57 millj­ónir fyrir skurð­að­gerð Háskóla­sjúkra­húsið í Virginíu krafði ótryggðan sjúk­ling, Wöndu Wickzier, um 57 millj­ónir króna fyrir að bjarga lífi hennar eftir að hún fékk heila­blæð­ingu. Sjúkra­húsið stefndi henni þegar hún gat ekki borgað.

Peningana eða lífið?: Hryllingurinn í bandaríska heilbrigðiskerfinu

Banda­ríski lækn­ir­inn og blaða­mað­ur­inn Elisabet Ros­ent­hal dregur upp dökka og ómann­eskju­lega mynd af heil­brigð­is­kerf­inu í Banda­ríkj­unum í nýrri bók. Hún lýsir því kerf­is­bundið hvernig öll svið heil­brigð­is­kerf­is­ins þar í landi hafa orðið mark­aðsvædd með skelfi­legum afleið­ingum fyrir venju­legt fólk sem lendir í því að verða veikt.

Í lok árs 2013, þegar Wanda Wickizer frá borg­inni Norrfolk í Virginíu í Banda­ríkj­unum var fimm­tug, fékk hún heila­blóð­fall. Ekkert stórt sjúkra­hús var nálægt heim­ili hennar og var hún því send með sjúkra­þyrlu á stærra sjúkra­hús, spít­al­ann við háskól­ann í Virginíu, þar sem lífi hennar var bjargað með skurð­að­gerð. Hún jafn­aði sig af heila­blæð­ing­unni og var send heim í jan­úar 2014. 

Þegar heim var komið byrj­aði Wanda, sem var ekki með neina sjúkra­trygg­ingu, að fá senda reikn­inga upp á tugi millj­óna króna fyrir ein­staka þætti lækn­is­þjón­ust­unnar sem hún fékk á spít­al­anum: 4,6 millj­ónir króna fyrir sjúkra­flugið, 1,8 millj­ónir króna fyrir skoð­un­ina á sjúkra­hús­inu í heima­borg sinni og 2,7 millj­ónir frá hópi lækna á sjúkra­hús­inu þar sem bráða­skurð­að­gerðin var fram­kvæmd á henni. Svo kom sjúkra­hús­reikn­ing­ur­inn sjálfur upp á tæp­lega 357 þús­und doll­ara, 41 milljón króna. Heild­ar­upp­hæðin sem Wickzier átti að borga fyrir að láta bjarga lífi sínu eftir heila­blóð­fallið nam …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár