„Venjulegi náunginn“ sem varð morðingi

Morð­málið gegn Luigi Mangione hverf­ist um hagn­að­ar­drifið heil­brigð­is­kerfi Banda­ríkj­anna. Mangione slas­að­ist á hrygg og virt­ist venju­legur og „klár strákur“ áður en hann ákvað að myrða for­stjóra heil­brigð­is­trygg­inga­fé­lags.

„Venjulegi náunginn“ sem varð morðingi
Luigi Mangione Luigi Mangione, sem er sak­aður um morðið á Brian Thompson, for­stjóra United Healthcare, kemur fyrir dóm­ara í und­ir­bún­ings­rétt­ar­höldum í Man­hattan-saka­mála­dóm­stólnum í New York þann 11. ágúst síð­ast­lið­inn. Mynd: AFP

Maðurinn sem ját­aði að hafa skotið banda­rískan for­stjóra sjúkra­trygg­inga­fyr­ir­tækis til bana not­aði tæki­færið í rétt­ar­sal til að kenna bak­meiðslum um glæpi sína, sem hann sagði að hefðu miðað að því að „bæta heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir alla“.

Luigi Mangione, 28 ára, komst í sviðs­ljósið árið 2024 eftir að hafa skotið Brian Thompson, for­stjóra UnitedHealthcare og tveggja barna föður, til bana í mið­borg Man­hattan um hábjartan dag.

Málið afhjúpaði djúp­stæða gremju og reiði í garð einka­vædds heil­brigð­is­kerfis Banda­ríkj­anna, sem Mangione sagði að hefði brugð­ist sér eftir bak­meiðsli.

Vanga­veltur um ástæður Mangione sprungu út eftir að hann var hand­tek­inn á dramat­ískan hátt í Penn­syl­vaníu eftir að ábend­ing barst frá manni sem sá hann á McDonald's.

Mangione hefur eign­ast fjölda dyggra aðdá­enda og fylgj­enda sem senda honum póst í fang­elsið og gefa í málsvarn­ar­sjóð hans.

Gagn­rýnendur hans, með Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í far­ar­broddi, hafa kallað eftir því að hann fái þunga refs­ingu.

Mynd á …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár