Stóra plan GAMMA

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið GAMMA hefur stækkað ört síð­ast­liðin ár og teygir starf­semi sína nú til fjög­urra landa. Starf­semin er farin að líkj­ast starfi banka um margt þar sem fyr­ir­tækið sækir inn á lána­mark­að­inn. GAMMA er með sterk tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og talar fyrir auk­inni einka­væð­ingu og minnk­andi rík­is­af­skiptum við upp­bygg­ingu inn­viða sam­fé­lags­ins.

Alls 113 fyr­ir­tæki, eign­ar­halds­fé­lög og sjóðir hvers konar eru skráðir til heim­ilis í hús­næð­inu sem hýsir höf­uð­stöðvar sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins GAMMA í Garða­stræti 37 í miðbæ Reykja­víkur. Rekstur GAMMA hefur blásið út í góð­ær­inu á síð­ustu árum og farið frá því að vera fjög­urra manna smá­fyr­ir­tæki  í risa á fjár­mála­mark­aðnum á Íslandi. GAMMA stýrir  nú 130 millj­örðum króna fyrir óþekkta fjár­festa í gegnum hina ýmsu sjóði sína.

„Þeir eru búnir að vera til á rosa­lega góðu tíma­bili. Þeir fljóta áfram á góðu árferði; það er búið að vera nán­ast stans­laust góð­æri frá því GAMMA byrj­aði,“ segir ónafn­greindur sér­fræð­ingur á fjár­mála­mark­aði sem Stundin ræddi við um GAMMA og fékk til að miðla sýn sinni á fyr­ir­tækið.  Sér­fræð­ing­ur­inn segir að orð­spor GAMMA á fjár­mála­mark­aði á Íslandi sé almennt séð mjög gott og starfs­menn þess þyki traustir og fag­legir – tekið skal fram að við­kom­andi hefur engin tengsl við fyr­ir­tækið.  „Eigna­fólk er voða­lega mikið með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Sjóðsstýringarfyrirtækið GAMMA

Ásgeir mælir gegn opinberu eignarhaldi  leigufélaga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“
Fréttir

Ásgeir mælir gegn opin­beru eign­ar­haldi leigu­fé­laga: „Hef ekki komið nálægt GAMMA síðan 2014“

Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði, hélt fyr­ir­lestur um leigu­fé­lög og hús­næð­is­mark­að­inn fyrir stærsta leigu­fé­lag lands­ins fyrr í dag. Hann var áður efna­hags­ráð­gjafi GAMMA sem á eitt stærsta leigu­fé­lag lands­ins. Ásgeir seg­ist ekki hafa komið nálægt GAMMA frá 2014 og að hann vinni ekki fast fyrir neina hags­mun­að­ila á leigu­mark­aðnum í dag.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár