Fólkið sem tap­aði Bjarni Bene­dikts­son hefur gert lítið úr þeirri stað­reynd að hann varði sig frá tapi með sölu hlut­deild­ar­skír­teina sinna í Sjóði 9 dag­ana fyrir banka­hrunið 2008. Lang­flestir töp­uðu hins vegar sínum eignum í Sjóði 9 að hluta til. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn á Facebook

Bjarni og Glitnistoppanir sem seldu í Sjóði 9 og fólkið sem tapaði

Bjarni Bene­dikts­son hefur gert lítið úr þeirri stað­reynd að hann seldi hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins. Stundin leit­aði til fólks sem tap­aði á Sjóði 9 og á öðrum við­skiptum í aðdrag­anda hruns­ins og heyrði sögur þeirra. Auk Bjarna seldu margir Glitnistoppar allar eignir sínar í Sjóði 9 rétt fyrir hrun.

Hversu rétt­mætt er það mat Bjarna Bene­dikts­sonar að „allir skyn­samir fjár­festar“ hafi verið að íhuga að selja hlut­deild­ar­skír­teini sín í Sjóði 9 um það leyti sem hann gerði það í byrjun októ­ber­mán­aðar árið 2008? Bjarni lét þessi orð falla í við­tali við breska blaðið The Guardian í byrjun októ­ber síð­ast­lið­inn þegar hann var spurður út í sölu sína á 50 millj­óna króna hlut í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins á Íslandi fyrir umfjöllun blaðs­ins, Stund­ar­innar og Reykja­vík Media um við­skipti hans í Sjóði 9. „Allir skyn­samir fjár­festar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“ Bjarni hefur allt frá þessu gert lítið úr sölu sinni á hlut­deild­ar­skír­tein­unum í Sjóði 9 og talað þannig eins og allir eða flestir hefðu mátt vita að íslenska banka­kerfið væri að hrynja. 

Þetta var hins vegar alls ekki raunin. Hvorki með til­liti til Sjóðs 9 eða ann­arra fjár­fest­inga fólks á Íslandi á þessum tíma, hvort sem um var að ræða í pen­inga­mark­aðs­sjóðum Glitnis, Lands­bank­ans eða Kaup­þings eða þá í hluta­bréfum við­kom­andi fjár­mála­fyr­ir­tækja.  Eitt af því fyrsta sem einn ætt­ingi minn sagði við mig þegar ég sagði honum frá því að Bjarni Bene­dikts­son hefði selt eignir sínar í Sjóði 9 fyrir banka­hrunið 2008 var: „Nú, var það? Ég tap­aði fullt af pen­ingum á Sjóði 9.“ 

Ekki mikið tekið úr sjóðum Glitnis

Bjarni hefur samt reynt að láta líta út fyrir að öllum hefði mátt og átt að vera ljóst hversu alvar­leg staða banka­kerf­is­ins var. „Öllum Íslend­ingum var ljóst að það var eitt­hvað mjög alvar­legt að ger­ast í banka­kerf­inu og ég bjó ekki yfir neinum trún­að­ar­upp­lýs­ingum,“ sagði Bjarni nú í októ­ber í við­tali við Vísi.

Á það skal meðal ann­ars bent að fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar Glitnis í hrun­inu 2008, Eggert Þór Krist­ó­fers­son, sagði meðal ann­ars í við­tali við RÚV þann 1. októ­ber 2008 að ekki hefði verið mikið um það að fólk hefði inn­leyst fjár­muni sína úr pen­ing­ar­mark­aðs­sjóð­unum á þessum tíma. Þetta bendir til að sú almenna vit­neskja almenn­ings um stöðu banka­kerf­is­ins, sem Bjarni vísar til, hafi hreint ekki verið svo útbreidd á þessum tíma. Sjálfur hafði Bjarni hins vegar meðal ann­ars verið við­staddur á fámennum neyð­ar­fundi í Stoðum nokkrum dögum áður en hann seldi í Sjóði 9, en stór hluti af eignum sjóðs­ins reynd­ust vera kröfur á Stoðir.

Skýring Bjarna um almenna vit­neskju fólks á stöðu banka­kerf­is­ins á þessum tíma virð­ist því vera eft­irá­skýr­ing.

„Allir skyn­samir fjár­festar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“ 

„Venjulega fólkið“ sem tapaði

Fjöl­margt fólk, „venju­legt fólk“, tap­aði háum fjár­hæðum við fall íslensku bank­anna af því það seldi ekki eignir sínar í aðdrag­anda þess. Í ein­hverjum til­fellum var fólki ráðið frá því af starfs­mönnum þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem það skipti við, meðal ann­ars eins og í til­felli kon­unnar sem átti nokk­urra millj­óna króna hluta­bréfa­eign í FL Group, stærsta hlut­hafa Glitnis, og sem rætt er við hér í grein­inni. Eins og konan segir: „En það var ekki fyrr en í sept­em­ber 2008 sem ég fór að hugsa um hvort eitt­hvað óeðli­legt væri á seyði, hvort ég ætti að ná í þessa aura, og hringdi í bank­ann.  Elskan mín, ekki hafa neinar áhyggjur, þetta fer upp von bráðar.  Og  svo fór sem fór.“ 

Þessi kona átti ekki hluta­bréf upp á hund­ruð millj­óna eða tugi millj­óna í FL Group heldur voru þetta nokkrar millj­ónir sem hún hafði safnað saman í gegnum árin með sparifé sínu. Þetta voru samt him­in­háar fjár­hæðir fyrir hana og hafði hún hugsað upp­hæð­ina sem eins konar líf­eyr­is­sjóð til fram­tíðar.

Alveg óvíst með endurheimtur

Bjarni Bene­dikts­son segir að hann hafi ekki búið yfir neinum inn­herj­a­upp­lýs­ingum á þessum tíma, að við­skipti hans hafi stað­ist lög og að eft­ir­lits­að­ilar hafi farið í gegnum við­skipti með hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9 og eng­inn hafi verið ákærður vegna þeirra. Þó þetta kunni að vera rétt hjá Bjarna – enda hefur Stundin aldrei sagt að hann hafi framið lög­brot – þá voru hann og og ætt­ingjar hans samt hluti þeirra til­tölu­lega fáu ein­stak­linga og aðila sem náðu að selja eignir sínar sem voru bundnar í bönk­unum og þannig að verja sig gegn því tapi sem margir aðrir urðu fyrir í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

„Ég tap­aði svo þessum pen­ingum. Eftir það varð ég svo veikur.“

Aðrir urðu hins vegar eftir, vegna þess að þeir höfðu ekki talið skýr merki um að Sjóði 9 væri alvar­lega ógnað. „Ég tap­aði svo þessum pen­ingum. Eftir það varð ég svo veikur út af því að ég tap­aði öllum þessum pen­ingum,“ segir Ingj­aldur Arn­þórs­son.

Eins og Guðjón Sig­urðs­son, for­maður MND-félags­ins, segir þá var það þannig í aðdrag­anda hruns­ins og fyrst eftir það að alveg óvíst var hversu miklar end­ur­heimt­urnar yrðu á hlut­deild­ar­skír­teinum í Sjóði 9. „Á þeirri stundu var alveg óvíst hverjar end­ur­heimtur yrðu í þessum fjand­ans sjóði,“ segir Guðjón. 

Svo fór á end­anum, í lok októ­ber árið 2008, að eig­endur hlut­deild­ar­skír­teina í Sjóði 9 fengu greitt út rúm­lega 85 pró­sent af inni­stæðum sínum. Tapið varð því á end­anum tæp 15 pró­sent en þetta kom fram í frétta­til­kynn­ingu frá Glitni í lok októ­ber árið 2008.„Útgreiðslu­hlut­fall sjóðs­ins er 85,12% sem er allt laust fé sjóðs­ins sem og það end­ur­gjald sem hann fékk fyrir verð­bréfa­safn sitt. Þetta hlut­fall mið­ast við síð­asta skráða við­skipta­gengi í Sjóði 9, þann 6. októ­ber sl. Upphæðin verður lögð inn á inn­láns­reikn­inga sjóð­fé­laga.“

Þeir sem höfðu haft vit á því að selja í Sjóði 9 fyrir 6. októ­ber 2008, dag­inn sem neyð­ar­lögin voru sam­þykkt, vörðu sig hins vegar gegn þessu tæp­lega 15 pró­senta end­an­lega tapi, rétt eins og þeir sem höfðu vit á því að selja hluta­bréf sín í bönk­unum í aðdrag­anda hruns­ins vörðu sig gegn tap­inu sem af hrun­inu hlaust.  

Seldi í Sjóði 9Birkir Krist­ins­son, starfs­maður eigna­stýr­ing­ar­deildar Glitnis og fjár­festir, var einn þeirra sem seldi í Sjóði 9 rétt fyrir banka­hrunið. Sjálfur sýsl­aði hann með fé fyrir fólk sem átti inni­stæður í Sjóði 9.

Glitnistopparnir sem seldu

Eins og fram kom í Kjarn­anum fyrr í vik­unni, þegar mið­ill­inn fjall­aði um upp­lýs­ingar í Glitn­is­gögn­unum sem Stundin má ekki fjalla um út af lög­banni sem sett var á fjöl­mið­il­inn, þá seldu fjöl­margir af æðstu stjórn­endum Glitnis hlut­deild­ar­skír­teini sín í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins árið 2008. Stundin telur að lög­bannið sem Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík setti á Stundina nái ekki til umfjöll­unar ann­arra fjöl­miðla um umrædd Glitn­is­gögn og þess vegna fjallar Stundin um grein Kjarnans. 

Einn þeirra sem seldiJóhannes Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta Glitnis, var einn sem seldi í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins.

Í frétt Kjarnans er fjallað um hvernig starfs­menn Glitnis, þeir Jóhannes Bald­urs­son, Birkir Krist­ins­son, Eiríkur S. Jóhann­son og Jóhann Ómarsson hafi allir selt eignir í Sjóði 9 dag­ana 24. til 26. sept­em­ber árið 2008. Um var að ræða við­skipti sem námu allt frá 1 milljón króna og upp í tæp­lega 100 millj­ónir í til­felli Jóhanns Ómars­sonar, sem var fyrr­ver­andi for­stöðu­maður einka­banka­þjón­ustu Glitnis, en fjöl­margir við­skipta­vinir þeirrar deildar bank­ans töp­uðu háum fjár­hæðum á Sjóði 9 í banka­hrun­inu. 

Á þessum tíma var Bjarni Bene­dikts­son bæði stjórn­mála­maður og þing­maður flokks­ins sem leiddi rík­is­stjórn Íslands, sem og fjár­festir og pró­kúru­hafi eins stærsta lán­tak­anda Glitnis, N1 og tengdra félaga. Bjarni átti auk þess í miklum sam­skiptum við starfs­menn Glitnis á þessum tíma eins og Glitn­is­gögnin sýna fram á og Stundin hefur reifað.  

Fundur mik­il­vægurSlita­stjórn Glitnis gerði tals­vert með fund Davíðs Odds­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar, stjórn­ar­for­manns Glitnis, þann 25. sept­em­ber 2008 en vit­neskja um hann kann að hafa ýtt á starfs­menn Glitnis að selja í Sjóði 9.

Erfið sönnunarstaða

Svo fór á end­anum að slita­stjórn Glitnis höfð­aði engin rift­un­ar­mál gegn fyrr­ver­andi starfs­mönnum bank­ans út af þessum við­skiptum með hlut­deild­ar­skír­teini í Sjóði 9. Ein af ástæð­unum var sú að sönn­un­ar­staða í mál­unum var mjög erfið, sam­kvæmt skýrslu KPMG, þar sem sýna þurfti fram á að starfs­menn­irnir hafi búið yfir upp­lýs­ingum sem ekki voru aðgengi­legar öðrum eig­endum hlut­deild­ar­skír­teina á umræddu tíma­bili. Hið sama hefði átt við um Bjarna Bene­dikts­son.

Þá rann­sak­aði Fjár­mála­eft­ir­litið við­skipti með Sjóð 9 í aðdrag­anda banka­hruns­ins eftir hrunið og sendi kæru vegna þeirra til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara. Sak­sókn­ara­emb­ættið lét rann­sókn­ina hins vegar niður falla. Þegar litið er til þess að ákæru­valdið aðhafð­ist ekk­ert gegn fyrr­ver­andi starfs­mönnum Glitnis, sem seldu fyrir háar fjár­hæðir í Sjóði 9 eftir funda­höld Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Davíðs Odds­sonar um slæma stöðu Glitnis, þá verður að telj­ast afar ólík­legt að við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar í Sjóði 9 hafi verið litin alvar­legum augum.

Stað­reyndin er hins vegar sú að þessir starfs­menn Glitnis seldu eignir sínar í Sjóði 9 og Bjarni Bene­dikts­son líka á meðan fjöl­margir ein­stak­lingar sem ekki störf­uðu í stjórn­málum eða í banka­kerf­inu brunnu inni með þessar eignir og töp­uðu oft og tíðum háum fjár­hæðum vegna þess.

Athuga­semd rit­stjórnar: Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík lagði lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar 16. októ­ber síð­ast­lið­inn. Yfir­stand­andi er dóms­mál fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur þar sem þrotabú Glitnis fer fram á að lög­bannið verði stað­fest. Brot á lög­banni varðar sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum. Til að fylgja lögum hefur Stundin því afmáð hluta umfjöll­un­ar­innar sem túlka mætti sem brot á lög­bann­inu. Eftir stendur þannig sú umfjöllun sem aðrar heim­ildir eru fyrir en þau gögn sem lög­bannið tekur til sem og end­ur­sögn af þegar birtri umfjöllun ann­arra fjöl­miðla. 

Hér má nálg­ast PDF af umfjöll­un­inni úr prentút­gáfu Stund­ar­innar.

 


Guðmundur Gunnarsson:

Pabbinn sem tapaði ævisparnaðinum

„Líf­eyr­is­sjóður föður míns var fólg­inn í sölu á því fyr­ir­tæki sem hann hafði byggt upp og setti það allt í eigna­stýr­ingu Lands­bank­ans. Hann spurði mig nokkru fyrir hrun hvort hann ætti að færa pen­inga sína og ég sagði honum að við mæltum alltaf með því að þegar fólk væri komið yfir sex­tugt að það færði sparnað sinn á örugga staði því þá hefði það ekki svig­rúm til þess að vinna inn nið­ur­sveiflur. Hann tal­aði við spek­inga Lands­bank­ans nokkru fyrir hrun og þeir sögð­ust sjá um þetta, engin við­vörun eða til­færslur komu og svo fór að hann tap­aði hverri ein­ustu krónu af sínum líf­eyr­is­sjóði. Þúsundir Íslend­inga töp­uðu eignum sínum á meðan aðrir höfðu inn­herj­a­upp­lýs­ingar og björg­uðu sér. Allt fram á síð­ustu stundu voru fjár­mála­ráð­gjafar bank­anna og fjár­fest­ing­ar­sjóð­anna að fá fólk til þess að leggja fram fjár­muni í von­laus dæmi. „Seldu húsið þitt og láttu okkur sjá um pen­ing­ana þína, við skulum láta þá vinna fyrir þig og lána þér fyrir drauma­í­búð­inni.“ 


Vilborg Davíðsdóttir:

Peningamarkaðssjóðirnir áttu að búa til peninga

„Ári fyrir hrun ákváðum við mað­ur­inn minn heit­inn að leggja vara­sjóð­inn okkar inn á þessa pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitnis og Lands­bank­ans sem sífellt var verið að dásama sem nán­ast pen­inga­prent­vélar, svo mikil væri ávöxt­unin. Svo skemmtum við okkur við að met­ast um hvort hefði grætt meira þann dag­inn miðað við töl­urnar sem birt­ust á heima­bank­anum, ég með mína milljón í Sjóði 9 hjá Glitni eða hann með sína hjá sam­svar­andi sjóði í Lands­bank­anum. Ég man að tengda­mamma hafði orð á því stuttu fyrir hrun að kannski færu bank­arnir á haus­inn og þá gætum við tapað þessu fé. Við hristum bara haus­inn yfir áhyggjum gömlu kon­unnar, höfðum ekki hug­mynda­flug í að það gæti gerst sem síðan varð. Þessar þrjár vikur sem við biðum eftir því að vita hvort eða hversu mikið yrði eftir af spari­fénu voru heldur óþægi­legar. En verra var vit­an­lega að sjá verð­tryggt hús­næð­is­lánið frá Lands­bank­anum rjúka upp í fram­hald­inu.“


57 ára gömul kona sem býr í ­Reykjavík en vill ekki láta nafns síns getið:

Hverjir seldu þessa daga?

„Eðlilega staldrar maður við, þegar Bjarni Bene­dikts­son kemur með skýr­ingar á sölu eigin hluta­bréfa í Glitni og til­færslu fé úr sjóði 9 það nán­ast litla … korter … sem opið var fyrir við­skipti þar hrundag­ana í októ­ber. Ætla ekki að gera lítið úr fjár­mála­læsi Bjarna en, mín til­finn­ing er að hann sé nán­ast skyggn. 

Það er dap­ur­legt að hugsa um alla þá sem töp­uðu pen­ingum þessa daga. Margir hverjir, ja eins og ég, áttu hluta­bréf í Glitni og keyptu árlega fyrir arð­inn til þess að freista þess að eiga vara­sjóð til efri áranna.  Ekki munum við úti­vinn­andi mæður sem höfum, eðli­lega, verið fjarri vinnu­mark­aði x langan tíma á starfsæv­inni njóta þess úr líf­eyr­i­s­jóða­kerfum lands­ins. 

En það var ekki fyrr en í sept­em­ber 2008 sem ég fór að hugsa um hvort eitt­hvað óeðli­legt væri á seyði, hvort ég ætti að ná í þessa aura, og hringdi í bank­ann. Elskan mín, ekki hafa neinar áhyggjur, þetta fer upp von bráðar.  Og svo fór sem fór.  

Það sem mig langar veru­lega mikið til að vita núna er, hverjir það voru til dæmis sem seldu bréf í bank­anum þessa mán­uði fyrir hrun og hverjir það voru sem færðu fé úr sjóði 9 annað þetta ... kortér … sem opið var fyrir við­skiptin.“ 


Hólmfríður Tómasdóttir:

Dreymdi aldrei Sjóð 9

„Ég átti pen­inga í Sjóði 9 í banka­hrun­inu. Ég man ekki nákvæm­lega hver sagði mér að setja þá þangað en ég hlýt að hafa fengið ráð­gjöf um það frá ein­hverjum, kannski bank­anum. Ég var sjálf ekki svo mikið inni í þessu. Sem betur fer þá dreymdi mig hins vegar draum sem gerði það að verkum að ég seldi þau hluta­bréf sem ég átti í bönk­unum. Þetta var nú samt bara eitt­hvert lít­il­ræði. Mig dreymdi að ég væri að falla fram af bjargi og eftir þennan draum seldi ég hluta­bréfin. Mig dreymdi hins vegar engan draum um Sjóð 9. Það var alltaf talað um þetta eins og þetta væri svo ægi­lega snið­ugt. Á þessum árum þá man ég eftir því að mað­ur­inn minn sat í stólnum sínum, hlust­aði á útvarpið og þuldi fyrir munni sér: „Það er eitt­hvað mikið að í þessu landi. Það er ekki hægt að búa til pen­inga úr engu.““


Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins á Íslandi:

Sjóður 9 var hin eina sanna lausn

„Þetta situr í mér ennþá þótt okkar félag hafi ekki tapað neinu að lokum. Bæði var að við áttum ekki mikla pen­inga og svo beitti ég mér af hörku við arf­taka Glitnis. Á þeirri stundu var alveg óvíst hverjar end­ur­heimtur yrðu í þessum fjand­ans sjóði.

Við höfðum í gegnum tíð­ina verið með of marga reikn­inga í gangi og óþarf­lega marga að mati end­ur­skoð­anda. Líkn­ar­sjóður, styrkt­ar­sjóður, fram­kvæmda­sjóður og marga fleiri. Við töl­uðum við Glitni, sem tók á móti okkur með eina sanna lausn. Loka þessum banka­bókum flestum og leggja allt inn á Sjóð 9. Það væri örugg ávöxtun, miklu betri en bækur og nán­ast eins laus og lið­ugur og banka­bók. Sem betur fer áttum við ekki mikið af aurum, en það sem mér fannst ljót­ast var að láta svíkja það fé sem Íslend­ingar treystu okkur fyrir. Mörg líkn­ar­fé­lög töp­uðu miklum pen­ingum með því að láta glepjast inn í Sjóð 9 og aðra svip­aða sjóði.“ 


Ingjaldur Arnþórsson:

Varð veikur út af tapinu á Sjóði 9

„Ég fjár­festi í Sjóði 9 að ráð­legg­ingum bank­ans á Akureyri því ég hafði ágætis tekjur á þessu tíma­bili. Mér fannst allir vera að græða á þessum sjóðum. Bankinn sagði mér að Sjóður 9 væri lang­bestur og hann hækk­aði líka upp úr öllu valdi og ég féll algjör­lega fyrir þessu. Ég greiddi mán­að­ar­lega í þetta af mínum launum. Auðvitað get ég ekk­ert skot­ist undan ábyrgð á þessu, þetta var algjör­lega á mína ábyrgð. Ég tap­aði svo þessum pen­ingum. Eftir það varð ég svo veikur út af því að ég tap­aði öllum þessum pen­ingum. Mér brá svo mikið að ég fór bara í algjört „blackout“. Ég veit enn þann dag í dag ekki hvað ég tap­aði miklu. Þetta voru 4 til 6 millj­ónir. Einhver myndi kannski segja að þetta væru bara vasa­pen­ingar en þetta var það ekki fyrir mig, venju­legan laun­þega. Ég fékk bréf í póst­inum eftir banka­hrunið þar sem ég fékk bara þær upp­lýs­ingar að allir þessir pen­ingar hefðu tap­ast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Viðskipti Bjarna Benediktssonar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár