Starfaði fyrir ráðuneytið og hagsmunaaðila á sama tíma

Jón Þrándur Stef­áns­son var starfs­maður nefndar sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra um stefnu­mótun í lax­eldi. Í nefnd­inni sat vinnu­veit­andi hans, Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, sem var skip­aður af hags­muna­sam­tökum lax­eld­is­fyr­ir­tækja. Jón Þrándur segir enga hags­muna­á­rekstra í mál­inu.

Starfaði fyrir ráðuneytið og hagsmunaaðila á sama tíma
Unnu báðir að stefnu­mót­un­inni Kjartan Ólafsson og Jón Þrándur Stef­áns­son, sem sjást hér ásamt tveimur öðrum starfs­mönnum Markó Partners, unnu báðir að skýrslu um stefnu­mótun í lax­eldi á Íslandi í fyrra og vinna einnig saman hjá umræddu fyr­ir­tæki. Kjartan er stjórn­ar­for­maður og hlut­hafi í stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tæki Íslands. Mynd: mbl/Ómar Óskarsson

Starfs­maður ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækis sem er í eigu stjórn­ar­for­manns og hlut­hafa stærsta lax­eld­is­fyr­ir­tækis Íslands, Kjartans Ólafs­sonar, vann fyrir atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið að stefnu­mót­un­ar­vinnu um lax­eldi á Íslandi. Vinnu manns­ins, Jóns Þrándar Stef­áns­sonar, fyrir ráðu­neytið lauk þann 15. des­em­ber síð­ast­lið­inn en hann var starfs­maður nefnd­ar­innar um stefnu­mótun í lax­eldi sem skil­aði af sér skýrslu síð­asta haust. Í svari frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu segir um þetta: „Jón Þrándur starf­aði hér sem verk­taki á síð­asta ári og kom að vinnu vegna lax­eld­is­mála.“

Jón Þrándur segir að ráðu­neytið hafi leitað til sín og að hann hafi unnið þar sem verk­taki og ráðu­neytið þurfi því að svara fyrir ráðn­ing­una. Á þessum tíma var Jón Þrándur fast­ráð­inn starfs­maður ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækis stjórn­ar­for­manns Arnarlax, Markó Partners ehf., sem stjórn­ar­for­mað­ur­inn, Kjartan Ólafsson, stýrir sem fram­kvæmda­stjóri og á 50 pró­senta hlut í. Jón Þrándur starfar enn hjá Markó Partners ehf.

Kjartan Ólafsson var sjálfur nefnd­ar­maður í stefnu­mót­un­ar­nefnd­inni um fram­tíð lax­eldis á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

SFS gagnrýnir breytingu á gjafakvóta í laxeldi og talar um hann eins og eign
FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár