Mynd: 365/Anton Brink

Portrett af stjórnmálamanni sem valdböðli

Karl Th. Birg­is­son skrifar um Davíð Oddsson, áhrifa­mesta stjórn­mála­mann á Íslandi síð­ustu hálfa öld, og rit­stjóra yfir stærstu rit­stjórn lands­ins.

Þegar Davíð Oddsson varð fimm­tugur í jan­úar 1998 skrif­aði Stefán Jón Hafstein, rit­stjóri Dags, í blað sitt:

„Hvorki heims­manns­legur né höfð­ing­legur – oft alþýð­legur og skemmti­legur. Hrokinn ekki jafn áber­andi og oft fyrr og reiði­köstin demp­aðri. Alltaf valds­manns­legur. Nákvæm­lega. Hann hræð­ist ekki það vald sem hann hefur, hann beitir því. Valdið er aðferð Davíðs.“

Þetta er býsna glúrin grein­ing. Valdið var aðferð Davíðs.

Án vald­anna – raun­veru­legra og ímynd­aðra – verður myndin af Davíð Oddssyni afskap­lega ógreini­leg í huga okkar. Hann var þrátt fyrir allt í rúm­lega ald­ar­fjórð­ung hold­gerv­ingur valds­ins í ríki og borg, og hann beitti valdi sínu ótæpi­lega.

Og ótæpi­lega er reyndar úrdráttur, því að valdið komst í hendur manns sem birt­ist okkur reglu­lega sem hefni­gjarn, lang­ræk­inn, ósvíf­inn, ref­sigl­aður og furðu­smár í hugsun.

Sumir hafa kallað hann kontrólf­rík. Aðrir bara valda­sjúkan. Við skulum sleppa því, en rekja bara nokkur dæmi um mann sem fékk völd og beitti þeim þannig að betur væri sleppt í lýð­ræð­is­ríki með sæmi­lega sið­ferð­is­vit­und.

Og við skulum líka alveg leiða hjá okkur kald­hæðn­ina sem felst í því, að meintur frjáls­hyggju­maður – sem Davíð Oddsson hefur raunar aldrei verið – hafi beitt opin­beru valdi af svo miklum ofstopa og óbil­girni.

Allt hitt

Svo er hér annar fyr­ir­vari: Þessi grein er ekki um hrunið eða hlut Davíðs Odds­sonar í því. Um það hafa verið skrif­aðar langar rann­sókn­ar­skýrslur. Hannes Hólm­steinn er að skrifa aðra styttri og eflaust nákvæm­ari í boði Bjarna Bene­dikts­sonar á kostnað skatt­greið­enda.

Hún er heldur ekki nema að litlu leyti um einka­væð­ingu við­skipta­bank­anna, átökin um mann­rétt­indi öryrkja eða órétt­læti kvóta­kerf­is­ins fyrir dóm­stólum um alda­mótin.

Þá þóttu Davíð Oddssyni nið­ur­stöður Hæsta­réttar svo aug­ljós­lega og ævin­týra­lega vit­lausar að hann vildi færa vald dóm­stóla til að dæma út frá almennum ákvæðum stjórn­ar­skrár inn í sitt eigið for­sæt­is­ráðu­neyti. Þar ætti að dæma með réttu.

Annars gætum við lokað sjopp­unni og flutt til Kanarí, eins og hann orð­aði það.

Hann kall­aði hæsta­rétt­ar­dóm­ara í leið­inni spá­kell­ingar og félags­fræð­inga, af því að þeir dæmdu ekki eins og hann vildi. Hann væri jú lög­fræð­ingur.

Þessi grein er heldur ekki um Íraks­stríðið, þar sem Davíð ákvað upp á sitt eins­dæmi – þó með þving­uðu atfylgi Halldórs Ásgríms­sonar – að veita stuðn­ing Íslands við hern­að­inn. Skömmu síðar til­kynnti hann okkur að friður væri kom­inn á í Írak, nema í nokkrum sýslum, eins og hann orð­aði það líka í þing­ræðu.

Þær fréttir hafa enn ekki borizt til Íraks.

Hún er heldur ekki um skyndi­legt brott­hvarf banda­ríska hers­ins héðan, sem Davíð taldi frá­leitt að gæti gerzt, af því að þeir George Bush Banda­ríkja­for­seti væru svo góðir vinir.

Né heldur um allt hitt, sem við munum þótt við vildum nátt­úr­lega helzt gleyma því sem fyrst.

Þessi grein er um ein­stak­ling, sem þreifst og virð­ist í sumu enn þríf­ast á því að beita valdi, og njóta þess að beita refs­ingum, ekki í þágu hug­mynda heldur til að tryggja hags­muni og áfram­hald­andi eigin völd.

Þar voru engin vett­linga­tök notuð.

Og sjaldn­ast einu sinni almennir mannasiðir.

Byrjum á fyrstu stóru einka­væð­ing­unni.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár