Eftirlitsstofnanir, fjölmiðlar og grasrótarhópar hafa setið undir stanslausum árásum á fyrsta ári Donald Trumps í embætti. Forsetinn hefur sett sérstakan andstæðing Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna yfir stofnunina og afturkallað fleiri reglugerðir en nokkur fyrirrennara hans gerði á fyrstu mánuðunum í embætti. Hátt í 200 manns sem mótmæltu við setningarathöfn Trumps gætu átt yfir höfði sér áratugalangt fangelsi. Þá hefur árásum hans á fjölmiðla verið líkt við stalínisma.
Stríð TrumpsDonald Trump, 45. forseti Bandaríkjanna, hefur á fyrsta ári sínu í embætti verið í stríði við fjölmiðla, mótmælendur og þær stofnanir sem eiga að veita aðhald. Mynd: Shutterstock
Það var fyrir rétt rúmu ári síðan, þann 20. janúar 2017, sem Donald Trump var svarinn í embætti 45. forseta Bandaríkjanna í skugga einhverra fjölmennustu mótmæla í sögu Bandaríkjanna. Milljónir komu saman víðs vegar um landið og hrópuðu slagorð gegn nýja forsetanum, þar á meðal yfir hálf milljón í höfuðborginni Washington. Þrátt fyrir að mest hafi farið fyrir hinni svokölluðu kvennagöngu gegn Trump [e. Women’s March Against Trump] í fjölmiðlum, enda var hún fjölmennust, komu fjölmargir aðrir hópar að mótmælunum, svo sem Occupy-hreyfingin, samtök hernaðarandstæðinga og hópar andfasista sem skipulögðu sig undir slagorðinu DisruptJ20.
Burt með reglugerðirTrump hefur verið iðinn við að draga til baka eða afturkalla reglugerðir sem eiga að hafa það hlutverk að vernda borgarana gagnvart stórfyrirtækjum og/eða ríkinu sjálfu. Þetta hefur raunar verið hans hjartans mál frá því að hann sjálfur var virkur í viðskiptalífinu.
Ýttu á + við höfund, fréttamál eða greinaröð til að fylgja því og fá tölvupóst þegar eitthvað nýtt kemur, einn á dag í mesta lagi. Því sem þú fylgir stjórnarðu á Minni síðu.
Athugasemdir
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Athugasemdir