Umtalaðasta símtalið birt: „Þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in“

Efni sím­tals Davíðs Odds­sonar og Geirs Haarde stang­ast á við síð­ari málsvörn Geirs, sem sagð­ist síðar hafa „tekið rétta ákvörðun“ þegar hann hafi „leyft“ bönk­unum að falla. Þvert á móti lagði hann sig fram um að lána Kaup­þingi 100 millj­arða króna af fé rík­is­ins til að halda bank­anum á floti.

Umtalaðasta símtalið birt: „Þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in“
Geir Haarde Lánaði Kaup­þingi í hrun­inu vit­andi að pen­ing­arnir fengjust varla end­ur­greiddir. Mynd: Pressphotoz

„Þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in,“ sagði Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, við Davíð Oddsson, þá seðla­banka­stjóra, þegar þeir ákváðu að lána 100 millj­arða króna til Kaup­þings á degi íslenska banka­hruns­ins, vit­andi að pen­ing­arnir fengjust að öllum lík­indum ekki til baka. 

Símtal þeirra tveggja dag­inn sem neyð­ar­lög voru sett vegna banka­hruns­ins 6. októ­ber 2008, sem hljóð­ritað var í seðla­bank­anum, hefur loks­ins verið birt. Það er Morg­un­blaðið, sem Davíð rit­stýrir, sem birtir sím­talið, og er full­yrt í grein blaðs­ins að Davíð hafi ekki vitað af upp­tök­unni. Símtalið hefur verið umtalað allt frá hruni, þar sem talið var að það gæti veitt inn­sýn í atburði og ákvarð­ana­ferla í efna­hags­hrun­inu. Telja má að íslenska ríkið hafi á end­anum tapað 35 millj­örðum króna á ákvörð­un­inni sem tekin var í sím­tal­inu.

Í sím­tal­inu kemur fram að allir bank­arnir séu að fara á haus­inn og að Kaupþing þurfi lán til að lifa af í nokkra daga. „Já, en þá er að við erum ekki með pen­ing í þetta,“ segir Davíð Oddsson. „Við erum að fara alveg niður að rass­gati og við ætlum meira að segja að draga á Dan­ina sem ég tal­aði við í gær og sagði að við myndum ekki gera.“

Þá boðar Davíð að veð verði gegn lán­inu í FIH-bank­anum í Danmörku. „Því þá við megum ekki, sko, við megum ekki setja íslenska ríkið á galeið­una,“ segir hann.

„Nei, nei þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in,“ tekur Geir undir.

Lán án fyrirsjáanlegrar endurgreiðslu

Íslensk yfir­völd lán­uðu Kaup­þingi 100 millj­arða króna, vit­andi að lánið feng­ist að öllum lík­indum endu­greitt. Samtalið hefst að frum­kvæði Davíðs sem vill koma á fram­færi hversu gagn­lítið það er að veita lánið: „Sæll það sem ég ætl­aði að segja þér, sko, sko, við út af fyrir sig getum í dag skrapað saman 500 millj­ónir evra en nátt­úr­lega, en erum þá komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka, sko,“ segir Davíð. Geir tekur undir það og segir „nei“.

„Ég býst við því að við fáum ekki þessa pen­inga til baka.“

„Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi,“ áréttar Davíð. „Ég býst við því að við fáum ekki þessa pen­inga til baka. Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósann­indi eða við skulum segja ósk­hyggja.“

FIH-bankinn líka í vanda

Í sím­tal­inu kemur fram af hálfu Davíðs að gegn lán­inu til Kaupings sé fari seðla­bank­inn fram á veð í FIH-bank­anum í Danmörku. Eftir efna­hags­hrunið tók seðla­bank­inn við eign á FIH-bank­anum. Síðar kom í ljós að sá banki var í veru­legum vand­ræðum og þurfti danska ríkið að bjarga honum. Árið 2010 var greint frá því að bak­inn hefði verið seldur, og var látið í það skína að íslenska ríkið hefði í raun komið út úr við­skipt­unum með hagn­aði. Þá kom fram að seðla­bank­inn fengi greitt að fullu, en síðar varð ljóst að bank­inn fékk aðeins stað­greiddan rúman helm­ing upp­hæð­ar­innar, um 39 millj­arða króna. Í Morg­un­blað­inu, sem rit­stýrt er af fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, og Við­skipta­blað­inu, var full­yrt að seðla­bank­inn hafi verið svik­inn í sviðkipt­unum og að hann hefði átt að fá 100 millj­arða króna.

Áður hafði Glitnir, með Þorstein Má Bald­vins­son í stjórn­ar­for­mennsku, farið fram á hjálp á fundi með Davíð Oddssyni í Seðla­bank­anum 25. sept­em­ber en fengið synjun frá Davíð. Eftir fund­inn seldu margir lyk­il­starfs­menn Glitnis, og fleiri tengdir aðilar, meðal ann­ars núver­andi for­sæt­is­ráð­herra og fjöl­skyldu­með­limir hans, bréf sín í pen­inga­mark­aðs­sjóðnum Sjóði 9 fyrir miklar fjár­hæðir. 

Segist hafa leyft bönkunum að falla

Áður, í sam­tali við AFP frétta­stof­una árið 2011 í tengslum við málsvörn sína fyrir Lands­dómi, hefur Geir greint frá því að hann hafi tekið „rétta ákvörðun“ í mál­efnum bank­anna með því að „leyfa þeim að falla“. Í sím­tal­inu kemur hins vegar fram að íslensk yfir­völd hafa ekki mögu­leika á að fá meira fé til að lána bönk­unum. „Við urðum að leyfa þeim að falla. Þeir urðu gjald­þrota. Og það kemur í ljós að þetta var það rétta,“ sagði Geir. Þá sagði hann: „Við björg­uðum land­inu frá því að verða gjald­þrota.“

„Við urðum að leyfa þeim að falla.“ 

Daginn eftir ræðu Geirs og setn­ingu neyð­ar­lag­anna sendi Seðla­bank­inn frá sér yfir­lýs­ingu að frum­kvæði Davíðs Odds­sonar. Þar kom fram að bank­inn hefði fengið vil­yrði um 620 millj­arða króna lán frá Rúss­landi, til að takast á við vand­ræði bank­anna. „Sendi­herra Rúss­lands á Íslandi, Victor I. Tat­ar­int­sev, til­kynnti for­manni banka­stjórnar Seðla­bank­ans í morgun að stað­fest hefði verið að Rússland myndi veita Íslandi lána­fyr­ir­greiðslu að upp­hæð 4 millj­arðar evra ... Putin for­sæt­is­ráð­herra Rúss­lands hefur stað­fest þessa ákvörðun,“ sagði í til­kynn­ingu Seðla­bank­ans. Ekkert varð af lán­inu. Fljót­lega kom fram að yfir­lýs­ingin hafði verið send í bráð­ræði, áður en málið hefði verið til lykta leitt.

Seðlabankinn gagnrýndur fyrir lán

Seðla­bank­inn varð tækni­lega gjald­þrota eftir hrun. Í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar árið 2009 var bank­inn harð­lega gagn­rýndur fyrir svokölluð „ást­ar­bréf“, lán Seðla­bank­ans með litlum veðum upp á 345 millj­arða króna til smærri fjár­mála­fyr­ir­tækja, sem runnu til bank­anna. „Fyrir liggur að hinir föllnu bankar öfl­uðu sér lausa­fjár með lánum frá minni fjár­mála­fyr­ir­tækjum sem aftur fengu lán frá Seðla­bank­anum gegn ótryggum veðum. Spyrja má hvers vegna Seðla­bank­inn brást ekki fyrr við þessum „leik“ bank­anna og herti kröfur um veð gegn lánum til minni fjár­mála­fyr­ir­tækja. Að mati Rík­is­end­ur­skoð­unar hefði þetta getað dregið úr því tjóni sem rík­is­sjóður og Seðla­bank­inn sátu uppi með eftir fall bank­anna,“ sagði í skýrsl­unni.

Símtal Davíðs Oddssonar og Geirs Haarde*

* Eins og það birt­ist í Morg­un­blað­inu, sem rit­stýrt er af öðrum þátt­tak­anda sím­tals­ins

Davíð Odds­son seðla­banka­stjóri: Halló.

Rit­ari Geirs H. Haarde for­sæt­is­ráð­herra: Gjörðu svo vel.

Dav­íð: Halló.

Geir: Sæll vertu.

Dav­íð: Sæll það sem ég ætl­aði að segja þér, sko, sko, við út af fyrir sig getum í dag skrapað saman 500 millj­ónir evra en nátt­úr­lega, en erum þá komnir inn að beini og þá gætum við hjálpað Kaup­þingi í ein­hverja fjóra fimm daga en þá getum við ekki hjálpað Lands­bank­anum líka, sko.

Geir: Nei.

Dav­íð: Þú ert að tala um það að við eigum frekar að reyna að hjálpa Kaup­þingi.

Geir: Það slær mig þannig sko og mér fannst þeir vera líka á þeirri línu í gær­kvöldi alla­vega þessir Morgan menn.

Dav­íð: Ég býst við því að við fáum ekki þessa pen­inga til baka. Þeir segja að þeir muni borga okkur eftir fjóra fimm daga en ég held að það séu ósann­indi eða við skulum segja ósk­hyggja.

Geir: En eru þeir ekki með ein­hver veð?

Dav­íð: Við myndum aldrei lána það og við ætlum að bjóða þetta gegn 100% veði í FIH banka.

Geir: Já.

Dav­íð: Og þá verðum við að vita að sá banki sé veð­banda­laus.

Geir: Já.

Dav­íð: Því þá við megum ekki, sko, við megum ekki setja íslenska ríkið á galeið­una.

Geir: Nei, nei þetta eru 100 millj­arð­ar, spít­al­inn og Sunda­braut­in.

Dav­íð: Já, já ert þú ekki sam­mála því að við verðum að gera ýtr­ustu kröf­ur?

Geir: Jú, jú.

Dav­íð: Já.

Geir: Ég held að þeir muni leggja mikið á sig til að reyna samt að að upp­fylla þær, sko.

Dav­íð: Já, já, já, já það er bara eina hættan er sú að þeir séu búnir að veð­setja bréfin og þá geta þeir ekki gert þetta, sko.

Geir: Já, já og hvað myndum við koma með í stað­inn?

Dav­íð: Ja, það veit ég ekki, þá verðum við bara að horfa á það en það, við erum bara að tala um ýtr­ustu veð, erum að fara með okkur inn að beini þannig að við verðum að vera algjör­lega örugg­ir.

Geir: En er Lands­bank­inn ekki með neitt slíkt sem hann geti látið okkur hafa?

Dav­íð: Já, en þá er að við erum ekki með pen­ing í þetta. Við erum að fara alveg niður að rass­gati og við ætlum meira að segja að draga á Dan­ina sem ég tal­aði við í gær og sagði að við myndum ekki gera.

Geir: Já.

Dav­íð: En við erum búnir að tala við banka­stjór­ana þar og þeir eru að íhuga að fara yfir þetta.

Geir: Um.

Dav­íð: Það tekur tvo til þrjá daga að kom­ast í gegn.

Geir: Já.

Dav­íð: En við myndum skrapa, Kaup­þing þarf þetta í dag til að fara ekki á haus­inn.

Geir: Já, en það er spurn­ing með þá, fer þá Lands­bank­inn í dag?

Dav­íð: Já, þá myndi hann fara í dag á haus­inn vænt­an­lega.

Geir: Og Glitnir á morg­un?

Dav­íð: Og Glitnir á morg­un.

Geir: Já.

Dav­íð: Lands­bank­anum verður vænt­an­lega lokað í dag bara.

Geir: Já.

Dav­íð: Við vitum ekki, reyndar vitum við ekki hvort það er árás á Kaup­þing Edge. Við gerum ráð fyrir því þeir hafa ekki sagt okkur það enn­þá.

Geir: Er það á Ices­a­ve?

Dav­íð: Það eru farnar 380 millj­ónir út af Ices­ave punda og það eru bara 80 millj­arð­ar.

Geir: Þeir ráða aldrei við það, sko.

Dav­íð: Nei, þeir ráða aldrei við neitt af því, sko, en þetta er það besta leiðin ef við getum afskrifað allar skuldir þjóð­ar­innar þó að það muni valda vand­ræðum í Evr­ópu þá en þeir bara hjálp­uðu okkur ekki neitt þannig að það er ha...

Geir: Já, já.

Dav­íð: Þannig að þetta er nú...

Geir: Heyrðu, ég var að spá í að halda hérna fund klukkan eitt og ætl­aði að biðja þig að koma þangað annað hvort einan eða með þeim sem þú vilt hafa með með öllum for­mönnum stjórn­mála­flokk­anna.

Dav­íð: OK.

Geir: Og Fjár­mála­eft­ir­lit­inu?

Dav­íð: Já.

Geir: Til að fara yfir þetta og...

Dav­íð: En það, getur þú ekki haft það Jónas ekki Jón Sig­urðs­son það er óeðli­legt að...

Geir: Jónas, hann var hjá okkur í morg­un.

Dav­íð: Og hvað ertu að hugsa um að?

Geir: Ég myndi vilja að það yrði farið í fyrsta lagi yfir frum­varpið án þess kannski að afhenda þeim það en...

Dav­íð: En hvað mega menn vera ein­lægir?

Geir: Ég er búinn að vera mjög ein­lægur við þá.

„Ég er búinn að vera mjög ein­lægur við þá.“

Dav­íð: Já.

Geir: Ég er eig­in­lega búinn að segja þeim þetta allt.

Dav­íð: OK.

Geir: Ég segi bara að við erum bara hérna að tala hérna saman í fyllstu ein­lægni um alvar­leg­ustu vanda­mál sem upp hafa komið í þjóð­fé­lag­inu og ég treysti ykkur til að fara ekki með það.

Dav­íð: Já, já.

Geir: Og það hafa þeir virt held ég enn­þá.

Dav­íð: Ja, þeir hafa sagt ein­hverjum af örugg­lega en það er bara, þú getur aldrei haldið lok­inu.

Geir: Nei.

Dav­íð: Fast­ara en þetta á.

Geir: Nei, en...

Dav­íð: Klukkan eitt eða hvað?

Geir: Bara hérna hjá mér í rík­is­stjórn­ar­her­berg­inu.

Dav­íð: Hérna niðri í stjórn­ar­ráði?

Geir: Já.

Dav­íð: OK.

Geir: Spurs­málið er svo hérna...

Dav­íð: Ég kem bara einn held ég, það er betra að vera þarna fámennt en fjöl­mennt.

Geir: Já og þá myndum við fara almennt yfir heild­ar­mynd­ina.

Dav­íð: Já.

Geir: Og af hverju þessi lög eru nauð­syn­leg.

Dav­íð: Já, já.

Geir: Og svo er ég að plana það þannig að lögin verði orðin að lögum um sjöleyt­ið, mælt fyrir þeim klukkan fjög­ur, þing­flokks­fundir klukkan þrjú og það ætti að skapa okkur rými til þess að...

Dav­íð: Mælt fyrir þeim klukkan fjög­ur?

Geir: Já.

Dav­íð: OK.

Geir: Já, er það ekki rétti tím­inn?

Dav­íð: Jú, jú, jú, jú, jú, jú.

Geir: Ég er búinn að und­ir­búa það að þetta geti fengið hraða afgreiðslu og þeir ...

Dav­íð: Já, já.

Geir: Hafa haft góð orð um það.

Dav­íð: Fínt er.

Geir: OK bless, bless.

Dav­íð: Bless.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár