Kerfið sem Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki breyta: Ávinningur stærstu útgerðanna nærri tíu sinnum hærri en veiðigjöldin

Stærstu útgerðir landsins hafa á liðnum árum greitt út mikinn arð og bætt eiginfjár­stöðu sína til muna. Veiði­gjöldin sem útgerðin greiðir í dag eru einungis um 1/4 hluti þeirra veiði­gjalda sem ríkis­stjórn Samfylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna vildi innleiða. Nefnd um framtíðar­fyrir­komulag á gjaldtöku í sjávar­útvegi hætti nýlega störfum vegna andstöðu Sjálfstæðis­flokksins um breytingar á gjald­heimtunni.

Segir Sjálfstæðisflokkinn á móti breytingum
Segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn á móti breyt­ingum Þor­steinn Pálsson segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi staðið gegn breyt­ingum á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. Úttekt Stund­ar­innar sýnir að í fyrra námu veiði­gjöld allra útgerð­anna á Íslandi um 1/9 hluta af ábata eig­enda 20 stærstu útgerða lands­ins af fyr­ir­tækj­unum.

Tuttugu stærstu útgerðir landsins greiddu út arð og bættu eiginfjár­stöðu sína um rúmlega 60 milljarða króna á síðasta ári þrátt fyrir sterkt gengi íslensku krónunnar. Á sama tíma námu veiði­gjöld allra íslenskra útgerða samtals 6,9 milljörðum króna fisk­veiðiárið 2015/2016. Heildar­veiðigjöld allra útgerð­anna námu því rétt rúmlega 1/10 hluta af þeim fjármunum sem runnu til tuttugu stærstu útgerð­anna í landinu og hluthafa þeirra vegna afnota af fiskveiði­auðlind íslensku þjóðarinnar. Þetta kemur fram í úttekt Stundarinnar á ársreikningum tuttugu stærstu útgerða landsins í árslok í fyrra. Veiði­gjaldið sem útgerðirnar á Íslandi greiða fyrir fisk­veiðiárið 2016 og 2017 nemur til saman­burðar um 4,8 milljörðum króna.  

Deilurnar um veiðigjöldin

Ef veiði­gjöldin sem vinstri stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna lögfestu í stjórnartíð sinni á árunum 2009 til 2014 hefðu verið í gildi í dag þá hefðu veiði­gjöldin numið rúmlega 20 milljörðum króna fisk­veiðiárið 2016/2017. Eitt af fyrstu verkum síðustu ríkis­stjórnar, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár