Tæpt tap hjá DV

Út­gáfu­fé­lag DV hef­ur náð meira jafn­vægi í rekstri en áð­ur. Engu að síð­ur skil­ar það tapi og tekj­ur lækka í erfiðri sam­keppni við rík­ið, er­lenda sam­fé­lags­miðla og um­hverfisaug­lýs­ing­ar.

Útgáfufélag DV.is, Fjölmiðlatorgið ehf, tapaði tæpum fjórum milljónum króna í fyrra, á ári þar sem tekjur lækkuðu um 14 milljónir.

Árið áður hafði það hagnast um þrjár milljónir króna.

Félagið, sem var stofnað 2022 og keypti DV.is út úr Torgi ehf, sem gaf líka út Fréttablaðið og fór í þrot 2023, hefur þó aldrei skilað jákvæðu sjóðstreymi. Skuldir félagsins við Helga Magnússon, eiganda félagsins, jukust úr 63 milljónum króna í 82 milljónir á árinu.

Til samanburðar tapaði Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, 461 milljón króna í fyrra og fékk 600 milljónir króna í nýtt hlutafé frá fjársterkum eigendum.

DV, sem var áður næstmest lesna dagblað landsins skammt á eftir Morgunblaðinu, hefur glímt við erfiðan rekstur allt frá aldarmótunum. Annar fjölmiðill í eigu Helga, fríblaðið Fréttablaðið, sem var áður mest lesna blað landsins, var lagt niður árið 2023 eftir mikið tap.

Í kringum hundrað þúsund …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár