Halldór Auðar gerir upp kynferðisofbeldið

Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, greindi í gær frá því að hann væri ger­andi í kyn­ferð­is­brota­málum. Hann útskýrir hvað hann átti við, hvað hann gerði og hvernig sekt­ar­kenndin hellt­ist yfir hann í kjöl­farið. Nú tekur hann ótta­laus á móti afleið­ing­unum. „Það er liður í því að axla ábyrgð á sjálfum sér að vera ekki hræddur við afleið­ingar eigin gjörða.“

Halldór Auðar gerir upp kynferðisofbeldið

Hann átt­aði sig á sárs­auk­anum sem hann hafði valdið, drukk­inn og marka­laus með þeim afleið­ingum að hann rudd­ist yfir kyn­ferð­is­leg mörk konu sem hann þekkti lítið sem ekk­ert. Eftir þetta kvöld ákvað hann að segja skilið við áfengi, horfast í augu við sjálfan sig og taka sig á. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem hann fór yfir kyn­ferð­is­leg mörk kvenna, það hafði gerst í fáein skipti svo hann muni, en þetta varð það síð­asta. „Ég vildi auð­vitað ekki vera að skaða fólk,“ útskýrir Halldór Auðar Svansson, borg­ar­full­trúi Pírata, sem steig fram í gær­morgun og greindi frá því að hann væri ekki aðeins þol­andi í kyn­ferð­is­brota­málum heldur væri hann einnig ger­andi.

Horfðist í augu við sjálfan sig

Halldór Auðar segir að atburðir síð­ustu daga, það hvernig máls­með­ferð vegna upp­reistar æru var með­höndluð af stjórn­völdum og hvernig leynd­ar­hyggjan sprakk síðan framan í þjóð­ina, hafi hrundið honum af stað í til­finn­inga­lega rús­sí­ban­areið. „Ég hef velt ýmsu fyrir mér varð­andi kyn­ferð­is­brot og mína eigin reynslu. Eins því hvað felst í því að axla ábyrgð og draga aðra til ábyrgðar. Nú er verið að reyna að draga for­ystu Sjálf­stæð­is­flokks­ins til ábyrgðar fyrir að hafa haldið mjög illa á málum. Ég tel að þau þurfi að axla hana og að þeim sé ekki stætt fyrr en þau hafa gert það. Í kjöl­farið velti ég því fyrir mér hvort mér væri stætt á því að koma með svo harða gagn­rýni, hvað ég þyrfti sjálfur að horfast í augu við, við­ur­kenna og hætta að þagga. Þá er það sem ég hef áður ýjað að í við­tali við Bleikt.is, að ég er sjálfur ekki alsak­laus.“

„Kyn­ferð­is­brot eru auð­vitað ýmiss konar. Sum eru bein­línis glæp­sam­leg og önnur ekki.“

Hann áréttar: „Kyn­ferð­is­brot eru auð­vitað ýmiss konar. Sum eru bein­línis glæp­sam­leg og önnur ekki. Ég vil ein­fald­lega skil­greina það út frá afleið­ing­unum sem þau hafa. Af því að þau snú­ast um að ryðj­ast inn á mörk ann­arra og það er aldrei í lagi. Við eigum að geta talað um það og við­ur­kennt það þegar við förum yfir mörk hvers ann­ars. Við eigum að geta gert það upp ein­hvern veg­inn. Það er það sem ég er að opna á. Ég veit ekki nákvæm­lega hvernig sú úrvinnsla mun fara fram, enda ekki í mínum höndum.“

Snýst um mörk og að virða þau

Aðspurður hvað hann eigi við, hvað hann hafi gert, seg­ist hann hafa undir áhrifum áfengis ruðst yfir mörk ann­arra með „káfi og ósæmi­legri snert­ingu,“ sem hann seg­ist vera nokkuð viss um að hafi valdið sárs­auka og haft afleið­ingar. Aðspurður hvort hann eigi við nauðgun svarar hann því neit­andi. „Nei, ég myndi ekki nota það orð. Um leið vil ég leggja áherslu á að það er aldrei ger­and­ans að skil­greina eigin verknað og þau áhrif sem hann hefur. Það er þol­and­ans að gera það.“

„Nei, ég myndi ekki nota það orð.“

Þá er spurn­ing hvenær það að fara yfir mörk ein­hvers verður að hreinu og kláru ofbeldi, það er að segja nauðgun. „Ég held að það sé akademísk orð­ræða. Eins og ég segi þá snýst þetta fyrst og fremst um hvernig sá sem verður fyrir því upp­lifir það og skil­greinir. Ég held að það þurfi að leggja mjög skýra áherslu á það.“

Óttast ekki afleiðingarnar

Eins og fyrr segir þá gerð­ist það í fáein skipti, eins og hann orðar það, að hann fór yfir mörk ann­ars fólks. Hvorki hann né þetta fólk hafa gert til­raun til þess að gera þetta upp sín á milli. Nú taldi Halldór Auðar hins vegar rétt að stíga fram opin­ber­lega. „Mér fannst það rétta leiðin í ljósi aðstæðna, þess sem ég hef verið að velta fyrir mér og þeirra til­finn­inga sem hrær­ast innra með mér. Að opna á sam­tal, hvað sem úr því verður.“

„Ég hef hugsað um það og verið við­bú­inn, en ég ótt­ast það ekki.“

Allt voru þetta konur honum ókunn­ugar. Hann þekkir því ekki afdrif þeirra og veit ekki hvaða afleið­ingar fram­ganga hans hafði fyrir þær. Aðspurður hvort hann hafi ótt­ast að mæta þeim segir hann auð­veld­ara að takast á við það nú þegar hann hefur sjálfur opnað á umræðu um þetta, því þá sé mögu­lega ein­hver leið til að geta gert þetta upp, hafi þær hug á því. Hann seg­ist ekki hafa ótt­ast það að vera afhjúp­aður í opin­berri umræðu. „Ég hef hugsað um það og verið við­bú­inn, en ég ótt­ast það ekki.“

Hins vegar hefur hann von­ast eftir því að geta bætt fyrir brot sín. En það er er ekki hans að skil­greina hvernig sú vinna ætti að fara fram, segir hann, heldur verði þolendur að ráða ferð­inni í slíku upp­gjöri. „Kannski er best að byrja á heið­ar­legu sam­tali, eins og ég er að gefa kost á.“

Vonaðist eftir samtali við sína gerendur

Innst inni hafi hann sjálfur von­ast eftir því að geta átt sam­tal við sína ger­endur eftir að hann steig fram sem þol­andi. „Þeir hefðu getað byrjað á því að tala við mig. Mér þætti áhuga­vert að vita hvernig þeim líður núna, ef þeir muna ennþá eftir þessu, hvort þeir séu að burð­ast með sekt, hvernig þeir sáu þetta á sínum tíma og hvað þeim gekk eig­in­lega til. Ég skil ekki enn almenni­lega hvaða hvata þeir höfðu til að koma svona fram við mig,“ segir hann. „Það væri betra að geta 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár