1905 þó ekki hafi orðið úr. Svíar og Finnar deildu um Álandseyjar svo að Þjóða­banda­lagið varð að sker­ast í leik­inn, og norskir ævin­týra­menn með stuðn­ingi varn­ar­mála­ráð­herr­ans Vidkun Quisling gerðu inn­rás í Austur-Grænland árið 1931. Þá stefndi um tíma í stríð við Dani, en aftur skarst Þjóða­banda­lagið í leik­inn og úrskurð­aði Dönum í vil svo að Norðmenn létu undan. Ef finna ætti sam­eig­in­legan óvin var heldur ekki ljóst hver sá ætti að vera. Finnar höfðu mestar áhyggjur af Rússum, Danir og Norðmenn af Þjóð­verjum og Svíar urðu að líta í báðar áttir. Nið­ur­staðan varð sú að eftir að stríð hafði brot­ist út í álf­unni hitt­ust kóng­arnir þrír og for­seti Finn­lands í Stokk­hólmi í októ­ber árið 1939 og lýstu sam­eig­in­lega yfir hlut­leysi sínu, en ekk­ert var gert til að sam­rýma aðgerðir. Þegar ráð­ist var á Finnland rúmum mán­uði síðar stóðu þeir því einir gegn Sov­ét­ríkj­unum. 

Vetrarstríðið

En hvers vegna kusu Finnar að berj­ast gegn Rússum, þó ljóst væri flestum, þar á meðal Mann­er­heim mar­skálki, yfir­manni hers­ins, að þeir gætu aldrei sigrað í slíku stríði? Kröfur Stalíns voru ekki svo ýkja ósann­gjarnar, hann vildi færa landa­mærin frá Moskvu en bauð Finnum meira land­svæði á móti ann­ars staðar. Þá vildi hann fá að hafa rúss­neska her­stöð á finnskri jörð, og var þetta betra til­boð en Finnar fengu að stríði loknu. En var Stalín treystandi? Eystra­salts­löndin geng­ust við álíka til­boðum, með þeim afleið­ingum að löndin voru öll inn­limuð í Sov­ét­ríkin. Vel má vera að það sama hefði hent Finna. Sú ákvörðun Stalíns að stofna finnskt Sov­étlýð­veldi sín megin landamær­anna með finnska komm­ún­ist­ann Otto Ville Kuusinen í far­ar­broddi bendir og til þess að ætl­unin hafi verið að sam­eina löndin tvö undir sov­éskri stjórn. Það sem við vitum fyrir víst er að Stalín bjóst við fjög­urra vikna stríði og gaf skrið­drekum sínum skipun um að nema staðar við sænsku landa­mærin, lengra átti ekki að halda. 

Hreindýr í stríðiFinnski her­inn not­aði hrein­dýr til að flytja vistir.
Vopn FinnaFinnar not­uðu meðal ann­ars stærð­ar­innar teygju­byssu til að slöngva hand­sprengjum á sov­éska inn­rás­ar­her­menn.

En það fór á annan veg. Finnski her­inn hafði verið kall­aður út í tæka tíð og veitti öfl­ugt við­nám og stríðið stóð í þrjá mán­uði. Svíar lýstu ekki yfir hlut­leysi heldur sögð­ust ekki beinir þátt­tak­endur. Þeir sendu Finnum tals­vert magn vopna, sænskir sjálf­boða­liðar héldu af stað á víg­stöðv­arnar og sænski flug­her­inn tók að sér varnir Lapp­lands, þó mál­aður í ein­kenn­islitum Finna. Bretar og Frakkar, þrátt fyrir að vera þegar í stríði við Þjóð­verja, ákváðu seint og um síðir að sker­ast í leik­inn og senda her í gegnum Noreg og Svíþjóð til stuðn­ings Finnum, sem átti um leið að skera á járn­grýt­is­birgða­línur Svía til Þýska­lands. Á sama tíma átti að gera loft­árásir á olíu­vinnslu­stöðvar Rússa í Kákasus­hér­uð­unum frá frönskum bæki­stöðvum í Sýrlandi. Þessi mjög svo metn­að­ar­fulla áætlun um að sigra í stríð­inu án þess að ráð­ast á óvin­inn beint komst þó aldrei til fram­kvæmda, því þann 13. mars sömdu Finnar um frið. Finnar misstu næst­stærstu borg sína, Viipuri, og um 13 pró­sent land­svæðis síns, en þeir héldu sjálf­stæð­inu.

 

Heim­ild­ar­mynd um Finnska vetr­ar­stríðið. 

 

Þjóðverjar sækja norður

Brölt þetta hafði fært athygli stór­veld­anna norður á bóg­inn og þann 9. apríl 1940 réð­ust Þjóð­verjar á Danmörku og Noreg. Lítið var um varnir í fyrstu. En hefðu menn getað gert betur? 

Danir börð­ust reyndar í fyrstu á Jót­lands­skaga með nokkrum árangri þar til sú ákvörðun var tek­inn eftir sex klukku­tíma að gef­ast upp af ótta við loft­árásir á Kaup­manna­höfn. Vissu­lega var úti­lokað fyrir Dani að sigra í stríði við Þjóð­verja til lengri tíma litið, en þeir hefðu getað veitt öfl­ugra við­nám sem mögu­lega hefði haft áhrif á víg­stöðv­arnar ann­ars staðar. En þetta hefði kostað miklar fórnir. Í stað­inn var farin sú leið að vinna með Þjóð­verjum, og var þeirri stefnu fylgt allt fram í ágúst 1943 þegar beint her­nám tók við.

Lega Dan­merkur gerði varnir vissu­lega erf­iðar, en öðru máli gilti um Noreg. Landið er langt og mjótt og með ótal nátt­úru­legra far­ar­tálma. Þar að auki gátu Norðmenn reitt sig á hjálp frá Bretum, sem réðu lögum og lofum á sjó. Því má í raun furða sig á að inn­rás Þjóð­verja hafi gengið jafn vel og raun bar vitni. Er þetta að hluta til Norð­mönnum sjálfum að kenna, sem huns­uðu allar við­var­anir og köll­uðu ekki her­inn út strax af ótta við að styggja Þjóð­verja. Sumum sveitum var jafn­vel sagt að mæta til her­stöðva sinna að þrem dögum liðnum, en þá var Suður-Noregur löngu fall­inn. 

Minnstu mátti þó muna að enn verr færi. Ætlun Þjóð­verja var að grípa rík­is­stjórn­ina og kon­ung­inn í bólinu og knýja þannig Norðmenn til upp­gjafar. En í hinu forna Oscarsborg virki í Ósló­ar­firði ákvað yfir­mað­ur­inn Birger Erikssen að hefja skot­hríð án þess að hafa fengið um það skipun að ofan. Flagg­skipi Þjóð­verja, Blücher, var sökkt og hinum stökkt á flótta. Kon­ung­ur­inn og rík­is­stjórnin komust undan og ákveðið var að berj­ast áfram. Bar­átt­unni lauk ekki fyrr en 10. júní þegar fall Frakk­lands stóð fyrir dyrum, en útlaga­stjórn Noregs í London hélt stríðs­rekstr­inum áfram allt fram að stríðslokum. 

 

Þýsk sam­tíma­mynd fjallar um aðgerðir Þjóð­verja til að „verja hlut­leysi“ Dan­merkur og Noregs, með inn­rás.

 

Ófarir í Noregi komu Churchill að

Þetta hefði þó auð­veld­lega getað farið á annan veg. Rík­is­stjórnin íhug­aði um stund að gef­ast upp og hefði þá farið dönsku leið­ina, starfað með Þjóð­verjum en lík­lega hefði staðan eftir sem áður snú­ist upp í beint her­nám þegar fór að halla undan fæti hjá Hitler eins og raunin varð í Danmörku. En hinn mögu­leik­inn var einnig fyrir hendi, að kalla út her­inn strax eins og Finnar gerðu, sem hefði gert Þjóð­verjum mun erf­ið­ara fyrir. Þetta hefði jafn­vel getað haft afleið­ingar fyrir gang stríðs­ins. Eftir ófar­irnar í Noregi sagði Chamberlain, for­sæt­is­ráð­herra Breta, af sér og Winston Churchill kom í hans stað. Ef tek­ist hefði að stökkva Þjóð­verjum á flótta í Noregi hefði Chamberlain lík­lega enn verið for­sæt­is­ráð­herra þegar Frakkar gáfust upp, og hver veit nema hann hefði þá reynt að semja um frið og stríð­inu lokið árið 1940 með sigri Þjóð­verja. 

Svíar hafa fengið afar bágt fyrir fram­göngu sína í stríð­inu, Norðmenn eru þeim gramir fyrir að hafa ekki veitt sér aðstoð gegn Þjóð­verjum og Finnar sömu­leiðis gegn Rússum. En staða þeirra var flókin. Svíar voru stærst Norð­ur­landa og varn­ar­banda­lag við Finna hefði hugs­an­lega dugað til að halda þeim utan við stríðið. Til­raunir voru gerðar í þá átt árið 1938 þegar Svíar og Finnar íhug­uðu í sam­ein­ingu að koma fyrir vörnum á Álandseyjum, en við þetta var hætt sökum and­stöðu Rússa. Þá var íhugað að stofna sam­bands­ríki með Finnum árið 1940, en í þetta sinn lögð­ust bæði Rússar og Þjóð­verjar gegn því, enda voru Þjóð­verjar þá farnir að íhuga inn­rás í Sov­ét­ríkin og vildu hafa Finna með.

Svíar hefðu getað veitt Norð­mönnum beinan stuðn­ing, en Þjóð­verjar voru með við­bragðs­á­ætlun gegn slíku og reikn­uðu með að fjórar vikur tæki að her­nema landið. Erfitt er að sjá að her­numin Svíþjóð hefði reynst gagn­legri en hlut­laus, en gyð­ingar og aðrir flótta­menn frá Noregi og Danmörku áttu athvarf þar. Þá tókst diplómat­anum Wallenberg að bjarga þús­undum gyð­inga í Ung­verja­landi með því að gefa þeim sænska passa. Ólíkt fyrri heims­styrj­öld, þar sem Svíar íhug­uðu að taka þátt í stríð­inu við hlið Þjóð­verja, voru í þetta sinn engar áætl­anir gerðar um inn­rás í önnur lönd, nema að menn gerðu ráð fyrir þeim mögu­leika að þurfa að ráð­ast inn í Danmörku og Noreg árið 1945 ef Þjóð­verjar gæfust ekki frið­sam­lega upp þar eða þá að komm­ún­istar yrði lík­legir til að kom­ast til valda. Eftir stendur að Svíar frömdu hlut­leys­is­brot til handa Þjóð­verjum, leyfðu þeim að flytja her­menn yfir landið og seldu þeim járn­grýti nán­ast fram á síð­asta dag, jafn­vel eftir að mesta inn­rás­ar­hættan var gengin yfir.

 

Áróð­urs­kvik­mynd nas­ista um stríðið um Noreg, frá árinu 1940.

 

Frosin lík í Vetr­ar­stríð­inuLátnir, rúss­neskir her­menn í Finn­landi í Vetr­ar­stríð­inu 1939 til 1940.

Stærstu orrustur í sögu Norðurlanda

Svíar héldu hlut­leysi sínu einir Norð­ur­landa, en það voru Finnar sem komu verst út úr stríð­inu. Friður hélst í rúmt ár á Kirjálaeiði eftir enda­lok Vetr­ar­stríðs­ins, en þann 25. júní 1941 braust stríð þar út á ný, og í þetta sinn voru það Finnar sem áttu upp­tökin. Hvað olli? 

Í raun hafði hvor­ugur stríðs­að­ila verið ánægður með nið­ur­stöðu Vetr­ar­stríðs­ins. Stalín hafði verið nið­ur­lægður og margir ráða­menn í Helsinki ótt­uð­ust að hann myndi reyna aftur. Á sama tíma var almenn­ingur í Finn­landi óánægður með að svo mikið land hefði verið látið af hendi. Hafði stríðið ekki þrátt fyrir allt gengið nokkuð vel? Finnar leit­uðu á náðir Þjóð­verja eftir lok stríðs­ins og öfl­ugur þýskur her kom sér fyrir í Lapp­landi. Þrem dögum eftir að Þjóð­verjar réð­ust á Sov­ét­ríkin ákváðu Finnar að gera hið sama. 

Markmið Finna í stríð­inu voru tak­mörkuð. End­ur­heimta skyldi hin glöt­uðu land­svæði en haldið var áfram yfir gömlu landa­mærin og öll Karelía her­numin. Fólk þar tal­aði mál­lýsku sem var svipuð finnsku og nú skyldi inn­lima svæðið allt í Finnland og höf­uð­borgin Petrozavodsk var end­ur­skírð „Ään­isl­inna“. Var þetta hinn gamli draumur margra þjóð­ern­is­sinna um stór-Finnland, sem þeir höfðu viljað stofna strax árið 1918 þegar Rússar voru upp­teknir í borg­ara­stríði sínu. Sumum fannst þó full­langt seilst. Churchill hafði stutt Finna í Vetr­ar­stríð­inu, en var nú kom­inn í banda­lag við Stalín. Hann sendi Mann­er­heim skeyti þar sem Finnar voru beðnir um að nema staðar, en við því var ekki orðið og Bretar lýstu Finnum stríð á hendur, án þess að mikið yrði úr átökum þeirra á milli. Banda­ríkja­menn gerðu það þó ekki þegar þeir gengu með Rússum í lið undir lok árs. 

Eigi að síður námu Finnar staðar þegar Petrozavodsk hafði verið her­numin og við tók stöðu­stríð þar sem víg­línan færð­ist lítið fram á sumar 1944. Þá voru Þjóð­verjar teknir að hörfa út úr Rúss­landi og Banda­menn lentir í Normandí. Finnar höfn­uðu kröfum Stalíns um skil­yrð­is­lausa upp­gjöf og í júlí hélt meg­in­þungi Rauða hers­ins, sem nú var orð­inn stríðs­hertur og vel vopnum búinn, gegn Finnum. Aftur tókst að stöðva hann í stærstu land­orr­ustum í sögu Norð­ur­landa, en Viipuri glat­að­ist enn á ný. Friður var sam­inn og Finnar héldu svip­uðum landa­mærum og þeir þurftu að sætta sig við árið 1940 en misstu Petsamo, sem hafði tryggt þeim aðgang að Atl­ants­hafi, að auki. Í frið­ar­skil­mál­unum voru einnig ákvæði um að þeir yrðu að segja fyrrum banda­mönnum sínum, Þjóð­verjum, stríð á hendur og greiða Rússum háar stríðs­skaða­bætur. En sjálf­stæð­inu héldu þeir sem fyrr.  

Sovét-Finnland? 

En hvernig hefði farið ef Finnar hefðu tapað eða gef­ist upp sum­arið 1944? Líklega hefðu þeir hlotið svipuð örlög og frændur þeirra Eistar, verið inn­lim­aðir í Sov­ét­ríkin eða gerðir að lepp­ríki. Sjálf­stæðið hefðu þeir vafa­laust end­ur­heimt árin 1989-91 eins og önnur aust­an­tjalds­lönd, en átt langt í land með að ná þeim nor­rænu lífs­gæðum og þeir búa við í dag. Á hinn bóg­inn er lík­legt að sem hluti af Sov­ét­ríkj­unum hefðu þeir fengið hin gömlu land­svæði aftur, og væri Finnland þá nokkru stærra. 

En hefðu Finnar getað haldið frið­inn eftir 1940? Þegar þýskur her var kom­inn inn í landið og inn­rásin hófst sum­arið 1941 var það orðið of seint, en ef til vill hefðu þeir getað haldið fast í hlut­leysið að Vetr­ar­stríði loknu og látið gott heita. Rússar hefðu haft um nóg annað að hugsa næstu árin en að ráð­ast aftur á Finnland. Var því nokkuð ógæti­legt af Finnum að halda í stríð þar sem þeir sjálfir höfðu lítil áhrif á úrslitin en yrði sigrað eða tapað af Þjóð­verjum við borg­ar­mörk Moskvu eða suður í Stalín­grad. Vafa­laust munu margir Íslend­ingar berja hin mikla minn­is­varða um síð­ar­nefndu orr­ust­una augum í sumar þegar lands­liðið spilar í Vol­gograd, sem er það sem borgin heitir í dag. Um þátt Finna segir í skáld­sög­unni Óþekkti her­mað­ur­inn eftir Väinö Linna, sem sjálfur barð­ist í fram­halds­stríð­inu. Hefur hún nú verið kvik­mynduð í þriðja sinn og er sýnd í Bíó Paradís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár